Ellefu skipta með sér 89 milljónum til rannsókna á krabbameini Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 28. maí 2021 15:33 Styrkþegarnir stilltu sér upp á hópmynd í húsi Krabbameinsfélagsins Skógarhlíð í dag ásamt Sigríði Gunnarsdóttur, formanni stjórnar Vísindasjóðs. Vísindasjóður Krabbameinsfélagsins veitti í dag 11 styrki að upphæð 89 milljóna króna. Voru þar sjö styrkir til nýrra rannsókna og fjórir framhaldsstyrkir til rannsókna sem hafa áður fengið styrk.
Er þetta stærsta úthlutun Vísindasjóðsins til þessa. Þess má einnig geta að á undanförnum fimm árum (2017-2021) hefur Vísindasjóður Krabbameinsfélagsins veitt 58 styrki, alls 316 milljónir króna, til 37 mismunandi rannsókna að því er segir í tilkynningu frá Krabbameinsfélaginu. Halla Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins.Foto: Asta Kristjansdottir „Um er að ræða styrkveitingar sem teljast sem rífleg innspýting í íslenskt háskóla- og vísindasamfélag og styður við rannsóknarstarf í örum vexti ekki síst í heilbrigðisgeiranum. Þar erum við Íslendingar meðal fremstu þjóða á heimsvísu og eru þau verkefni sem hljóta styrki að þessu sinni líkleg til að hafa marktæk áhrif á þróun forvarna, greiningar og meðferðar krabbameina um allan heim,“ segir í tilkynningunni. Halla Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins, lagði á það áherslu í ávarpi sínu að sjóðurinn myndi halda áfram að vaxa og dafna og þar með vera íslensku vísindafólki innan handar. Styrkirnir skipta verulegu máli, ekki síst við upphaf stórra rannsóknarverkefna sem eiga síðar möguleika á að stækka enn frekar. Vísindasjóðurinn var stofnaður árið 2015 en hryggjarstykki sjóðsins var stofnframlag Krabbameinsfélagsins auk erfðagjafa úr Minningarsjóði Ingibjargar Guðjónsdóttur Johnson annars vegar og Minningarsjóði Kristínar Björnsdóttur hins vegar. Síðan hefur sjóðurinn notið stuðnings sjálfsaflafés Krabbameinsfélagsins en þar eru Velunnarar Krabbameinsfélagsins ómissandi. Fá þeir sérstakar þakkir fyrir að styðja við rannsóknir sem koma til með að bjarga mannslífum. Tilgangur sjóðsins er að efla íslenskar rannsóknir á krabbameinum, meðal annars með því að styrkja með fjárframlögum rannsóknir á orsökum krabbameina, forvörnum, meðferð og lífsgæðum sjúklinga. Styrkþegarnir í ár eru: Berglind Ósk Einarsdóttir hlýtur 6.150.000 kr. styrk fyrir verkefnið Hlutverk MITF í hindrun ónæmissvars sortuæxla. Bylgja Hilmarsdóttir hlýtur 3.200.000 kr. styrk fyrir verkefnið Þróun örvefjalíkana úr briskrabbameini og notkun þeirra sem módel fyrir notkun PARP hindra í meðferð. Erna Magnúsdóttir hlýtur 10.000.000 kr. styrk fyrir verkefnið BLIMP1 miðluð stjórnun á frumuhring í Waldenströmsæxlum. Georgios Kararigas hlýtur 10.000.000 kr. styrk fyrir verkefnið Áhrif nýju curcúmín afleiðunnar C66 á hjartavöðvakvilla af völdum doxórúbicíns. Guðrún Valdimarsdóttir hlýtur 8.600.000 kr. styrk fyrir verkefnið Æxlingar úr brjóstakrabbameinssjúklingum meðhöndlaðir með æðaþelssértækum sameindalyfjum - Samanburður á frumæxlum og meinvörpum í ólíkum undirgerðum brjóstakrabbameins. Gunnhildur Ásta Traustadóttir hlýtur 4.000.000 kr. styrk fyrir verkefnið Hlutverk peroxidasin í eðlilegum og illkynja brjóstkirtli. Laufey Tryggvadóttir hlýtur 9.232.081 kr. styrk fyrir verkefnið Brjóstakrabbamein á Íslandi árin 1988 – 2020: Samanburður á gæðum skimunar og meinafræðilegum forspárþáttum, milli kvenna á aldrinum 40 – 49 ára og 50 – 69 ára. Margrét Helga Ögmundsdóttir hlýtur 8.500.000 kr. styrk fyrir verkefnið Sjálfsát í krabbameinum: Greining á spendýrasértæku hlutverki ATG7. Pétur Orri Heiðarsson hlýtur 9.992.364 kr. styrk fyrir verkefnið Hlutverk óreiðusvæða í starfsemi MITF umritunarþáttarins. Sigurður Yngvi Kristinsson hlýtur 9.221.532 kr. styrk fyrir verkefnið Klínískt notagildi frumuflæðisjárrannsókna í forstigum mergæxlis og áhrif nærumhverfis mergæxlisfrumna á sjúkdómsframvindu. Stefán Sigurðsson hlýtur 10.000.000 kr. styrk fyrir verkefnið Hlutverk MITF í að viðhalda stöðugleika erfðaefnisins.
Skimun fyrir krabbameini Háskólar Heilbrigðismál Mest lesið Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Innlent Bardagabúr rís við Hvíta húsið Erlent Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Innlent Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Innlent Segir andstæðinga viðræðna leita í handbók Farage og Reform Innlent Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Erlent Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Innlent Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Innlent Ferðamenn stundum slegið tvær flugur í einu höggi Innlent Fleiri fréttir Vilja fresta ESB-atkvæðagreiðslu þar til í október Vegavinna á Reykjanesbraut vestan Straumsvíkur Segir andstæðinga viðræðna leita í handbók Farage og Reform Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Ferðamenn stundum slegið tvær flugur í einu höggi Nýr bæjarstjóri, morðhótanir og afar samrýmdar systur Þórður nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar Bein útsending: Kynna meirihlutasáttmála og nýjan bæjarstjóra Hafnarfjarðar Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstudag Lögðu hald á 9mm hálfsjálfvirka skammbyssu Mikil spenna í veðurkortunum Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut og miklar tafir Taldi kosningarnar ógildar vegna ógilds kjörseðils Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Telja frumvarp um sjókvíaeldi stangast á við gildandi lög Vakta hafsvæðið með ESB-dróna frá Hornafirði Sannfærður um að finna eitthvað spennandi að gera Heiða greinir frá morðhótunum Selja húsnæðið vegna andstöðu íbúa Komu vélarvana fiskibát til hjálpar Sátt um að klára ESB-umræðu í tæka tíð Sátt á þingi um þjóðaratkvæði og beðið eftir fréttum úr borginni Bein útsending: Borgarfulltrúar kveðja „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Sjá meira