Innlent

Blíð­viðri í borginni

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Einhverjir kunna að leggja leið sína í Nauthólsvík í veðurblíðu dagsins.
Einhverjir kunna að leggja leið sína í Nauthólsvík í veðurblíðu dagsins. Vísir/Vilhelm

Í dag verður norðlæg átt á landinu, yfirleitt 5 til 10 metrar á sekúndu, en 8 til 13 metrar á sekúndu á Faxaflóasvæðinu. Láskýjahula með súld eða rigningu með köflum og hiti á bilinu 3 til 8 stig norðan- og austanlands og þokuloft við ströndina framan af degi. Sunnantil verður víða léttskýjað og hiti allt að 16 stig.

Þetta kemur fram á vef Veðurstofu Íslands.

Veðurhorfur á landinu næstu daga:

Á þriðjudag og miðvikudag:

Breytileg átt, yfirleitt 3-8 m/s. Dálítil rigning suðvestantil, en annars skýjað og lítilsháttar væta. Hiti 5 til 12 stig.

Á fimmtudag (uppstigningardagur) og föstudag:

Norðvestlæg átt og væta og svalt norðantil, en bjart og milt með stöku síðdegisskúrum syðra.

Á laugardag:

Útlit fyrir austanátt og rigningu um landið sunnanvert, en þurrt norðaustantil. Hlýnandi veður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×