Lifði tvöföldu lífi og segir af sér sem verkalýðsleiðtogi Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 25. janúar 2022 23:30 Per Christensen átti bæði eiginkonu og kærustu. Ole Jensen - Corbis/Corbis via Getty Images) Per Christensen, formaður stærsta verkalýðsfélags Danmerkur, hefur sagt af sér eftir að upp komst að hann lifði tvöföldu lífi.
Danskir fjölmiðlar greindu frá því að Christensen, formaður verkalýðsfélagsins 3F sem er með rúmlega 260 þúsund meðlimi, hefði árum saman verið í sambandi með minnst tveimur konum, án þess að þær vissu af hvor annarri. Var hann giftur annarri þeirra og í sambandi með hinni. Hafa danskir fjölmiðlar meðal annars greint frá því að hann hafi í raun átt tvö sett af tengdaforeldrum, tvö sett af vinum og svo framvegis. Hann hafi farið í frí með hvorri konu fyrir sig, farið í afmæli og þar fram eftir götunum án þess að neitt kæmist upp. Varaformaður 3F, Tina Christensen, segir að eftir að málið hafi komist upp hafi skugga verið varpað á hæfi formannsins fyrrverandi til að gegna embættinu. Komist hafi verið að sameiginlegri niðurstöðu um að hann myndi stíga til hliðar. Sjálfur segist Christensen fráfarandi formaður sjá mjög eftir að hafa blekkt konurnar tvær og fjölskyldur þeirra. Hann hafi elskað þær heitt en ekki getað valið á milli þeirra. Hann segir þá af og frá að um einhvers konar #Metoo-mál sé um að ræða.
Danmörk Mest lesið Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Uppsagnir hjá Klettabæ Innlent Fleiri fréttir Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Marco Rubio á leið til Íslands Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Sjá meira