Þetta kom fram á blaðamannafundi í Varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna í dag. Þar kom einnig fram að Bandaríkjamenn telja Rússa hafa leitað til ríkisstjórna Írans og Norður-Kóreu eftir fleiri sprengikúlum og eldflaugum fyrir stórskotalið.
Sérfræðingar ráðuneytisins telja, samkvæmt frétt Reuters, að Rússar muni byrja að lenda í vandræðum í byrjun næsta árs, fái þeir ekki skotfæri annarsstaðar frá. Mögulegt væri að þeir gætu einnig notað enn eldri skotfæri en það felur í sér ákveðna áhættu. Meiri líkur séu á því að þær sprengikúlur springi ekki þegar þær lenda.
Rússar hafa fengið ódýra en skilvirka sjálfsprengidróna frá Íran. Þeir eru einnig sagðir vilja frá mikið magn stýriflauga frá Íran og hafa boðið ráðamönnum þar umfangsmikla hernaðaraðstoð og annarskonar stuðning í staðinn, samkvæmt yfirvöldum í Bandaríkjunum, Bretlandi og víðar.
Stórskotalið mjög mikilvægt
Stórskotalið hefur reynst gífurlega mikilvægt í átökunum í Úkraínu og skjóta báðar fylkingar tugum þúsunda skota í hverjum mánuði. Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, sagði í ávarpi á fundi G-7 ríkjanna svokölluðu í dag að Rússar hefðu enn yfirburði gegn Úkraínumönnum þegar kæmi að stórskotaliði og eldflaugum og stýriflaugum.
Ríkisstjórnir Vesturlanda hafa beðið vopnaframleiðendur um að bretta upp ermarnar og auka framleiðslugetu á vopnum og skotfærum.
Sjá einnig: Vopnaframleiðendur beðnir um að bretta upp ermarnar
Bandaríkjamenn hafa einir sent rúmlega milljón sprengikúlur til Úkraínu. Þá eru ekki talin með þau skotfæri sem aðrir bakhjarlar Úkraínu hafa sent. Skotfærasendingar til Úkraínu hafa komið niður á birgðum ríkja Atlantshafsbandalagsins.

Þá tilkynntu Bandaríkjamenn nýverið að þar stæði til að margfalda framleiðslugetu á skotfærum fyrir stórskotalið á næstu árum. Meðal annars stæði til að þrefalda framleiðslugetuna þegar kæmi að 155 millimetra sprengikúlum, sem er hefðbundin hlaupvídd stórskotaliðs NATO.
Það myndi auka framleiðslugetu á 155 mm skotum í Bandaríkjunum úr um fjórtán þúsund skotum á mánuði í um fjörutíu þúsund árið 2025. Til samanburðar er áætlað að Úkraínumenn noti minnst níutíu þúsund sprengikúlur og eldflaugar í hverjum mánuði. Rússar hafa líklega verið að nota enn meira en það.
Selenskí kallaði eftir frekari vopnasendingum til Úkraínu og bað, samkvæmt AP fréttaveitunni, sérstaklega um langdrægari eldflaugar, nútíma skriðdreka, stórskotaliðsvopn og loftvarnarkerfi til að verjast stýriflauga og drónaárásum Rússa. Þær árásir hafa valdið miklum skaða á raforku- og dreifikerfi Úkraínu á undanförnum vikum.
Forsvarsmenn Evrópusambandsins tilkynntu í dag tveggja milljarða evra aðstoðarpakka til Úkraínu.
Sagði Rússum að fara fyrir jól
Í ávarpi sínu kallaði Selenskí einnig eftir því, að Rússar hörfuðu út fyrir alþjóðlega viðurkennd landamæri Úkraínu og það fyrir jól. Eftir það væri hægt að ræða langvarandi friðarsamkomulag.
Rússar hafa lýst yfir ólöglegri innlimun á fjórum héruðum Úkraínu, að Krímskaga ónefndum, og gert breytingar á stjórnarskrá Rússlands um að þau héruð tilheyri Rússlandi. Það er þrátt fyrir að Rússar hafi ekki fulla stjórn á neinu þessara héraða og hafi ekki sótt fram gegn Úkraínumönnum svo máli skiptir í nokkra mánuði.
Selenskí sagði að svar Rússa við þessu ákalli sínu myndu sína fram á hvort Rússar hefðu nokkurn áhuga á friði.
Leiðtogar G-7 ríkjanna tóku undir það og sögðu að Rússar gætu strax bundið enda á stríðið með því að hörfa frá Úkraínu. Þeir lýstu því einnig yfir að myndað yrði nýtt kerfi til að styðja Úkraínumenn fjárhagslega til bæði skamms og langs tíma.