Norðmenn vísa fimmtán rússneskum sendiráðsstarfsmönnum úr landi Atli Ísleifsson skrifar 13. apríl 2023 10:37 Anniken Huitfeldt er utanríkisráðherra Noregs. EPA Norsk stjórnvöld hafa ákveðið að vísa fimmtán starfsmönnum rússneska sendiráðsins úr landi.
Frá þessu segir í tilkynningu frá norska utanríkisráðuneytinu. Þar segir að starfsmennirnir séu í raun starfsmenn rússneskrar leyniþjónustu. Starfsmennirnir þurfa að yfirgefa Noreg sem fyrst og segir í tilkynningunni að norsk yfirvöld muni ekki veita starfsmönnum rússneskra yfirvalda sem starfa við leyniþjónustu vegabréfsáritun. Ákvörðun norskra stjórnvalda er sögð byggja á þeirri nýju öryggispólitísku stöðu sem uppi sé sem hafi leitt til aukinnar ógnar frá Rússlandi. Utanríkisráðherrann Anniken Huitfeldt segir að Norðmenn muni ekki heimila veru rússneskra leyniþjónustumanna í Noregi sem séu þar í skjóli stöðu sem erindrekar, að því er segir í frétt NRK. Norsk stjórnvöld eru sögð hafa lengi fylgst með umræddum fimmtán sendiráðsstarfsmönnum. Norðmenn vísuðu þremur rússneskum leyniþjónustumönnum úr landi í apríl á síðasta ári, nokkrum vikum eftir upphaf innrásar Rússa í Úkraínu.
Noregur Rússland Mest lesið Sæstrengur milli Eistlands og Finnlands rofinn Erlent Töldu að ævilöng vesælmennska biði „barnanna á mölinni“ Innlent Girnist Panama-skurðinn, Grænland og Kanada Erlent Erfiður tími þegar dóttirin kom út sem trans Innlent Þau kvöddu á árinu 2024 Erlent Dregur úr vindi en áfram vetrarveður Veður Jólakindin Djásn á Stokkseyri Innlent Standa vaktina á jóladag: „Þetta er bara eins og hina dagana“ Innlent Alls kyns jól um allan heim Erlent Þak fauk nánast af hlöðu Innlent Fleiri fréttir Sæstrengur milli Eistlands og Finnlands rofinn Girnist Panama-skurðinn, Grænland og Kanada Alls kyns jól um allan heim Um helmingur farþega komst lífs af Rússar fagna vel heppnaðri árás á orkuinnviði Úkraínu Þau kvöddu á árinu 2024 Dyr Péturskirkjunnar standa opnar Farþegaflugvél hrapaði í Kasakstan Kristnir mótmæla í Sýrlandi vegna brennu á jólatré Samstarfsmaður Escobar frjáls ferða sinna Kraumar í fjarhægriflokknum sem árásarmaðurinn studdi Clinton lagður inn á sjúkrahús Lýsti yfir sakleysi sínu Grunur um alvarlega misþyrmingu barna Segir Grænland ekki falt Trump setur eignarhald Grænlands aftur á dagskrá Brenndi konu til bana í neðanjarðarlest í New York Sádar sagðir hafa sent fjórar viðvaranir Skutu niður eigin herþotu yfir Rauðahafi Færeyingar fagna tvennum göngum Íslenskur skurðlæknir hlúir að fólki í Magdeburg Mótmælt á meðan minningarathöfn stóð yfir „Þetta var gjörsamlega hræðilegt“ Fimm látnir og tvö hundruð særðir Koma naumlega í veg fyrir stöðvun ríkisreksturs Fimmtugur geðlæknir ók bílnum Heyrðu í þyrlum og öskrum út um gluggann Bifreið ekið á hóp fólks á jólamarkaði Hefja aftur leit að MH370 rúmum tíu árum eftir hvarfið Vara við upprisu ISIS Sjá meira