Innlent

Kippir sér ekki upp við furðu­leg augna­ráð þegar hann ferðast um á hlaupa­hjóli hringinn í kringum landið

Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar
Hugh David Graham ferðast um á hlaupahjóli hringinn í kringum landið.
Hugh David Graham ferðast um á hlaupahjóli hringinn í kringum landið. instagram

Hugh Graham er 26 ára Breti sem ferðast nú á hlaupahjóli hringinn í kringum landið. Hann kippir sér ekki upp við furðuleg augnaráð á þjóðveginum og segir dvölina á Íslandi bestu vikur lífs síns.

Hugh Graham lagði af stað frá Reykjavík fimmta ágúst og er nú staddur á Fáskrúðsfirði á tólfta degi ferðalagsins. Á síðasta ári gekk hann frá Skotlandi til Lundúna í miðjum heimsfaraldri og ákvað þá að næsta ævintýri yrði á Íslandi. Það er rétt að taka það fram að hlaupahjólið er ekki rafknúið og ferðalagið því erfitt á köflum.

„Ég er nú staddur á Austfjörðunum þar sem vegirnir eru mjög brattir. Þetta er klikkað en alveg þess virði því í lok erfiðs dags líður mér vel eftir að hafa séð alla þessa undraverðu staði. Þessi eyja er bara svo falleg,“ sagði Hugh David Graham, 26 ára Breti.

Fær ráð frá Íslendingum

Hann sýnir frá ferðinni á samfélagsmiðlum þar sem fjöldi Íslendinga fylgist með ferðalaginu.

„Það er mjög gott að vera í sambandi við þá því ég fæ ráð frá þeim. Ég hitti mann í gær sem sýndi mér góðan stað og hann gaf mér harðfisk að borða, en ég hafði aldrei snætt. Bragðið var mjög sérstakt.“

Fólk þekki hann á þjóðveginum

Hann fer um fimmtíu og fimm kílómetra á dag og segir að fólk sé farið að þekkja hann á þjóðveginum.

„Ég hef hitt nokkra sem þekkja mig og það er magnað og frábært. Margir horfa á mig með forundran á hlaupahjólinu og velta fyrir sér hvað ég sé eiginlega að gera. Ég hef líka fundið fyrir miklum stuðningi. Fólk stoppar og spyr mig hvað ég sé að gera og flautar með bílflautunni. Ég finn fyrir miklum stuðningi á vegunum.“

Bestu vikur lífsins

Hann skilar góðri kveðju til Íslendinga og hvetur alla til að veifa sér á þjóðveginum.

„Það er vel þess virði að gera þetta. Þetta hafa verið bestu tvær vikur lífs míns og ég þakka Íslandi fyrir það.“

Hér má fylgjast með ferðalaginu á samfélagsmiðlunum TikTok og Instagram.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×