Segir Rússa rétt að byrja í Úkraínu Samúel Karl Ólason skrifar 7. júlí 2022 21:31 Vladimír Pútín, forseti Rússlands, var vígreifur á fundi með þingmönnum í dag og manaði Vesturlönd til að reyna að sigra Rúsa á vígvellinum. AP/Alexei Nikolsky Vladimír Pútín, forseti Rússlands, segir að Rússar séu að „rétt að byrja“ í Úkraínu. Þetta sagði hann í samtali við rússneska þingmenn í dag og manaði hann einnig Vesturlönd til að reyna að sigra Rússland á vígvellinum.
Forsetinn var vígreifur í ummælum sínum og sakaði Vesturlönd um að ætla að berjast við Rússa „til hins síðasta Úkraínumanns“. Það er í takt við önnur ummæli forsetans og annarra ráðamanna í Rússlandi um að Vesturlönd eigi í óbeinum átökum við Rússa í gegnum Úkraínu. „Við heyrum að þeir vilji sigra okkur á vígvellinum. Hvað getur maður sagt, reynið það bara,“ hefur fréttaveitan Reuters eftir forsetanum rússneska. Rússar réðust inn í Úkraínu þann 24. febrúar, eftir að hafa haldið því fram um margra vikna skeið að engin innrás stæði til. Meðal annars gerðu Rússar atlögu að Kænugarði, höfuðborg Úkraínu, en sú sókn misheppnaðist. Frá fundi Pútíns með þingmönnum í dag.AP/Alexei Nikolsky Rússar hafa gefið margar ástæður fyrir innrásinni sem flestar halda litlu vatni og ber innrásin öll merki landvinningastríðs. Rússar ætluðu sér til að mynda að leggja undir sig allan suðurhluta landsins en voru stöðvaðir áður en þeir komust að hafnarborginni Odessa. Mörg ummerki eru um að Rússar ætli sér að innlima þau landsvæði sem þeir hafa hertekið í Úkraínu. Pútín sjálfur sagði í síðasta mánuði að það væri réttur Rússa að stjórna Úkraínu og líkti hann sér við Pétur mikla. Þá hefur hann ítrekað sagt að Úkraína sé ekki raunverulegt ríki. Sjá einnig: Rússar byrjaðir að innlima hluta Úkraínu í Rússland Sagðir taka sér pásu eftir hernám Luhansk Eftir mikil átök í grennd við Kænugarð hörfuðu hersveitir Rússa og síðan þá hafa Rússar einbeitt sér að Luhansk- og Donetsk-héruðum í austurhluta Úkraínu. Þar hafa Rússar sótt hægt og rólega fram með því að beita yfirburðum sínum í stórskotaliði með markvissum hætti. Sjá einnig: Rússar halda uppi stöðugum árásum á íbúðahverfi Vesturlönd hafa útvegað Úkraínumönnum vopn, þjálfun og upplýsingar, svo eitthvað sé nefnt. Undanfarnar vikur hafa harðir bardagar geysað í austurhluta Úkraínu og eru bæði Rússar og Úkraínumenn sagðir hafa orðið fyrir gífurlegu mannfalli. Nú eru Rússar í austurhluta Úkraínu sagðir hafa tekið sér pásu og stöðvað sóknir sínar. Það hafi verið gert til að koma birgðum, hergögnum og liðsauka til þeirra hersveita sem hafa tekið þátt í átökunum skæðu síðustu vikur. Hugveitan Institute for the study of war segir að í gær hafi varnarmálaráðuneyti Rússlands ekki gefið neitt út um nýjar sóknir eða landvinninga og að það hafi verið í fyrsta sinn í 133 daga, eða frá því innrásin hófst. Staðbundnar og misheppnaðar árásir hafi þó átt sér stað. However, Russian forces still conducted limited and unsuccessful ground assaults across all axes on July 6. Such attempts are consistent with a Russian operational pause, which does not imply or require the complete cessation of active hostilities.