Innlent

Vinnuaflið sjálft eigi að leiða Alþýðusambandið

Ólafur Björn Sverrisson skrifar
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar.
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar. vísir/vilhelm

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, telur að með sigri nýfrjálshyggju frá níunda áratug 20. aldar hafi farið að fjara undan markvissri stéttabaráttu. Í kjölfarið hafi innleiðing og yfirtaka „sérfræðingastétta“ átt sér stað innan verkalýðshreyfingarinnar.

Sólveig Anna ræddi kreppuna í verkalýðshreyfingunni á Sprengisandi í morgun.

„Þetta snýst fyrst og fremst um lýðræði. Hvort við trúum því að vinnuaflið sjálft eigi að leiða stefnuna og ASÍ vinni eftir þeirri stefnu en ekki að skipanirnar komi að ofan,“ segir Sólveig Anna í upphafi viðtals síns. Þetta segir hún stóra viðfangsefni verkalýðshreyfingar núna.

Hlusta má á viðtalið við Sólveigu í heild sinni í spilaranum hér að neðan.

„Það er þess vegna sem við höfum alfarið hafnað þessu SALEK módeli, því þar finnst hugmyndafræði um að það sé hægt að ná stöðugleika af því allir ætli að passa saman upp á hófsemdina. Það sem er hins vegar öllum augljóst er að þessu er þröngvað upp á stétt vinnandi fólks á meðan stjórnendur fyrirtækja virða þetta með engum hætti; ójöfnuður eykst og svo framvegis,“ segir Sólveig varðandi nálgun í kjaraviðræðum.

SALEK er skammstöfun fyrir samstarf um launaupplýsingar og efnahagsforsendur kjarasamninga. SALEK er afrakstur vinnu sem hófst 2013 með úttekt helstu stéttarfélaga í samstarfi við Samtök atvinnulífs og samninganefnda ríkis og sveitarfélaga. Þar var lögð á heildarendurskoðun samningalíkansins.

Vantaði þekkingu í fyrstu hjá ASÍ

Hún segir enga viðleitni frá mörgum félögum innan ASÍ að þurfa að endurnýja umboð sitt til að leiða félagið. Með því að þurfa að sigra kosningar, segir Sólveig, fáist kraftur til að knýja fram raunverulegar kjarabætur.

„Ég fullyrði að ef hnignun hefði ekki átt sér stað innan vébanda ASÍ værum við ekki á þessum stað.“

Varðandi stéttasamvinnu og núning við fráfarandi forseta og BHM sem dæmi segir Sólveig að bandalagið hafi unnið gegn vinnandi fólki. Í átökunum innan ASÍ segir Sólveig Anna að hún hafi ekki haft nógu mikla þekkingu þegar hún kom þar inn fyrst.

„Svo áttaði ég mig á því að hörðustu stéttaátökin voru þarna inni þegar ég mætti mikilli fyrirstöðu frá hálaunahópum sem vildu koma fram með þá kröfu að konurnar með 300 þúsund og kallarnir með 1,2 milljónir ættu að fá það sama í skattalækkanir.“


Tengdar fréttir

Fáir sigur­vegarar í kjara­samnings­við­ræðum í óða­verð­bólgu

Átökin innan verkalýðshreyfingarinnar komu framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins ekki á óvart en hann segir það heldur ekki til hagsbóta fyrir samtökin að stjórn Alþýðusambandsins sé í lausu lofti. Ekki virðast samtökin líta svo á að mikið svigrúm sé fyrir launahækkanir í haust.

Mikil­vægt að taktur náist fyrir komandi kjara­samninga

Formaður Bandalags háskólamanna segir mikilvægt að taktur náist innan Alþýðusambands Íslands fyrir komandi kjaraviðræður. Þær setji öðrum aðilum verkalýðshreyfingarinnar ramma. Náist sá taktur ekki gæti opinberi markaðurinn þurft að taka af skarið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×