Innlent

Hópurinn lagður af stað til Ítalíu

Smári Jökull Jónsson skrifar
Sigga, Beta og Elín er lagðar af stað til Ítalíu.
Sigga, Beta og Elín er lagðar af stað til Ítalíu. Vísir/Hulda Margrét

Íslenski Eurovisionhópurinn lagði af stað til Ítalíu í morgun en systurnar Sigga, Beta og Elín stíga á svið í Tórínó þann 10.maí.

Rúnar Freyr Gíslason, fjölmiðlafulltrúi hópsins, segir að æfingar hefjist strax á morgun.

„Við eigum æfingu strax á morgun og svo eru fleiri æfingar. En svo eru líka blaðamannafundir og opnunarhátíð, viðtöl og alls konar í bland við æfingar,“ segir Rúnar Freyr í frétt RÚV.

Auk systranna Siggu, Betu og Elínar eru tólf aðrir í hópnum sem hélt til Ítalíu í morgun. Þar á meðal bakraddasöngvarar og að sjálfsögðu Lay Low sem er höfundur lagsins „Með hækkandi sól“.

Systurnar þátt í fyrri undankeppninni sem fer fram þann 10.maí. Þær unnu sigur í Söngvakeppninni hér heima eftir harða baráttu við Reykjavíkurdætur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×