— ISW (@TheStudyofWar) July 6, 2022 Tölur um mannfall eru á miklu reiki og hvorki Úkraínumenn né Rússar birta tölur um mannfall úr eigin röðum en báðar fylkingar eru taldar hafa misst þúsundir og jafnvel tugi þúsunda manna. Rússar hafa þar að auki misst um tíu herforingja. Þá hafa tugir þúsunda óbreyttra borgara einnig fallið í árásum Rússa. Sagði Rússa eiga mikið inni Þrátt fyrir hægagang innrásarinnar og fregnir af manneklu í rússneska hernum gaf Pútín í skyn að Rússar ættu mikið inni og hefðu í raun ekki beitt sér af fullum krafti enn. „Allir ættu að vita að, í rauninni, erum við rétt að byrja,“ sagði Pútín. Hann staðhæfði einnig að ríkisstjórn hans væri tilbúin til viðræðna og sagði að erfiðara yrði að hefja viðræður á nýjan leik, því lengur sem stríðið héldi áfram. Viðræður milli Úkraínumanna og Rússa fóru um þúfur fljótt eftir að Rússar hörfuðu frá Kænugarði og ódæði rússneskra hermanna gegn óbreyttum borgurum á svæðinu urðu ljós. Í yfirlýsingu Mannréttindastofnunar Sameinuðu þjóðanna sem birt var í vikunni sagði að árásir Rússa á óbreytta borgara í Úkraínu væru gegn alþjóðalögum. Búið væri að staðfesta rúmlega tíu þúsund dauðsföll borgara en í rauninni væru þau líklegast mun fleiri. Litlar líkur á viðræðum á næstunni Litlar líkur eru taldar á því að viðræður muni hefjast að nýju á næstunni þar sem báðar fylkingar telja sig geta unnið stríðið. Úkraínumenn vonast til þess að fjölmargir nýþjálfaðir hermenn og ný vopn frá Vesturlöndum muni gera þeim kleift að reka Rússa á brott og ná aftur tökum á þeim svæðum sem Rússar hafa hernumið. Sjá einnig: Vestræn þungavopn loks farin að draga úr mætti Rússa Mykhailo Podolyak, aðal samningamaður Úkraínu, tísti í vikunni þar sem hann sagði að meðal skilyrða fyrir vopnahléi væri að rússneskir hermenn hörfuðu, rússneskir stríðsglæpamenn yrðu framseldir til Úkraínu, að Rússar viðurkenndu fullveldi Úkraínu og greiddu ríkinu bætur. Ceasefire. Z-troops withdrawal. Returning of kidnapped citizens. Extradition of war criminals. Reparations mechanism. sovereign rights recognition...The Russian side knows our conditions well. #Peskov s boss may not worry: the time will come and we will record them on paper.— (@Podolyak_M) July 3, 2022
Úkraína Rússland Innrás Rússa í Úkraínu Hernaður Tengdar fréttir Hafa náð að standa af sér árásirnar hingað til Úkraínski herinn hefur náð að standa af sér árásir Rússa á borgina Slóvíansk í austurhluta Úkraínu. Rússar hafa skotið á borgina í um það bil tvær vikur segir Vadym Lyakh, borgarstjóri Slóvíansk. 7. júlí 2022 08:03 Rússar gerðu loftárásir um alla Úkraínu í gærkvöldi Loftvarnaflautur hljómuðu um alla Úkraínu í gærkvöldi og nótt. Héraðsstjórinn í Donetsk héraði hefur skorað á alla íbúa héraðsins að flýja í vesturátt undan stórskotaliðs- og loftárásum Rússa. 6. júlí 2022 11:50 Enn hart barist í Lysychansk og fólk hvatt til að flýja Ríkisstjóri Donetsk-héraðs hefur hvatt um 350 þúsund íbúa héraðsins til að flýja í ljósi yfirvofandi rússneskrar sóknar. Hann segir enn hart barist í útjaðri Lysychansk. 6. júlí 2022 10:35 Lysychansk fallin í hendur Rússa Úkraínuher hefur staðfest að borgin Lysychansk í austurhluta Úkraínu er nú fallin í hendur Rússa. Eftir afar harða bardaga síðustu daga hafa úkraínskar varnarsveitir neyðst til að hörfa frá borginni en áður höfðu Rússar lýst því yfir að borgin væri nú þeirra. 