„Ég sé fyrir mér að ef eftirspurnin verður mikil þá myndi ég skipuleggja framleiðsluna í kringum það. En þróa síðan hugmyndina og framleiða töskur úr tilteknum bílum eins og til dæmis bílum sem hafa verið lengi í fjölskyldum og eru búnir með sinn líftíma. Þá væri hægt að senda inn beiðni um að fá sérhannaða tösku úr bílnum,“ segir Hulda.
Hugmyndin fæðist
Hulda útskrifast í vor úr Fjölbrautaskólanum í Garðabæ af hönnunar- og markaðsbraut.
„Ég hef mikinn áhuga á hönnun og þá helst fatahönnun og því sem tengist tísku,“ segir Hulda og bætir við:
Í lokaáfanganum í hönnun var ég að vinna að nýsköpunarverkefni og fékk þá hugmynd að hanna töskur úr endurnýttum efnum. Því fólk er farið að hugsa mun meira um það en áður að kaupa umhverfisvænar vörur.“
Að sögn Huldu tók þróunarferlið smá tíma en ferlið gekk þó vel fyrir sig.
„Mér datt í hug að hanna töskur með haldfangi úr sætisbeltum en vildi þó finna mér enn betri sérstöðu. Þá datt mér í hug að taskan sjálf gæti verið úr endurnýttum leðursætum úr bílum. Mér fannst skipta mjög miklu máli að taskan væri sérstök og öðruvísi,“ segir Hulda.

Í kjölfarið hafði Hulda samband við Netparta og spurðist fyrir um það hvort hún gæti fengið hráefni úr bílum þaðan.
Það gekk upp og segist Hulda hafa fengið nánast allt hráefni frá Netpörtum.
Það voru leðursæti úr bílum og einnig sætisbelti.
Ég byrjaði á því að hreinsa innan úr sætunum svampa og óþarfa sauma. En þegar að ég saumaði töskuna saman, passaði ég þó upp á að efnið héldi enn sínu upprunalega formi,“
segir Hulda.
Í markaðsfræði í skólanum hafði Hulda líka lært ýmislegt um það, hvernig stofnun fyrirtækja gengur fyrir sig og rekstur þeirra.
Hulda ákvað því að taka verkefnið skrefinu lengra og stofna fyrirtækið AKA töskur.
„Ég valdi að skýra töskuna, eða litla fyrirtækið mitt, AKA töskur því mér fannst það passa mjög vel við hugmyndina mína og undirstrika sérstöðuna,“ segir Hulda og vísar þar til þess að þar sem hráefnið í töskunum kemur úr bílum, eigi það vel við að tengja nafnið við akstur.