„Christmas spirit my dick“ Sævar Daníel Kolandavelu skrifar 3. janúar 2023 15:00 „Christmas spirit my dick,“ sagði Jason, eiginmaður bestu vinkonu minnar. Hann var búinn að vera skemmta mér með pabbabröndurum og mæla með bíómyndum við mig þar sem ég lá í örkumla kuðli í rúmi átta ára dóttur hans, en ég sagt honum að ég ætti erfitt með að horfa á bíómyndir vegna ástand míns. Hann var að vísa til heilbrigðiskerfisins á Íslandi. „Just let me know if you need more one-liners for your article,“ sagði hann og fór að baka súkkulaðismákökur fyrir mig. Hann hitti naglann á höfuðið óvart. Staða máls míns í heilbrigðiskerfinu er orðin svo súr-realísk að það er ekkert nema endalausir one-linerar, sem kannski segja meira um það en nákvæm útskýring. „Háskólaprófessor lýgur upp á sjúkling í sjúkraskýrslu“ „Framkvæmdastjóri lækninga heilsugæslu á höfuðborgarsvæðinu tilkynnir sjúklingi sérstaklega niðurstöður myndrannsóknar sem aldrei var framkvæmd.“ „Læknir man ekki einkenni sjúklings eftir 20 heimsóknir.“ „Maður mætir 13 sinnum í röð á bráðamóttöku og kvartar undan því að hausinn á honum sé að detta af án þess að myndataka sé framkvæmd.“ „Ósjálfbjarga, heimilislausum manni í neyðarástandi hótað að vera útskrifaður með lögregluvaldi eftir að spítali neitar að yfirfara mál hans.“ „Læknir vísar í gögn á spítala sem ekki eru til sem grundvöll meðferðaráætlunar sem gengur í bága við vísindalega samþykkt viðmið.“ „Heila og taugaskurðlæknir greinir mann sem segist líða eins og hann sé að detta úr lið „með þráhyggju“ en geðrannsókn geðlæknis greinir enga geðsjúkdóma, bráðageðveiki eða ranghugmyndir.“ „Læknir tekur ákvörðun um að trappa sjúkling niður af ópíóðaverkjalyfjum 5x meira og 4x hraðar en ráðlagt er eftir að honum finnst hann ekki nógu samvinnuþýður.“ „Spítali neitar að taka við gögnum erlendra sérfræðinga eftir að hafa mistekist að leysa mál en skipuleggur meðferðaráætlun byggða á greiningarferli sem hann hefur ekki framkvæmt.“ „Læknir segir aðspurður um útskriftarástæðu "við þurfum bara skófla fólki út og halda þessu gangandi.“ „Sjúklingur tekur hljóðupptökur sem sýna hvernig spítali neitar að samþykkja að einkennalýsingu, sögu atburða, staðfest gögn hjá sérfræðingum og segir honum hann „þurfi sjálfur að taka eitthvað á sig“ þegar hann krefst svara um hótanir um valdbeitingu fyrir að hafa upplýst lækni um hann sé ósjálfbjarga.“ Og svo framvegis. Alla vegu síðan og áfram ef draga má lærdóm af fortíðinni. Ég er núna í herbergi átta ára gamallar stelpu, sem sefur upp í hjá mömmu sinni og eiginmaður hennar á sófanum. Þau reka fyrirtæki sem ert eitt hið virtasta í þeirra fagi, engu að síður er búið að hækka skattanna svo mikið að þau eru eiginlega í mínus þó það gangi í raun frábærlega, og núna eru þau byrjuð að vinna í sjálfboðaliðavinnu störfin sem skattarnir áttu að fara í. Að hjúkra mér meðan ég er ósjálfbjarga að örkumlast. Þetta herbergi er fullt af prinsessudóti og búið að naglalakka mig í bak og fyrir, sem er ágætisskiptidíll fyrir okkur bæði sýnist mér. Sú átta ára fær að þjálfa myndlistarhæfileikanna og ég hef vingjarnlegt andlit nálægt. Það eru verri staðir til að deyja á. Það er sorglegt að deyja úr einhverju sem auðveldlega er hægt að laga. Mig langar mest að útskýra í góðu tómi hvert skref málsins svo það afhjúpist skýrt, því það er í raun átakalegra en hægt er að lýsa snöggt. Snertir líf þúsunda. Ég hef hinsvegar tekið eftir því að minni upplýsingar eru meiri nú til dags, ef maður má nota newspeak, svo ef til vill er betra að vekja forvitni og segja söguna við næsta tækifæri. Ég vona bara ég fái það, einhver vilji hlusta, því ég er í alvöru ekki langt frá því að deyja. Eða „Ekki í bráðri hættu“ eins og það hljómar á newspeak. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Heilbrigðismál Landspítalinn Mest lesið Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Sjá meira
„
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar