Mygluskemmdir hafa haft áhrif á skólastarfið í Fossvogsskóla síðustu ár. Rakaskemmdir eru enn til staðar í hluta bygginga skólans og þá fannst asbest í gluggakistum í byggingunum Vesturlandi og Meginlandi.
Skólastarfið á því að fara fram á tveimur stöðum í vetur; annars vegar í Fossvogi í færanlegum kennslustofum og í byggingunni Útgarði og hins vegar í Korpuskóla. Bráðabirgðaskúr sem átti að taka á móti yngsta skólastiginu í Fossvogi er þó ekki tilbúinn og því munu krakkarnir í 1. til 4. bekk fá kennslu í Víkinni, félagsheimili Víkings, þangað til.
„Í tvö og hálft ár höfum við barist með kjafti og klóm við báknið Reykjavíkurborg um ásættanlega kennsluaðstöðu fyrir börnin okkar. Í tvö og hálft ár höfum við rekið okkur á hvern vegginn á fætur öðrum, lygarnar, svikin og hortugheitin sem við höfum mætt af hálfu Reykjavíkurborgar eiga sér vart fordæmi,“ skrifar Guðríður Svana Bjarnadóttir foreldri á Facebook síðu sinni um málið í kvöld.
Börnin fái kennslu á skítugum klósettgangi
Hún segist ekki hafa verið yfir sig hrifna þegar hún heyrði af því að börnin ættu að fá aðstöðu í Víkinni en ákvað að eigin sögn að gefa því séns.
„Botninn tók svo úr í dag þegar okkur var tilkynnt að börnin fengju bara aðstöðu á neðri hæðinni í Víkinni af því Víkingur er ekki til í að gefa eftir aðgang að hátíðarsalnum,“ skrifar hún.
Krakkarnir fá því tvö rými á neðri hæð hússins; annars vegar tengibygginguna, sem Guðríður lýsir sem „skítugum og mjög óvistlegum klósettgangi“ og má sjá á myndinni hér efst í fréttinni og hins vegar Berserkjasalinn svokallaða. Börn í 2. og 3. bekk eiga að vera í tengibyggingunni, eða klósettganginum, en þau eru um 90 talsins.
„Skólastjóranum finnst þetta bara frábært og skilur ekkert í því að kennarar og foreldrar séu ósáttir,“ skrifar Guðríður.

„Ég er gjörsamlega miður mín yfir þessu og alveg rosalega reið. Hvernig á ég að bjóða barninu mínu upp á þennan hrylling? Er þetta í alvöru boðlegt? Myndu Dagur B. Eggertsson og Skúli Helgason vera sáttir við að börnin þeirra yrðu sett í þessa stöðu?“ spyr hún sig.
„Ég veit ekki hvað hægt er að gera til þess að fólkið sem stýrir borginni mæti í vinnuna og sinni henni af alvöru.“
Mikilvægt að verja af kappi allt íþróttastarf Víkings
Fyrirhugað er að skólastarfið verði þarna í þrjár vikur en að sögn Guðríðar lýkur grenndarkynningu bráðabirgðaskúranna, sem eiga þá að taka við í Fossvoginum, næsta miðvikudag og þá eigi eftir að setja þá upp og tengja við rafmagn og vatn.
Í pósti sem Ingibjörg Ýr og Árni Freyr, stjórnendur í Fossvogsskóla, sendu á foreldra í kvöld segir að samkomulag sé milli íþróttafélagsins Víkings og skólans um að „verja af kappi allt íþróttastarfs Víkings sem er á góðri siglingu í knattspyrnunni“.
„Á sama tíma og við hugum að því að verja íþróttastarf Víkings þá huga þeir að velsæld okkar. Þannig hagnast báðir aðilar,“ segja þau. Nemendur verða fluttir milli Fossvogsskóla og hinna staðanna þar sem kennslan fer fram með rútum á morgnana og í lok dags.
„Það kann að koma einhverjum spánskt fyrir sjónir að vera í Víkingsheimilinu með starfsemi 2. til 4. bekkjar og það er skiljanlegt. Við þurfum því að hafa í huga að skólinn er annað og meira en húsnæðið sem hýsir starfsemina; hann er fyrst og fremst mannauðurinn sem þar er; nemendur, starfsfólkið og svo þið foreldrarnir,“ segir í póstinum.