Veður

Enn verður kalt í dag

Lovísa Arnardóttir skrifar
Það verður áfram kalt í dag en það á að breytast á morgun.
Það verður áfram kalt í dag en það á að breytast á morgun. Vísir/Vilhelm

Í dag verða litlar breytingar á veðrinu. Enn verður kalt og samhliða hæg norðlæg eða breytileg átt. Á norðanverðu landinu gæti snjóað dálítið og verið frost. Stöku skúrir eða él sunnantil á landinu og hiti þar um eða yfir frostmarki.

Í hugleiðingum veðurfræðings kemur svo fram að í kvöld og nótt er síðan búist við hægviðri. Þá rofar allvíða til og kólnar enn frekar. Á norðanverðu landinu gætu sums staðar látið á sér kræla um nóttina tveggja stafa frosttölur.

Breytingar á morgun

Á morgun er samkvæmt veðurfræðingi hins vegar breytinga að vænta í veðurlagi. Þá gera spár ráð fyrir að gangi í ákveðna suðaustanátt með slyddu eða rigningu síðdegis á sunnan- og vestanverðu landinu og hlýnandi veðri.

Á laugardag er síðan stíf sunnanátt í kortunum með súld og rigningu og mjög þungbúnu veðri. Þurrara á Norður og Austurlandi og hærra undir skýin, hiti fer væntanlega yfir 10 stig þar í hnjúkaþey á völdum stöðum.

Á vef Vegagerðarinnar, umferdin.is, kemur fram að víða er hálka á landinu eða hálkublettir.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á föstudag:

Hæg suðlæg átt framan af degi, víða bjartviðri og frost. Gengur í suðaustan 8-13 m/s á sunnan- og vestanverðu landinu síðdegis og fer að rigna með hita 2 til 6 stig.

Á laugardag:

Sunnan 10-18 með súld og rigningu, en hægari og þurrt norðaustantil á landinu. Hiti 6 til 12 sig.

Á sunnudag:

Suðvestan 8-15 og rigning framan af degi, en þurrt austanlands. Styttir upp eftir hádegi og dregur úr vindi. Hiti 5 til 10 stig.

Á mánudag, þriðjudag og miðvikudag:

Fremur hæg suðlæg átt og bjart með köflum, en skýjað og lítilsháttar skúrir á vestanverðu landinu. Hiti 6 til 12 stig yfir daginn.

Gott er að fylgjast með nýjustu fréttum af veðri og færð á vef Veðurstofunnar og Vegagerðarinnar. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×