Stjarnan vann tveggja stiga sigur á Keflavík 95-93 í spennutrylli þar sem úrslitin réðust á loka sekúndunum í framlengingu. Þetta er í fjórða skiptið í röð sem Stjarnan kemst í bikarúrslit.
Keflavík opnaði leikinn með þriggja stiga körfu frá Herði Axel Vilhjálmssyni. Leikurinn datt svo niður og kom tæplega þriggja mínútna kafli þar sem bæði lið áttu í vandræðum með að hitta. Það var auðvelt að skynja hátt spennustig enda mikið undir.

Keflavík fann betri takt um miðjan fyrsta leikhluta og náði að mynda sér fjögurra stiga forskot sem þeir héldu út leikhlutann.
David Gabrosvek byrjaði á bekknum hjá Stjörnunni en kom inn á í fyrsta leikhluta og fór á kostum. Hann gerði 15 stig á sex mínútum og fimmtíu sekúndum.
Þrátt fyrir að David Gabrosvek gerði ekki stig í öðrum leikhluta var Stjarnan með mikla yfirburði. Stjarnan náði fljótlega í öðrum leikhluta að gera sjö stig í röð og þá tók Hjalti Þór Vilhjálmsson, þjálfari Keflavíkur, leikhlé í stöðunni 34-30 Stjörnunni í vil.
Keflavík hitti aðeins úr einu þriggja stiga skoti af átta í öðrum leikhluta. Þetta voru oft á tíðum opin skot sem Keflvíkingar fóru afar illa með.
Stjarnan var fimm stigum yfir í hálfleik 41-36.
Stjarnan gerði sex stig í röð í upphafi þriðja leikhluta og komst sjö stigum yfir 47-40. Skömmu síðar ákvað Dominykas Milka að taka leikinn í sínar eigin hendur og gerði átta stig í röð.
Stemmningin færðist þá yfir til Keflavíkur og allt ætlaði um koll að keyra í stúkunni þegar Hörður Axel setti niður þrist og kom Keflavík þremur stigum yfir 57-60. Keflavík vann þriðja leikhluta með fimm stigum og var staðan 60-62 fyrir síðasta fjórðung.

Það var ótrúleg spenna í fjórða leikhluta þar sem bæði lið skiptust á að taka forystuna. Þegar tæplega sjötíu sekúndur voru eftir virtist Stjarnan vera að fara landa sigri. Valur Orri hafði klikkað á tveimur þriggja stiga skotum.
Lokasekúndurnar í fjórða leikhluta voru ótrúlegar. Stjarnan var þremur stigum yfir 82-79. Keflavík tók leikhlé og stillti í lokasókn. Darius Tarvydas setti niður þriggja stiga skot í horninu og jafnaði leikinn á tveimur sekúndum. Eftir fjórða leikhluta var staðan 82-82 og framlenging næst á dagskrá.
Þegar tvær mínútur voru eftir af leiknum var Keflavík fimm stigum yfir 85-90. Stjarnan sýndi þá ótrúlegan karakter og vann lokamínúturnar 10-3.
Stjarnan vann á endanum 95-93 og spilar í úrslitum VÍS-bikarsins á laugardaginn.

Af hverju vann Stjarnan?
Það munaði alls ekki miklu í kvöld en ætli reynsla Stjörnunnar í undanúrslitum hafi ekki spilað inn í. Stjarnan vann síðustu tvær mínúturnar í framlengingunni 10-3.
Hverjir stóðu upp úr?
Robert Turner reyndist Stjörnunni afar mikilvægur þegar mest á reyndi. Hann gerði þriggja stiga körfu sem setti Stjörnuna í bílstjórasætið undir lok framlengingar. Hann var stigahæstur hjá Stjörnunni með 24 stig.
Mustapha Heron var allt í öllu hjá Keflavík. Hann endaði á að gera 26 stig og taka 8 fráköst.
Hvað gekk illa?
Það er stutt á milli hláturs og gráts í boltanum. Darius Tarvydas fór afar illa með lokasókn Keflavíkur í framlengingunni. Rétt á undan hafði hann sett niður þriggja stiga skot en þegar mest á reyndi klikkaði hann.
Keflavík spilaði afar illa úr sínu fimm stigum yfir og aðeins 120 sekúndur eftir.
Hvað gerist næst?
Stjarnan mun mæta annað hvort Þór Þorlákshöfn eða Val í úrslitum VÍS-bikarsins.
Næsti leikur Keflavíkur er gegn Tindastóli á Sauðárkróki miðvikudaginn 23. mars.
Myndir:



