Hamas-liðar vilja þar að auki ekki útskýra hvernig komist var að þeirri niðurstöðu að um fimm hundruð óbreyttir borgarar hefðu fallið í sprengingunni.
Í frétt New York Times er rifjað upp að innan við klukkustund eftir að sprengingin varð við sjúkrahúsið þann 17. október, höfðu forsvarsmenn Hamas-samtakanna lýst því yfir að Ísraelar hefðu varpað sprengju á sjúkrahúsið og minnst fimm hundruð manns hefðu fallið. Síðan þá hefur tala látinna farið í allt að 833 en endaði í 471, samkvæmt Hamas.
Um morguninn kom í ljós að sprengingin hafði orðið á bílastæði við sjúkrahúsið.
Sprengjubrot hvergi sjáanleg
Útlit er fyrir að þegar ljósmyndara og tökumenn bar að garði um morguninn, hafi möguleg sprengjubrot eða brak úr eldflauginn sem talin er hafa fallið til jarðar verið fjarlægt.
Lítill og grunnur gígur fannst á bílastæðinu og var hann umkringdur brunnum bílum. Sérfræðingar segja ólíklegt að hann hafi orðið til við loftárás, vegna þess hve lítill hann sé.
Sprengjur eins og Ísraelar hafa varpað eða skotið á Gasaströndina í miklu magni skilja eftir sig ummerki. Besta leiðin til að bera kennsl á þær er að finna sprengjubrot. Sprengjur eru hannaðar til að meðal annars dreifa sprengibrotum og valda þannig skaða. Þær eru ekki hannaðar til að gufa upp.
Á myndefni sem tekið hefur verið við sjúkrahúsið, hafa engin ummerki um sprengjubrot sést.
Blaðamenn NYT báðu um að fá að skoða vísbendingar sem bentu til árásar Ísraela en þeirri beiðni var hafnað.
„Eldflaugin leystist upp eins og salt í vatni,“ sagði háttsettur meðlimur Hamas. „Hún gufaði upp. Það er ekkert eftir.“
Annar embættismaður sagði Hamas-liða ekki skylduga til að sýna brot úr öllum eldflaugum sem drepa Palestínumenn.
Flest bendir til þess að að sprengingin hafi orðið vegna bilaðrar eldflaugar sem verið var að skjóta frá Gasa. Hún hafi bilað skömmu eftir flugtak, fallið til jarðar og lent á bílastæðinu við sjúkrahúsið.
Eldflaugar Hamas-samtakanna eru að mestu leyti heimagerðar og úr hlutum sem finnast á Gasaströndinni, eins og ljósastaurum og vatnslögnum. Sérfræðingar segja algengt að þær bili við flugtak. Ísraelski herinn segir það hafa gerst að minnsta kosti 550 sinnum að eldflaug frá Gasaströndinni bilar og fellur til jarðar þar.
Since Oct 7, the IDF has identified about 550 failed launches fired by Hamas that landed inside Gaza.
— Israel Defense Forces (@IDF) October 21, 2023
The Hamas terrorist organization launches rockets from civilian infrastructure, areas and buildings in Gaza, injuring their own civilians. pic.twitter.com/qDmiKGD0bx
Deila einnig um mannfall
Burtséð frá því hver ber ábyrgð á sprengingunni við sjúkrahúsið, er ljóst að linnulausar loftárásir Ísraela hafa lagt heilu hverfin í rúst, stökkt hundruðum þúsunda á flótta og banað þúsundum. Þá hafa Ísraelar, þar til fyrir skömmu, meinað sendingar neyðaraðstoðar til Gasa.
Þessi sprengingin leiddi þó til umfangsmikilla mótmæla gegn Ísraelum og Bandaríkjamönnum og leiddi til þess að stjórnendur nokkurra Arabaríkja neituðu að funda með Joe Biden, forseta Bandaríkjanna, degi eftir sprenginguna.
Talsmenn Hamas-samtakanna, sem hafa stjórnað Gasaströndinni frá 2005, segja rúmlega 4.300 Palestínumenn hafa fallið í loftárásum Ísraela frá 7. október og að um fjörutíu prósent þeirra hafi verið börn.
Ísraelar segja Hamas-liða skýla sér bakvið óbreytta borgara. Þeir skjóti eldflaugum frá byggðum svæðum, grafi göng undir þau og reisi bækistöðvar.
Sjá einnig: Fleiri hafa ekki verið drepnir á Gasaströndinni í fimmtán ár
Þetta mannfall meðal óbreyttra borgara hefur grafið undan alþjóðlegum stuðningi við Ísraela og ráðamenn í Ísrael segja það markmiðið. Ásakanir Hamas vegna sprengingarinnar við sjúkrahúsið sé liður í áróðursherferð sem ætlað sé að grafa undan réttmæti aðgerða Ísraela í kjölfar árásarinnar 7. október.
Þá féllu um fjórtán hundrað manns, langflestir þeirra óbreyttir borgarar, og rúmlega tvö hundruð var rænt.