Lakers fékk óvænt framlag frá Talen Horton-Tucker sem skoraði þrettán stig í leiknum, þar af sjö í framlengingunni. Hann skoraði sigurkörfu Lakers sigurinn er hann setti niður þriggja stiga skot þegar 21 sekúnda var eftir af leiknum. Auk þess að skora þrettán stig gaf Horton-Tucker tíu stoðsendingar.
TALEN. HORTON. TUCKER.
— NBA (@NBA) May 12, 2021
The @Lakers guard buries the game-winning triple in OT! #LakeShow pic.twitter.com/n4DJ1ncLm9
Sigurinn var afar mikilvægur fyrir Lakers sem reynir að forðast að lenda í umspili um sæti í úrslitakeppninni. Kyle Kuzma var stigahæstur Lakers-manna með 23 stig. Anthony Davis skoraði tuttugu stig og Andre Drummond var með sextán stig og átján fráköst. Julius Randle skoraði 31 stig fyrir Knicks og Derrick Rose 27.
Í annað sinn á þremur dögum vann Miami Heat Boston Celtics. Lokatölur 121-129, Miami í vil. Þetta var tíundi sigur liðsins í síðustu þrettán leikjum og það er nú öruggt með sæti í úrslitakeppninni. Boston þarf hins vegar að öllum líkindum að fara í umspil.
Tyler Herro skoraði 24 stig fyrir Miami og tók ellefu fráköst og Duncan Robinson og Bam Adebayo voru með 22 stig hvor. Kemba Walker skoraði 36 stig fyrir Boston og Jayson Tatum 33.
Tyler Herro (@raf_tyler) puts up 24 PTS, 11 REB as the @MiamiHEAT clinch an #NBAPlayoffs spot! pic.twitter.com/tk0IpeRq84
— NBA (@NBA) May 12, 2021
Aldrei þessu vant var Stephen Curry ekki stigahæstur í liði Golden State Warriors þegar liðið sigraði Phoenix Suns, 122-116.
Curry hitti aðeins úr einu af ellefu þriggja stiga skotum sínum og endaði með 21 stig. Andrew Wiggins var hins vegar sjóðheitur og skoraði 38 stig fyrir Golden State sem hefur unnið tvö bestu lið Vesturdeildarinnar, Phoenix og Utah Jazz, í röð.
WIGGINS COULD NOT MISS @22wiggins drops 38 points on 17-24 shooting in the @warriors 4th consecutive victory! pic.twitter.com/e2J7BaAAgX
— NBA (@NBA) May 12, 2021
Devin Booker skoraði 34 stig fyrir Phoenix og Chris Paul var með 24 stig og tíu stoðsendingar.
Úrslitin í nótt
- LA Lakers 101-99 NY Knicks
- Boston 121-129 Miami
- Golden State 122-116 Phoenix
- Charlotte 112-117 Denver
- Detroit 100-119 Minnesota
- Toronto 96-115 LA Clippers
- Indiana 103-94 Philadelphia
- Chicago 107-115 Brooklyn
- Memphis 133-104 Dallas
- Milwaukee 114-102 Orlando
- Sacramento 122-06 Oklahoma

NBA er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. NBA körfuboltinn er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.