4. júlí 2022 07:19 Mest lesið Kvígurnar kvaddar eftir meinta kúvendingu Landsvirkjunar Innlent Björk og Rosalía í hart við íslenska ríkið Innlent Brutu dyrakarm til að bjarga heimilismanni Innlent Íbúar grátandi og í miklu uppnámi yfir flutningi Kaffistofunnar Innlent Staðsetning flugeldanna endurskoðuð vegna drengsins Innlent Ungur drengur fékk púður úr flugeldi í augað Innlent Þrír læknar hafa sagt upp á Akureyri vegna álags Innlent Ósætti um frysta sjóði Rússa: „Witkoff þarf á geðlækni að halda“ Erlent „Fasistinn“ og „kommúnistinn“ grófu stríðsöxina Erlent „Helvítis kerling“ sé eitt en hótun um íkveikju annað Innlent Fleiri fréttir Útskýrði næstu skref fyrir Kristrúnu og kollegum Forsetinn fyrrverandi í gæsluvarðhald af ótta við flótta Ósætti um frysta sjóði Rússa: „Witkoff þarf á geðlækni að halda“ Hættir á þingi vegna deilna við Trump Pútín tekur vel í „friðaráætlun Trumps“ „Fasistinn“ og „kommúnistinn“ grófu stríðsöxina „Annaðhvort þessir 28 liðir eða gífurlega erfiður vetur“ Skaut fimmtán skotum 25 sekúndum eftir að hann mætti Hóta að skera á flæði vopna og upplýsinga skrifi Selenskí ekki fljótt undir Drógu í land með að afnema bann við hakakrossum eftir fjölmiðlafár Svona lítur friðaráætlun Bandaríkjamanna og Rússa út Segja friðarverðlaunahafann á flótta undan „réttvísinni“ sæki hann verðlaunin Ísland sagt meðal ríkja sem mótmæla útvatnaðri ályktun COP30 Tugir látnir í flóðum í Víetnam Pras úr Fugees dæmdur í fjórtán ára fangelsi Aðgerðir í þágu jafnréttis munu jafngilda mannréttindabrotum Mynd eftir Fridu Kahlo sló met í New York Selenskí heldur ró sinni og hyggst ræða við Trump Kallar Demókrata landráðamenn og ýjar að hengingu Vilja fá Selenskí til að samþykkja „óskalista“ Pútíns Birta nærmyndir af halastjörnu úr öðru sólkerfi Breski raðnauðgarinn fær enn einn lífstíðardóminn Viðurkenndu að kviðdómendur sáu ekki ákæruskjalið Trump staðfestir Epstein-lögin Tugir látnir eftir árás á íbúðarhúsnæði Tilkynna yngri en 16 ára að reikningum að Facebook og Instagram verði lokað Reiði í Hvíta húsinu: „Demókratar munu sjá eftir þessu“ Sagðir vinna að nýju friðarsamkomulagi án Úkraínu og Evrópu Grunaður um að myrða stúlku sem fannst látin í skotti Teslu hans Loka síðustu ræðismannsskrifstofu Rússa Sjá meira
Hafa náð að standa af sér árásirnar hingað til Úkraínski herinn hefur náð að standa af sér árásir Rússa á borgina Slóvíansk í austurhluta Úkraínu. Rússar hafa skotið á borgina í um það bil tvær vikur segir Vadym Lyakh, borgarstjóri Slóvíansk. 7. júlí 2022 08:03
Rússar gerðu loftárásir um alla Úkraínu í gærkvöldi Loftvarnaflautur hljómuðu um alla Úkraínu í gærkvöldi og nótt. Héraðsstjórinn í Donetsk héraði hefur skorað á alla íbúa héraðsins að flýja í vesturátt undan stórskotaliðs- og loftárásum Rússa. 6. júlí 2022 11:50
Enn hart barist í Lysychansk og fólk hvatt til að flýja Ríkisstjóri Donetsk-héraðs hefur hvatt um 350 þúsund íbúa héraðsins til að flýja í ljósi yfirvofandi rússneskrar sóknar. Hann segir enn hart barist í útjaðri Lysychansk. 6. júlí 2022 10:35
Lysychansk fallin í hendur Rússa Úkraínuher hefur staðfest að borgin Lysychansk í austurhluta Úkraínu er nú fallin í hendur Rússa. Eftir afar harða bardaga síðustu daga hafa úkraínskar varnarsveitir neyðst til að hörfa frá borginni en áður höfðu Rússar lýst því yfir að borgin væri nú þeirra. 4. júlí 2022 07:19