„Þarsíðasti föstudagur var einn erfiðasti dagur sem ég hef upplifað á mínum ferli, en þá þurftum við að segja upp öllu frábæra starfsfólkinu okkar hjá Running Tide á Íslandi og draga saman seglin hér á landi. Fjármögnun rannsóknar- og nýsköpunarstarfs er erfið almennt, og sérstaklega í núverandi hávaxtalandslagi og við höfum ekki náð að sækja nýtt fjármagn fyrir næstu skref. Á sama tíma og það sækir að mér mikil sorg að þurfa að hætta, er ég afar stoltur af þeim árangri sem við höfum náð,“ segir Kristinn í tilkynningunni á Linkedin.
Kristinn Árni tók við sem framkvæmdastjóri fyrirtækisins fyrir um tveimur árum. Fyrirtækið var stofnað fyrir um sjö árum og hóf starfsemi á Íslandi um tveimur árum síðar. Í tilkynningu um ráðningu Kristins kom fram að Running Tide væri „framsækið sjávartæknifyrirtæki á sviði kolefnisförgunar“ og að þau hefðu þróað tækni til að örva náttúrulega hæfni sjávarins við að fjarlægja kolefni varanlega úr andrúmsloftinu. Meðal fjárfesta í fyrirtækinu eru Davíð Helgason eigandi Transition Labs og Scott Belsky stofnanda Behance og Caterinu Fake sem stofnaði Flickr.
Fara í dvala
Kristinn fer í tilkynningu sinni vel yfir störf sín síðustu tvö árin og þann árangur sem þau náðu á Íslandi.
„Árangurinn er mikill en tímasetningin, staða fjármögnunarmarkaða og önnur ytri áhrif eru þannig að við náðum ekki að tryggja nægt fjármagn fyrir framhald rannsóknar- og þróunarstarfs okkar hérna á Íslandi - allavega ekki í bili. Rannsóknir og þróun, varanleg kolefnisbinding og starfsemi á hafi úti eru allt saman flókin og dýr verkefni. Varanleg kolefnisbinding er sömuleiðis ekki orðin það þróaður markaður að auðséð sé að kaupendur séu til staðar fyrir afurðina þegar hún er tilbúin, en að lokum voru það aðstæður algjörlega utan okkar stjórnar sem veittu verkefninu náðarhöggið,“ segir Kristinn.
„Ég vil árétta að Running Tide er ekki gjaldþrota, þó við séum að vinda ofan af starfseminni hér. Allt starfsfólk á Íslandi mun fá greitt út uppsagnarfrestinn og allir birgjar fá greitt. Starfsemin mun leggjast í dvala hér á landi en eftir standa rannsóknarniðurstöður sem eru að stóru leyti opinberar og munu vonandi nýtast öðrum.“