Skilur gremjuna í garð RÚV, kýs sniðgöngu en vill líka atkvæðin Svava Marín Óskarsdóttir skrifar 24. febrúar 2024 07:01 Andrean, einn af dönsurum Hatara, heldur hér utan um Matthías Tryggva Haraldsson söngvara í Eurovision atriði Íslands árið 2019. Matthías Tryggvi þýddi textann sem Bashar syngur í laginu Villta vestrið í Söngvakeppninni. Getty Andrean Sigurgeirsson, sem sér um kóreógrafíu og sviðsetningu í atriði Bashar Murad í Söngvakeppninni á RÚV, vill að Ísland sniðgangi Eurovision í ár. Hann skilur gremju í garð RÚV en hvetur skoðanabræður sína til að kveikja á Ríkissjónvarpinu í kvöld og kjósa vin sinn.
Þetta segir Andrean í færslu á Facebook í gærkvöldi. Færslan vekur athygli þar sem hann hrósar hinu ýmsa fólki sem kemur að atriði Bashar. Andrean var á meðal dansara í atriði Hatara í Ísrael árið 2019. Hann segist í færslunni hafa heyrt af áhuga Bashar fyrir um einu og hálfu ári að taka þátt í Söngvakeppninni. Þegar honum bauðst að sjá um kóreógrafíu og sviðsetningu fyrir atriðið sagði hann já. Atriði Bashar og Einars Stefánssonar, trommara í Vök og liðsmanns Hatara, sem samdi lagið hefur samkvæmt færslu verið í bígerð í eitt og hálft ár. Lagið var á meðal þeirra sem fékk grænt ljós síðastliðið haust og komst í tíu laga hópinn sem hefur unnið að því undanfarnar vikur að verða fulltrúi Íslands í Eurovision. RÚV ákvað í ljósi stöðunnar fyrir botni Miðjarðarhafs og mótmæla við þátttöku Íslands í Eurovision vegna þátttöku Ísraels að aðskilja Söngvakeppnina og Eurovision að því leytinu til að ekki verður tekin ákvörðun um þátttöku Íslands fyrr en að lokinni Söngvakeppninni. Ákvörðunin verður tekin í samráði við sigurvegara Söngvakeppninnar. Aníta og VÆB tryggðu sig áfram á fyrra undanúrslitakvöldinu liðna helgi. Í kvöld berst Bashar við fjögur önnur atriði um að komast á úrslitakvöldið eftir viku. „Þó þátttaka Bashars og hópsins okkars hefur verið í undirbúningi í eitt og hálft ár, þá hafa atburðir seinustu mánaða sýnt það að sýnileiki palestínsks listamanns hefur öflug skilaboð út í heim. Hér skapast tækifæri til að hafa áhrif, senda skilaboð og virkja sammennskuna. Okkur gefst sá kostur að hífa upp raddir hinna kúgaðra, sýnt nauðsynlegan sýnileika og samstöðu,“ segir Andrean. Hann tínir til fjölmarga úr listateymi Bashars sem hafi unnið hörðum höndum að atriðinu og hrósar í hástert. „Að lokum langar mig að segja að ég styð sniðgöngu heilshugar og mér finnst óskiljanlegt að Ísrael hafi ekki verið meinuð þáttaka,“ segir Andrea. Sniðganga Eurovision eigi þó ekki að þagga niður í röddum þeirra sem hún berst fyrir. Vísar Andrean þar til þess að Bashar er Palestínumaður. „Ég skil gremju margra yfir ákvarðanatöku RÚV en sú gremja á ekki að bitna á Bashar. Ég legg því til að þau sem ætla sér að sniðganga keppnina að kveikja á sjónvarpinu þegar Bashar fer upp á svið og með því að kjósa hjálpar það okkur að gulltryggja að ákvörðunarvaldið sé í höndum Bashars.“ Hvort Bashar ákveði að nýta sér sýnileikann, stíga ótroðnar slóðir og stuða Ísrael með þátttöku sinni eða einfaldlega sniðganga þá muni hvort tveggja senda sterk skilaboð. „Ef sigurinn næst þá mun okkur einnig gefast nægur tími til þess að deila um hvor ákvörðunin muni hafa víðtækari og sterkari áhrif.“ Bashar var í ítarlegu viðtali á Vísi á dögunum ásamt Einari lagahöfundi. Ekki var á Bashar að skilja að sniðganga væri í kortunum. Hins vegar kom fram að þátttaka í Eurovision væri draumur hans frá því hann var barn. „Fyrst og fremst er þetta tækifæri til að koma list minni og rödd á framfæri á aðalsviði heimsins og vonandi auka blæbrigði við samtalið sem er einfaldlega ekki svart og hvítt. Eurovision eru Ólympíuleikar popptónlistar og ég vil nýta tækifærið mitt í að „make history“,“ sagði Bashar.
Eurovision Ríkisútvarpið Átök í Ísrael og Palestínu Palestína Mest lesið Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Lífið Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Lífið Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Gagnrýni Eignaðist barn, missti ömmu sína og erfði púðlusafnið Menning Haribo-kastalar og hrekkjavökugleði í Bónus Lífið samstarf Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Tónlist Góðgerðartreyja til styrktar Ingvari hönnuð af 66° Norður Tíska og hönnun Fjarstætt að hugsa til þess að þetta myndi enda svona Lífið samstarf Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Lífið Fleiri fréttir Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Sjá meira