Tilefni ávarps forsetans var banatilræðið gegn Donald Trump í Pennsylvaníu á laugardag.
Sjálfur sagði Trump í samtali við Washington Examiner í gær að hann væri núna fyrst að átta sig á því hvað hefði gerst. Þá hét hann því að nota ræðu sína á landsþingi Repúblikana, sem hefst í dag, til að sameina þjóðina og jafnvel alla heimsbyggðina.
„Ræðan verður mjög ólík því sem hún hefði verið fyrir tveimur dögum,“ sagði hann.
Biden hefur fyrirskipað rannsókn á því hvernig árásarmaðurinn komst upp á þak nærri sviðinu þar sem Trump var að halda kosningaræðu þegar hann var skotinn. Alríkislögreglan hefur varað við því að hótunum um ofbeldi í tengslum við kosningarnar hafi fjölgað í kjölfar árásarinnar.
„Við getum ekki og megum ekki ganga þennan veg í Bandaríkjunum,“ sagði Biden og vísaði til fleiri dæma um ofbeldi í tengslum við pólitík, svo sem árásina á þinghúsið og árásina á eiginmann Nancy Pelosi.
Þá sagði hann Corey Comperator hetju en hann lést á kosningafundinum á laugardag þegar hann freistaði þess að skýla konu sinni og dóttur frá skotum.
Samsæriskenningar varðandi tilræðið gegn Trump fara nú eins og eldur í sinu í netheimum og þá hafa Repúblikanar sakað Biden um að eiga þátt að máli með því að stilla Trump upp sem ógn við lýðræðið.