Í dag starfa sextán manns hjá fyrirtækinu en Solid Clouds er eitt þeirra nýsköpunarfyrirtækja sem varð til fljótlega eftir bankahrun.
Tölvuleik fyrirtækisins, Starborne Sovereign Space, hafa um fjögurhundruð þúsund manns spilað í um 150 löndum. Ný vara er væntanleg frá Solid Clouds.
Fyrir tíma netsins: Bréf-póstleikir spilaðir
Í raun má segja að frumútgáfur þeirra tölvuleikja sem fólk spilar í dag, hafi verið í formi bréf-póstleikja sem eitt sinn voru spilaðir.
Um aldamótin stjórnaði Stefán Gunnarsson einum slíkum leik.
Sá bréf póstleikur var herkænskuleikur sem gerðist í Napóleon stríðanna. Leikurinn var nokkuð pólitískur og segir Stefán ekki laust við að oft hafi verið mikill hiti í leikmönnum.
Svona eins og oft gerist þegar um pólitík er að ræða.
Til að komast áfram í leiknum, þurftu menn að bíða eftir því að fá niðurstöður útprentaðar og sendar til sín í bréfapósti.
Þá fyrst var hægt að halda áfram að spila leikinn.
Oft urðu spilarar verulega óþolinmóðir, höfðu samband við Stefán og vildi frekar koma og hitta hann en að bíða eftir bréfapóstinum heim.
Einn spilari var sérstaklega óþolinmóður:
Það var hann Stefán Þór Björnsson annar stofnanda Solid Clouds!
Við töluðum þó oft um það á þessum tíma að það væri nú snilld, ef það væri hægt að framkvæma þetta í gegnum tölvupóst frekar en með bréfpósti.“
Í gegnum þessi samskipti, tengdust nafnarnir tryggðarböndum strax um aldamótin.
Þá stofnuðu þeir lítið fjárfestingarfélag sem tók þátt í fyrsta hlutafjárútboði CCP.
Draumur Stefáns og Stefáns Þórs var þó að stofna sitt eigið tölvuleikjafyrirtæki í framtíðinni.

Draumur verður að veruleika
Árið 2010 ákvað Stefán að fara aftur í nám og þá í því skyni að undirbúa sig undir stofnun tölvuleikjafyrirtækis.
Solid Clouds var síðan stofnað árið 2013 af þeim nöfnum, Stefáni og Stefáni Þór, en til viðbótar fengu þeir til liðs við sig Sigurð Arnljótsson, sem áður hafði starfað hjá CCP, og Daníel Sigurðsson.
„Það var ljóst strax í upphafi að það væri þörf á að fá fleiri hendur í teymið þannig að við þyrftum ná í aukið fjármagn,“ segir Stefán.
Eins og fyrr segir, fengu nafnarnir falleinkunn frá vinum og kunningjum þegar þeir tóku sínar fyrstu æfingar fyrir fjárfestingakynningar.
„En þessi reynsla herti okkur og við lagfærðum kynninguna og æfðum okkur í framsögunni. Á endanum vorum við orðnir svo sjóaðir að við náðum að selja hugmyndina til flestra sem komu í heimsókn,“ segir Stefán og bætir því við að sá kunningi þeirra sem fannst upphaflega kynningin þeirra hvað verst, endaði síðar sem framleiðslustjóri hjá Solid Clouds.
En nýsköpun tekur tíma.
Það tók því nokkur ár að þróa Starborne Sovereign Space leikinn.
Sovereign Space skilar tekjum í dag og á sinn aðdáenda hóp en viðskiptalíkan félagsins hefur alltaf verið það að búa til ákveðinn tekjugrunn, sem hægt er að byggja margar vörur út frá,“
segir Stefán.

