Skoðun

Fleiri hjúkrunarfræðingar, fleiri rúm

Kristján Ingimarsson skrifar

Það þarf að fjölga hjúkrunarfræðingum um 200. Gerum það.Þetta er skýrt markmið sem heilbrigðisyfirvöld ættu að setja sér að ná og það þarf ekki að vera ýkja flókið að ná þessu markmiði. Grunnforsendurnar til að ná því eru að borga hjúkrunarfræðingum hærri laun og bæta aðgengi að námi í hjúkrunarfræði.

Samkvæmt framkvæmdastjóra hjúkrunar á Landspítalanum vantar um 200 hjúkrunarfræðinga til starfa og skortur á hjúkrunarfræðingum veldur því að ekki er hægt að fjölga hjúkrunarrýmum.Árið 2009 voru 900 legurými á landspítalanum en nú eru þau rúmlega 600. Á sama tíma hefur Íslendingum fjölgað og þörfin fyrir fleiri rúm hefur aukist. Nú er verið að byggja við Landspítalann og gert er ráð fyrir því að þegar búið er að taka viðbygginginguna í notkun verði spítalinn með færri legurými en eru í dag.Hvernig það á að verða til bóta er erfitt að sjá.

Þessi skortur á legurýmum kemur illa niður á bráðamóttökunni þar sem fólk er að kikna undan álagi og deildin situr uppi með sjúklnga sem ættu að vera annarsstaðar. Þegar búið er að greina fólk á bráðamóttökunni þá þarf það að komast eitthvað annað, mögulega heim til sín eða leggjast inn á viðeigandi deild þar sem sjúklingar fá viðeigandi þjónustu.

Bráðamóttakan hefur 36 pláss og oft á tíðum er hún full af sjúklingum sem ættu að vera á viðeigandi legudeild en ekki bráðamóttöku.

Staðan er oft þannig að kannski 1 – 2 rúm eru laus á bráðamóttökunni í upphafi dags en um 80 manns koma á bráðamóttökuna á degi hverjum. Plássleysið er þannig að starfsfólk getur varla snúið sér við án þess að reka sig í sjúkling afleiðingin er sú að mikill þrýstingur á að útskrifa fólk til þess að losa um pláss. Þetta býr til aukið álag, aukna hættu á mistökum og aukið óöryggi til viðbótar við það sem nú þegar er til staðar.

Til þess að hægt sé að fjölga legurýmum þarf að fjölga hjúkrunarfræðingum. Það er hægt að gera með því að semja við þá um betri laun og gera ráðstafanir til að útskrifa fleiri húkrunarfræðinga. Í stað þess að hafa takmarkanir og kvóta inn í hjúkrunarmenntun þarf að auðvelda aðgengi að hjúkrunarmenntun. Þegar það liggur svona ljóst fyrir og oft hefur verið bent á að það þarf að fjölga hjúkrunarfræðingum, þá leitar sú spurning á fólk: Af hverju er það ekki gert?

Fjölgum hjúkrunarfræðingum.

Höfundur er fiskeldisfræðingur og situr í heimastjórn Djúpavogs.




Skoðun

Sjá meira


×