Stjarnan

Stjarnan

Fréttir af Ungmennafélaginu Stjörnunni frá Garðabæ.

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Hefur Valur efni á að spila Samúel í kvöld?

Stórleikur kvöldsins í Bestu-deild karla er viðureign Stjörnunnar og Vals á Samsung-vellinum í Garðabæ. Liðin hafa bæði unnið tvo leiki og tapað einum og eru með sex stig í deildinni. Jökull Ingason Elísabetarson, þjálfari Stjörnunnar, segist vera spenntur fyrir kvöldinu og vonar að Samúel Kári Friðjónsson spili leikinn. Samúel var keyptur frá Stjörnunni til Vals á dögunum. En hans þátttaka í leiknum gæti kostað Val.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

Davíð Tómas skipti um skoðun: „Ég var of fljótur á mér“

Körfuboltadómarinn Davíð Tómas Tómasson hefur skipt um skoðun varðandi sigurkörfu Hilmars Smára Henningssonar í leik Stjörnunnar og Tindastóls í undanúrslitum Bónus deildar karla í körfubolta. Öfugt við það sem hann sagði í gær telur hann að dæma hefði átt skref á Hilmar Smára.

Körfubolti
Fréttamynd

Stjörnukonur jöfnuðu metin

Það stefnir í svakalegt úrslitaeinvígi í umspilinu um sæti í Olísdeild kvenna í handbolta eftir að Stjörnukonur jöfnuðu í dag.

Handbolti
Fréttamynd

„Andri Rúnar færir liðinu mjög mikið“

Jökull I. Elísabetarson og lærisveinar hans hjá Stjörnunni eru með fullt hús stiga eftir fyrstu tvo leiki sína í Bestu-deild karla í fótbolta en liðið lagði FH að velli í annarri umferð deildarinnar í Garðabænum í kvöld. 

Fótbolti
Fréttamynd

Ægir Þór óttaðist að ferlinum væri lokið

Ægir Þór Steinars­son, lykilmaður í liði Stjörnunnar og lands­liðs­fyrir­liði í körfu­bolta óttaðist að sínum ferli væri lokið eftir að hann meiddist í leik gegn KR í úr­slita­keppni Bónus deildarinnar. Úr myrkrinu hefur hann nú risið og ætlar sér að koma sterkari til baka.

Körfubolti
Fréttamynd

Oln­bogi Ægis brotnaði

Ægir Þór Steinarsson olnbogabrotnaði í leik með Stjörnunni gegn KR í úrslitakeppni Bónus deildarinnar í körfubolta. Hann gekkst undir aðgerð í gærkvöldi. 

Körfubolti
Fréttamynd

„Brugðumst vel við í krefjandi að­stæðum“

Baldur Þór Ragnarsson, þjálfari Stjörnunnar, er kominn með lið sitt í undanúrslit í Bónus-deild karla í körfubolta. Þar verður Stjörnuliðið án Ægis Þórs Steinarssonar, sem meiddist þegar Stjarnan tryggði sér farseðil í undanúrslitin, en án hans snéri liðið taflinu sér í vil í leiknum í kvöld. 

Körfubolti