Innlent

Hádegisfréttir Bylgjunnar

Ritstjórn skrifar
Hádegisfréttir bylgjan fréttir fréttatími
Hádegisfréttir bylgjan fréttir fréttatími vísir

Í hádegisfréttum Bylgjunnar klukkan tólf segjum við frá því að aldrei hefur verið alvarlegri undirmönnun á bráðadeild Landspítala í Fossvogi og stefnir í að verði í sumar, að sögn formanns félags bráðalækna.

Yfirgnæfandi líkur séu á alvarlegum atvikum og jafnvel mannslátum á deildinni. Stjórnendur spítalans og ríkisstjórnin beri ábyrgð á því.

Innanlandssmit kórónuveirunnar sem greindust í gær tengjast öll hópsýkingu meðal hælisleitenda á höfuðborgarsvæðinu. Sýkingin hefur verið rakin til eldri smita, sem ekki hefur tekist að rekja til landamæra. Þá voru maður og kona frá Lettlandi handtekin vegna gruns um þjófnað í Smáralind í gær en þau áttu að vera í sóttkví.

Samkvæmt upplýsingum frá yfirkjörstjórn voru 3.700 manns búnir að kjósa í gær í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík og er það betri kjörsókn en 2016. Hart er barist um efstu sætin en prófkjörinu lýkur í dag.

Lögreglumaður þurfti að leita á slysadeild í gær eftir átök við mann sem átti að dvelja í sóttvarnarhúsi. Varnarúða var beitt á hann.

Evrópusambandið hefur ákveðið að banna hvítrússneskum flugvélum að fljúga í lofthelgi aðildarríkja sinna og að lenda á evrópskum flugvöllum. Evrópsk flugfélög eru áfram hvött til þess að forðast í lengstu lög að fljúga í gegnum lofthelgi Hvíta-Rússlands.

Íbúar Skaftárhrepps minnast þess í dag með hátíðarhöldum á Kirkjubæjarklaustri að nú er tíu ár liðin frá því að eldgos hófst í Grímsvötnum. Mikið öskufall fylgdi gosinu, sem hafði áhrif á lífið í sveitarfélaginu




Fleiri fréttir

Sjá meira


×