Innlent

Þing­maður stefnir ríkinu og fer fram á skaða­bætur

Atli Ísleifsson skrifar
Ásthildur Lóa Þórsdóttir, þingmaður Flokks fólksins og formaður Hagsmunasamtala heimilanna, í þingsal.
Ásthildur Lóa Þórsdóttir, þingmaður Flokks fólksins og formaður Hagsmunasamtala heimilanna, í þingsal. Vísir/Vilhelm

Ásthildur Lóa Þórsdóttir, þingmaður Flokks fólksins, og eiginmaður hennar, Hafþór Ólafsson, hafa ákveðið að stefna ríkinu vegna fjárhagslegs tjóns sem þau segjast hafa orðið fyrir „vegna lögbrota embættis sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu“ í tengslum við uppboð á heimili þeirra vorið 2017.

Ásthildur Lóa, sem jafnframt er formaður Hagsmunasamtaka heimilanna, greinir frá þessu í tilkynningu sem hún sendi á fjölmiðla í morgun.

Þar kemur fram að lögmanni þeirra hjóna, Sævari Þór Jónssyni, hafi verið falið að sækja bætur vegna málsins og hafi erindi verið sent ríkislögmanni. Þau vilja meina að ríkið hafi, vegna lögbrota sýslumanns, haft rúmar tíu milljónir króna af þeim hjónum sem hafi þess í stað runnið til Arion banka.

„Málavextir eru þeir að þrátt fyrir ábendingar, sinnti sýslumaður ekki lögbundnum skyldum sínum við úthlutun söluverðs eftir uppboð á heimili okkar. Þar bar sýslumanni lögum samkvæmt að taka tillit til fyrningar vaxta. Það var ekki gert og fyrir vikið úthlutaði sýslumaður Arion banka hærri fjárhæð en bankinn átti tilkall til lögum samkvæmt, á kostnað okkar hjóna. Í nær tveggja ára málaferlum okkar við Arion banka vegna þessa, þar sem öll réttarúrræði voru tæmd, fékkst aldrei úrskurður dómstóla um fyrningu vaxta, sem þó var eina málsástæðan. Enginn úrskurður er í raun sigur fyrir bankann.

Í öllu ferlinu var ítrekað brotið á okkur og við fengum aldrei réttláta málsmeðferð.

Eftir stendur að Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu tók meðvitaða ákvörðun um að sinna ekki lagaskyldu sinni og hafði þannig af okkur 10,6 milljónir króna sem runnu í staðinn til Arion banka. Ríkið er því skaðabótaskylt,“ segir í yfirlýsingunni frá þingmanninum.

Ásthildur Lóa tók sæti á þingi fyrir Flokk fólksins árið 2021. Hún er þingmaður Suðurkjördæmis. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×