Gríðarleg ánægja með Skaupið sem sumir segja það besta frá upphafi Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 1. janúar 2023 11:52 Lögreglumenn á Akureyri að handtaka nemendur sem fjölluðu með gagnrýnum hætti um Samherja var á meðal atriða í Skaupinu í ár. RÚV Mikil ánægja virðist hafa verið með Áramótaskaupið í ár í leikstjórn Dóru Jóhannsdóttur. Landsmenn hafa sem fyrr margir hverjir deilt skoðun sinni á sjónvarpsþættinum árlega á samfélagsmiðlum. Í fljótu bragði virðast mun fleiri ánægðir en ósáttir.
Saga Garðarsdóttir var yfirhöfundur Skaupsins en auk hennur skrifuðu Friðgeir Einarsson, Vigdís Hafliðadóttir, Jóhann Kristófer Stefánsson og Sigurjón Kjartansson handritið auk Dóru. Hörður Ágústsson, kenndur við MacLand, tengir við atriðið um manninn sem les fréttir um fólk sem hann hefur aldrei heyrt um, fullur af hneykslan. Persónuleg árás á mig #skaupið pic.twitter.com/zgB4dPHrMa— Hörður Ágústsson (@horduragustsson) December 31, 2022 Edda Falak hlaðvarpsstjórnandi Eigin kvenna fékk nýtt viðurnefni; Edda Fúlegg. Margir hlógu. Þeir elska mig þessir karlar— Edda Falak (@eddafalak) December 31, 2022 Tómas Valgeirsson kvikmyndarýnir var ánægður. Það hefur verið þjóðarsport lengi vel að drulla yfir skaupið, en þetta er - sorry to say - bara next level gott stöff.Til lukku allir sem að þessu komu. Fast skotið. Fjölbreytt efni. Mikið lol'að. #skaupið— Tommi Valgeirs (@TommiValgeirs) December 31, 2022 Sömu sögu er að segja af Sigmari Vilhjálmssyni. Besta skaup síðan 2013! #skaupið— Simmi Vil (@simmivil) December 31, 2022 Flokkur fólksins fékk að finna fyrir því eftir skandala ársins. Maggi Peran fagnaði þeim atriðum. BESTA SKAUPSATRIÐI EVER. Pottþétt Flokkur fólksins 😂😂 #Skaupið— Maggi Peran (@maggiperan) December 31, 2022 Logi Geirsson handboltakempa virðist á því að frábært Skaup sé upptakturinn á spennandi hlutum á HM í handbolta í janúar. Frábært áramótaskaup 2022 🔥Núna gerast hlutirnir og það byrjar með handboltalandsliðinu 2023 🏆Kæru landsmenn 2023 verður æðislegt.— Logi Geirsson (@logigeirsson) December 31, 2022 Kristján Óli Sigurðsson fótboltaspekúlant virðist ekki hafa hlegið mikið að Skaupinu. Hann vill Hannes Þór Halldórsson í leikstjórastólinn og Leynilögguhópinn í handrit og leik. Ömurlegt Skaup.Afhenda Hannesi Halldórssyni og Cop Secret genginu lyklnana að Skaupinu 2023. Takk.— Kristján Óli Sigurðsson (@kristjanoli) December 31, 2022 Guðmundur Hilmarsson blaðamaður er heldur ekki sáttur. Skaupið ekki að skora mörg stig á mínu heimili. Gef því 3 af 10 í einkunn.😥— Guðmundur Hilmarsson (@GummiHilmars) December 31, 2022 Hörður Snævar Jónsson, íþróttafréttamaður og kollegi Guðmundar á Fréttablaðinu, var enn ósáttari. Skaupið fær 2,5 í einkunn hjá honum. 2,5— Hörður S Jónsson (@hoddi23) January 1, 2023 Fanney Birna Jónsdóttir lögfræðingur og fjölmiðlakona var ánægð með Skaupið. Djöööfull byrjar þetta vel! #skaupið— Fanney Birna (@fanneybj) December 31, 2022 Hildur Ýr Ísberg hönnuður var í skýjunum með Skaupið og sömuleiðis börnin hennar sem fannst fjögurra ára stelpan sem vildi fá kött og fugl í lokalagið vera stjarna kvöldsins. Geggjað skaup! Allt fyndið. ALLT! Beitt og snjallt. Til hamingju aðstandendur. Börnin mín: FJÖGURRA ÁRA STELPAN SEM BAÐ UM FUGL OG KÖTT ER STJARNA ÞESSA KVÖLDS QUEEN GEITIN ELSKA HANA! #skaupið— Hildur Ýr Ísberg (@Hildurisberg) December 31, 2022 Sóley Tómasdóttir kvenréttindakona hefur séð margt Skaupið. Þetta ber af að hennar mati. Besta skaup sem ég hef séð í áratugi! #skaupið— Sóley Tómasdóttir (@soleytomasar) December 31, 2022 Kolbrún Birna lögfræðingur fagnaði innkomu Diddú í lokalaginu. Óperusöngkonan spilaði enda á loftgítar auk þess að syngja. Engin betri leið til að enda fullkomið Áramótaskaup en með Diddú minni að taka gítarsóló #skaupið— Kolbrún Birna (@kolla_swag666) December 31, 2022 Viðar Halldórsson, prófessor í félagsfræði, gefur Skaupinu háa einkunn. Mjög gott! #skaupið @RUVohf— Viðar Halldórsson (@VidarHalldrsson) December 31, 2022 Svo virðist sem pokaatriðið í Skaupinu, þar sem Saga Garðas er í hlutverki konu sem skammast sín niður í tær yfir að þurfa að kaupa poka, hafi slegið í gegn. This sketch about reusable bag shame is a work of genius #skaupið pic.twitter.com/7atQO9xgcc— Duncan (@shaksper) January 1, 2023 Ólöf Tara í Öfgum elskaði atriðið þar sem slaufaðir karlmenn báru saman bækur sínar. Félag kanselaðra var svo mikið fóstbræðra mood… loved it😂 #skaupið— Ólöf Tara🔞 (@OlofTara) December 31, 2022 Malín Brand var í skýjunum með atriðið þar sem Þorsteinn Bachmann er ósáttur með að pylsa á Bæjarins bestu, fars í svínahúð, kosti 600 krónur. Pylsa: Fars í svínahúð! Snilld!