Ekkert lát á vexti leikjamarkaðarins
Stefán segir ekkert lát á vexti leikjamarkaðarins um allan heim. Hann hefur verið í mikilli sókn síðustu árin og virðist ekkert ætla að hægja á sér.
„Þar eru því mikil tækifæri, en að sama skapi er töluvert flókið að framleiða fjölspilunarleiki eins og Sovereign Space,“ segir Stefán.
Nú þegar hefur Solid Clouds hafið smíði á næstu vöru.
AÐ sögn Stefáns tekur sú vara mið af þörfum markaðarins þar sem spilarar vilja hafa mikla stjórn á sínum spilatíma og eins að aðgengi að leikjum sé auðvelt.
Væntanleg vara verður því hönnuð með snjalltæki í huga, til viðbótar við að verða fáanlegur fyrir borðtölur.
„Nýi leikurinn mun heita Starborne Frontiers og er sögudrifinn hlutverkaleikur. Spilarar þróa sína eigin bækistöð, safna hetjum og kanna heiminn í samstarfi eða samkeppni við aðra spilara,“ segir Stefán.
Í nýja leiknum verður tekjuöflunin mjög markviss því ætlunin er að kaupgeta hvers spilara verði aukinn til muna, í samanburði við Sovereign Space leikinn. Þó munu viðbótarkaup ekki hafa áhrif á meðspilara.
Stefán segir það mjög ólíkan feril að fara í gegnum, að smíða viðbótarvöru við Sovereign Space leikinn. Því nú sé tæknigrunnurinn til staðar hjá fyrirtækinu, sem flýtir verulega fyrir allri vöruþróun.
Áhættan verður fyrir vikið, mun minni en áður var.
Þá mun þróunin ekki taka mörg ár eins og var með fyrsta leikinn.
Við reiknum með að fyrsta útgáfa nýja leiksins, Sovereign Space Frontiers, verði tilbúinn eftir aðeins eitt ár í þróun,“
segir Stefán.
Stefán segir mikinn hug í teymi Solid Clouds þessa dagana, enda margt í gangi og mjög margt spennandi framundan.
Nú þegar liggur til dæmis fyrir að fjölga stöðugildum um átta næstu misseri.
„Okkar næstu skref er að ná framleiðslumarkmiðum samhliða frekari fjármögnun á næstu mánuðum,“ segir Stefán og bætir við: ,,En við erum passasöm og með skýra verkskiptingu því þess þarf til að ná geta unnið að svona verkefnum á sama tíma.“
Að sögn Stefáns er ætlunin að framleiða nýjar vörur reglulega hér eftir og þá áfram byggðar á þeim grunni sem Sovereign Space leikurinn hefur nú þegar byggt.
„Til lengri tíma eru markið Solid Clouds að koma með nýjar vörur á að minnsta kosti þriggja ára fresti.“

Góðu ráðin
Stefán viðurkennir að nýsköpun reyni á. Ekki síst vegna þess að þróunarvinnan er oftast löng og ströng og tekur oftar en ekki nokkur ár.
„Við höfum þurft að halda uppi einbeitingu hjá teyminu í gegnum ára langt ferli og raunveruleikinn er bara sá að það getur margt komið uppá og þú klárar ekki endilega þessa vegferð með sama mannskap,“ segir Stefán og bætir við: „Án efa er þrautseigja og sýn stærstu kostir sem frumkvöðlar geta haft.“
Þá segir Stefán alltaf þurfa að taka ráð fyrir að upphaflegar áætlanir breytist og áskoranirnar því oftast fleiri en fólk gerir ráð fyrir í upphafi.
Ef ég ætti að gefa eitthvað ráð til nýrra frumkvöðla þá myndi ég hvetja fólk til að vera ekki feimið við að deila hugmyndinni, virkja sitt næsta umhverfi og nýta sér öll sambönd sem viðkomandi hefur til að hámarka árangurinn við fyrstu skrefin,“
segir Stefán.
Þá segir hann það hafa hjálpað Solid Clouds mikið að vera innan um önnur fyrirtæki sem voru líka að taka sín fyrstu skref, en lengst af var Solid Clouds með aðstöðu í Innovation House nýsköpunarkjarna Jóns V. Tetzhner á Seltjarnaresi.
Að vera í þannig umhverfi, segir Stefán vera mikinn stuðning. Frumkvöðlar styrki tengslanet sitt og sýni hvorum öðrum stuðning með því að deila reynslu.
Stefán segir fólk ekki eiga að hræðast stofnun nýsköpunarfyrirtækja á tímum sem þessum. Í raun sé tíminn í kjölfar heimsfaraldurs góður.
„Þetta einstakur tími til að kýla á hugmyndir enda fjórir til fimm nýir og fjárfestasjóðir að koma til leiks bara í ár, til viðbótar við ríkishvata eins og styrkjakerfi Tækniþróunarsjóðs rífleg endurgreiðsla fyrir þróun og rannsóknir,“ segir Stefán og bætir því við að til viðbótar hljóti fjárfestar skattaafslátt fyrir hlutafjárkaup í nýsköpun fyrirtækja og einstaklinga.
Þá segir Stefán mikilvægt að frumkvöðlar glati ekki hæfileika sínum til nýsköpunar, staðni og festist í sama farinu.
Að skapa nýjar vörur reglulega krefst vissrar þjálfunar, aga og menningar innan fyrirtækja. Ég hef séð mörg dæmi um það að hæfileikinn til vöruþróunar innan fyrirtækja glatast eða verður með tímanum verulega ábótavant.“