Asher sást í stúkunni senda nasistakveðjur til stuðningsmanna Tottenham þar sem hann lyfti upp hægri hönd á meðan hann notaði vinstri vísifingur til að líkja eftir yfirvaraskeggi. Samkvæmt Chronicle hafa stuðningsmenn Tottenham og íbúar Norður-Lundúna sterk tengsl á meðal gyðinga.
„Þetta tilvik er einstakt, þegar Tottenham Hotspurs á í hlut vegna þess að liðið er staðsett í Norður-Lundúnum. Það er vel þekkt innan fótboltasamfélagsins að þar er sterkur bakgrunnur gyðinga á meðal stuðningsmanna,“ sagði saksóknari málsins, Brian Payne, í réttarsal í Newcastle í gær.
„Sá ákærði tók upp á því að framkvæma nasistakveðju þegar hann vissi, eða á að hafa vitað, að margir gyðingar voru á meðal stuðningsmanna gestaliðsins.“

Asher er fyrrum hermaður hjá breska hernum og stuðningsmaður Newcastle. Í réttarskjölum er sagt að hann hafi mætt á einn eða tvo fótboltaleiki á síðustu fimm árum. Hann hafi hins vegar haft mikinn áhuga á því að mæta á leik Newcastle gegn Tottenham.
„Hatursglæpir munu ekki fá að viðgangast innan samfélagsins okkar undir hvaða kringumstæðum sem er. Ég fagna því banni sem Asher fær,“ sagði rannsóknarlögreglumaðurinn hjá lögreglunni í Northumbria, Gillian Beecroft, áður en hann bætti við.
„Í norðaustur Englandi höfum við einhverja af ástríðufyllstu stuðningsmönnum landsins og mikill meirihluti þeirra geta hagað sér á knattspyrnuvöllum. Hins vegar getur lítill minnihluti eyðilagt skemmtun annara með svona hegðun. Þegar það gerist er nauðsynlegt að við notum allt í okkar verkahring til að sækja þá til saka.“
Asher verður bannaður á öllum leikvöngum Englands til ársins 2025. Gildir bannið í öllum deildum Englands sem og á landsleiki Englands. Mun Asher þá heldur ekki fá að ferðast á leiki enska landsliðsins á útivelli.