Strand í viðræðum um krónutöluhækkun Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 18. janúar 2024 09:36 Eyjólfur Árni Rafnsson formaður SA segir viðræður hafa gengið vel en varar við krónutöluhækkun sem forsendu viðræðna. Vísir/Vilhelm Forsvarsmenn Samtaka atvinnulífsins vara við því að krónutölunálgun sé höfð að leiðarljósi við gerð kjarasamninga. Það valdi því að kostnaður sé vanmetinn við upphaf kjaraviðræða. Breiðfylking stærstu stéttarfélaga og landssambanda á almennum vinnumarkaði segir Samtök atvinnulífsins hafna nálgun fylkingarinnar um þjóðarsátt.
Fulltrúar Breiðfylkingarinnar svonefndu sögðu í tilkynningu í gær að eftir farsælar viðræður í upphafi hafi farið fram tímafrek og á köflum mjög tæknileg umræða milli samningsaðila um reiknilíkön. „Í þeim umræðum hafa SA smátt og smátt fjarlægt sig frá upphaflegum, jákvæðum viðbrögðum sínum. SA hafa fengið það út að tillögur Breiðfylkingarinnar séu of kostnaðarsamar og í staðinn sett fram tillögur sem eru langt neðan við þær hóflegu hækkanir sem Breiðfylkingin lagði til í upphafi viðræðna,“ sagði í tilkynningu sem fimm formenn landssambanda og stéttarfélaga kvittuðu undir. Eyjólfur Árni Rafnsson formaður Samtaka atvinnulífsins og Sigríður Margrét Oddsdóttir framkvæmdastjóri svara tilkynningunni með eigin tilkynningu í morgunsárið. Af henni má skilja að krónutöluhækkun, sem Breiðfylkingin hafi lagt upp með, sé eitthvað sem SA vilji forðast að leggja upp með. Hún hafi reynst of kostnaðarsöm og stefnt í launaskrið. „Samtök atvinnulífsins og breiðfylking stéttarfélaga á almennum vinnumarkaði hafa undanfarið unnið að því hörðum höndum í sameiginlegu átaki að skapa skilyrði fyrir langtíma kjarasamningum sem hafi það meginmarkmið að auka fyrirsjáanleika og stöðugleika í efnahagslífinu. Þannig geti verðbólga minnkað, unnt verði að lækka vexti og bæta þannig lífskjör almennings í landinu og rekstrarumhverfi fyrirtækja,“ segir í tilkynningunni. Sameiginleg samningsmarkmið þeirra samninga sem unnið hafi verið að undanfarið, séu í samræmi við áherslur Samtaka atvinnulífsins og ályktanir opinna vinnufunda samtakanna, sem voru haldnir um allt land á liðnum haustmánuðum. „Samstarf SA og breiðfylkingarinnar hefur gengið vel og umtalsverður árangur náðst í að rýna þær áskoranir sem eru í veginum og stilla af mismunandi áherslur. Aðilar beggja megin borðs hafa orðið sammála um að forsenda fyrir því að markmið náist um nýja þjóðarsátt, sé að allir aðilar vinnumarkaðarins leggist á eitt og enginn skorist undan ábyrgð. Í því ljósi skoraði stjórn SA nýlega á aðildarfélög sín, önnur fyrirtæki landsins, ríki og sveitarfélög að styðja við fyrrgreind markmið kjarasamninga, eins og þeim frekast er unnt, með því að halda aftur af verðhækkunum og launaskriði.“ Að baki liggi mikil vinna og gagnkvæmur skilningur á sérstökum kröfum um hækkun lægstu launa, svo kölluð „krónutöluhækkun“. „Sú áhersla er vel skiljanleg í samfélagi sem leggur áherslu á jöfnuð. Það liggur enda fyrir, að þau sem hafa lægstu launin þurfa einna mest á kjarasamningsbundnum launahækkunum að halda, sérstaklega þegar verðbólga er mikil. Verðhækkanir á nauðsynjavörum og húsnæði vega þyngra í útgjöldum launalægri hópa en launahærri hópa. Þeir eru líklegri til þess að fá greidd laun samkvæmt taxta, eru síður á markaðslaunum og njóta síður launaskriðs.“ Þó sé rétt að undirstrika, að launahækkanir í krónutölum séu líka hlutfallslegar launahækkanir þótt þær væru mismiklar eftir hópum. Sigríður Margrét Oddsdóttir er framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.Vísir/Einar „Sagan sýnir okkur því miður með óyggjandi hætti að þær hlutfallslegu hækkanir sem eiga sér stað neðar í launastiganum skila sér upp stigann í formi launaskriðs þar sem fólk mun áfram krefjast umbunar fyrir aukna menntun, reynslu og ábyrgð. Þegar krónutölunálgun er höfð að leiðarljósi við gerð kjarasamninga eru kostnaðaráhrifin því oft vanmetin í upphafi.“ Þess vegna hafi Samtök atvinnulífsins lagt upp með aðferðafræði sem taki mið af þessu, fari bil beggja og sé líkleg til að geta staðið undir nafni sem ný þjóðarsátt; þar sem tekið sé tillit til ólíkra hópa og ólíkra greina og þar sem efnahagslegum stöðugleika væri ekki raskað, heldur þvert á móti byggt undir skilyrði til jafnvægis og eðlilegrar verðmætasköpunar. „Samtök atvinnulífsins eru jafn sannfærð og áður um að samstaða muni skila hagfelldri niðurstöðu við samningaborðið og lýsa sig eindregið tilbúin til að ljúka gerð nýrra langtímasamninga á grundvelli þessarar vinnu. Allir munu þurfa að gefa eitthvað eftir, allir munu þurfa að leggja töluvert á sig, en niðurstaðan verður að vera í samræmi við efnahagslegan veruleika og getu þjóðarbúsins. Við viljum öll efnahagslegan stöðugleika og geta gert framtíðaráætlanir sem standast.“
Kjaramál Vinnumarkaður Kjaraviðræður 2023-24 Tengdar fréttir Segja SA hafna sinni nálgun um þjóðarsátt Breiðfylking stærstu stéttarfélaga og landssambanda á almennum vinnumarkaði segir Samtök atvinnulífsins hafna nálgun fylkingarinnar um þjóðarsátt. Hún hvetur SA til að rýna betur tillögur hennar og endurgjalda auðsýndan samningsvilja. 17. janúar 2024 18:47 Mest lesið Skapa íslenska sundstemningu í New York Viðskipti erlent Vikan sem vex og vex: „Magatilfinningin er jafnvel mikilvægust“ Atvinnulíf Útboðið fari vel af stað og allar líkur á að magnið aukist Viðskipti innlent Verslun Nettó í Glæsibæ opnar líklega á morgun Viðskipti innlent Áskriftir borist í 20 prósenta hlut í Íslandsbanka Viðskipti innlent Varar við framtíðarreikningum í nafni barnsins Neytendur Apple skoðar að stýra snjalltækjum með hugsunum Viðskipti erlent Útboðið á ríkishlutum í Íslandsbanka hafið Viðskipti innlent Jákvætt að almenningur njóti forgangs við söluna Viðskipti innlent Dregur úr tapi og notendum fjölgar um 66 prósent Viðskipti innlent Fleiri fréttir Útboðið fari vel af stað og allar líkur á að magnið aukist Jákvætt að almenningur njóti forgangs við söluna Áskriftir borist í 20 prósenta hlut í Íslandsbanka Verslun Nettó í Glæsibæ opnar líklega á morgun Dregur úr tapi og notendum fjölgar um 66 prósent Vonar að almenningur nýti forganginn í bankasölunni Ráðinn forstöðumaður Öryggislausna OK Útboðið á ríkishlutum í Íslandsbanka hafið Síðasti dropinn á sögulegri stöð Ráðuneytið ræður fjögur íslensk fjármálafyrirtæki vegna sölunnar á Íslandsbanka Sjóvá fundaði með PPP en afþakkaði þjónustu Svandís tekur við Fastus lausnum Ráðinn framkvæmdastjóri Starbucks á Íslandi Tæknin geti komið í veg fyrir þjófnað Hafa þegar skilað nettóbindingu en tafir á stærri föngunarstöð „Umbreyting í átt að velsældarhagkerfi krefst hugrekkis“ Salan á Íslandsbanka: Samið við fjóra erlenda söluaðila Til IDS á Íslandi frá Íslenskri erfðagreiningu Hagnaðist um rúma fimm milljarða á fyrsta ársfjórðungi Hundrað og fimmtíu manns unnu að opnuninni Samþykktu að bæta við leið fyrir stóra fjárfesta í sölu Íslandsbanka Gríðarlegt áhyggjuefni fyrir Norðurþing Ingunn ráðin framkvæmdastjóri Auðnu Rannsakendur og nemendur við HA fá aðgang að sérhæfðu gervigreindartóli Tæplega átta milljarða króna viðsnúningur milli ára Rekstrarstöðvun sé yfirvofandi á Bakka Til Samtaka atvinnulífsins eftir mánuð á auglýsingastofu Margrét hættir sem forstjóri Nova Sýkna í Samskipamálinu en Eimskip þarf samt að passa sig Ekkert fékkst upp í gjaldþrot upp á tugi milljóna Sjá meira
Segja SA hafna sinni nálgun um þjóðarsátt Breiðfylking stærstu stéttarfélaga og landssambanda á almennum vinnumarkaði segir Samtök atvinnulífsins hafna nálgun fylkingarinnar um þjóðarsátt. Hún hvetur SA til að rýna betur tillögur hennar og endurgjalda auðsýndan samningsvilja. 17. janúar 2024 18:47