Innlent

Björn Ingi segir óbólusetta útlendinga „bleika fílinn í stofunni“

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
„Björn Ingi á Viljanum“ er orðinn landsfrægur fyrir framgöngu sína á upplýsingafundum.
„Björn Ingi á Viljanum“ er orðinn landsfrægur fyrir framgöngu sína á upplýsingafundum. Vísir/Vilhelm

„Bleiki fíllinn í stofunni“, sem ekki má tala um, er að flestir þeir sem nú veikjast alvarlega af kórónuveirunni hér á landi „eru útlendingar sem vinna hér og hafa íslenska kennitölu en gera annars lítt eða ekkert með sóttvarnaráðstafanir okkar samfélags“.

Þetta segir Björn Ingi Hrafnsson, ritstjóri Viljans, í pistli á Viljanum. Björn Ingi, sem er orðinn frægur fyrir framgöngu sína á upplýsingafundum almannavarna, segir umrædda útlendinga neita að láta bólusetja sig og „leggja því meira á heilbrigðiskerfið okkar og eigin heilsu en ástæða væri til“.

Björn Ingi segir að erlendis hafi sums staðar verið gripið til „óyndisúrræða“ til að bregðast við þessu; til að mynda útgöngubanns fyrir óbólusetta og uppsagna starfsfólks sem neitar að láta bólusetja sig, „allt vegna þess að slík ákvörðun fárra hefur gríðarlega íþyngjandi áhrif fyrir samfélagið allt,“ segir í pistlinum.

Umfjöllunarefni Björns Inga er annars sú ákvörðun heilbrigðisráðherra að fara gegn tillögum sóttvarnalæknis um að fresta skólabyrjun. Segir hann um að ræða pólitíska ákvörðun um að „láta veiruna gossa“ og vona það besta í ljósi fregna af mildum veikindum af völdum ómíkron.

Björn Ingi leiðir líkur að því að ráðherra og aðrir í ríkisstjórninni séu farnir að hlusta á aðra en sóttvarnalækni og nefnir þar til sögunnar Björn Zoëga, forstjóra Karolinska-sjúkrahússins í Svíþjóð og nýráðinn ráðgjafa heilbrigðisráðherra.

„Það er eins gott að þetta veðmál gangi eftir, því annars er hætt við að ráðherrann og ríkisstjórnin öll sitji uppi með Svarta Pétur. Við höfum farið einna best þjóða út út faraldrinum hingað til og vitum hvers vegna. Það sýnir pólitískt þor að bregða út af þeirri leið núna í þeirri von að veiran gossi bara út um allt og þar með náist hjarðónæmi hratt. Kannski mun það ganga eftir. Vonandi verður það ekki á endanum fífldirfskan ein,“ segir Björn Ingi.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×