#skaupið #rúv #fars pic.twitter.com/2bCg45Fb3c— Malin Brand (@mallabrand) December 31, 2022 Jonathan Gerrlach vefhönnuður hló mikið. Geggjað. Beitt, fyndið og hlaðið okkar bestu leikurum #skaupið— Jonathan Gerlach (@kastaniubrunn) December 31, 2022 Ragnheiður Júlíusdóttir handboltakona gefur Skaupinu fullt hús. 10/10 #skaupið 😂— Ragnheiður Júl (@RagnheidurJ) December 31, 2022 Karl Pétur Jónsson bæjarfulltrúi var a sama máli. Besta skaup allra tíma #Skaupið— Aðalheiður Ámunda (@Alla_Amunda) December 31, 2022 Margir fögnuðu komu Spaugstofunnar í lokaatriðið. #skaupið hefði ekki verið jafn gott án þessu atriði pic.twitter.com/AhEMCLuUAV— Arnmundur Sighvatsson (@Arnmund) January 1, 2023 Borgarfulltrúar í Love Island var atriði sem sló í gegn. Love Island atriðið 10/10 í #skaupið— Hafrún Olgeirsdóttir (@hafrunolg) December 31, 2022 Halldóra Mogensen þingmaður Pírata þakkaði kærlega fyrir sig. Epískt áramótaskaup. Takk fyrir mig og gleðilegt nýtt ár 🎉❤️#skaupið— Halldóra Mogensen (@Halldoramog) December 31, 2022 Aðalheiður Ámundadóttir fréttakona sparaði ekki stóru orðin. Besta skaup allra tíma #Skaupið— Aðalheiður Ámunda (@Alla_Amunda) December 31, 2022 Haraldur Ingi Þorleifsson fór með hlutverk í Skaupinu og varpar fram spurningunni hvort um hafi verið að ræða besta Skaup allra tíma? Besta #skaupið frá upphafi? pic.twitter.com/Ze328gG4dC— Halli (@iamharaldur) December 31, 2022 En hvað fannst þér? Láttu okkur vita í ummælakerfinu að neðan.
Áramótaskaupið Bíó og sjónvarp Ríkisútvarpið Áramót Mest lesið „Verið ekki að sjúga lítil typpi því þið verðið hrukkóttar“ Lífið Musk æstur í Reðasafnið Lífið Plaströrum um að kenna, ekki litlum typpum Lífið Lovísa Rós er Ungfrú Ísland Teen Lífið „Ég hef ekki trú á öðru en að við lifum þetta af“ Bíó og sjónvarp „Nú dýrka ég að vera vaxin eins og fæðing Venusar“ Tíska og hönnun Gervigreindarsvikarar reyna að hagnast á íslenskum stjörnum Tónlist Ása og Leo héldu tvöfalda skírnarveislu Lífið „Pylsusala“ á Lækjartorgi á kvennafrídaginn Lífið Heitasta listapar landsins á djamminu Lífið Fleiri fréttir Líf, fjör og einmanaleiki Plaströrum um að kenna, ekki litlum typpum Bleikir og hollir molar að hætti Jönu Musk æstur í Reðasafnið Ása og Leo héldu tvöfalda skírnarveislu Tróð matnum upp í sig til að reyna fá andstæðinga sína til að hlæja „Verið ekki að sjúga lítil typpi því þið verðið hrukkóttar“ „Pylsusala“ á Lækjartorgi á kvennafrídaginn Lovísa Rós er Ungfrú Ísland Teen Gerðið verði besti staðurinn nálægt borginni til að skoða stjörnur Heitasta listapar landsins á djamminu „Er ekki hrædd við að vera ég sjálf“ Sveinn Andri og María Sigrún mættu á frumsýninguna „Sextán ára stelpa hefur lítið að gera við svona háa upphæð“ Sýna(r)brjóstin, sýna stuðning Brjánn ávarpaði alla áhorfendur leiksins rétt fyrir upphafsflautið Innlit í þriggja hæða veitingastaðinn Bryggjuhúsið sem er í húsi frá 1863 Björgvin Franz kaupir 36 fermetra íbúð í miðbænum Innlit: „Ég bý í draumahúsinu“ „Gerði grín að líkamanum mínum og sagði að ég ætti að tala minna“ Óttast að hann sé fyrsta fórnarlamb flugunnar Fögnuðu fallegri og óvæntri vináttu Svikarar höfðu fjórar milljónir af Aroni Can „Setti sjálfa mig í fyrsta sæti og hef aldrei verið hamingjusamari“ Hvetur hávaxnar stelpur til að vera stoltar af hæð sinni Stjörnulífið: „Bið ekki um meira“ „Við María eigum rosalega fallegt samband og erum þakklát hvort fyrir annað“ Nóa-Siríus fjölskyldan fyrrverandi selur súkkulaðihöll Fær ógeðistilfinningu eftir fullnægingu Hugleiki Dagssyni hent út af Facebook Sjá meira