Innlent

Svan­dís vill formannsstólinn og það hægir á íbúðauppbyggingu

Gunnar Reynir Valþórsson skrifar
bylgjan-frettir_2024-Vísir-frétt-3x2@2x-100 1

Í hádegisfréttum verður rætt við Svandísi Svavarsdóttur innviðaráðherra sem sækist eftir formannsembættinu hjá VG. 

Þetta kom fram í máli hennar að loknum ríkisstjórnarfundi í morgun. Hún segist einnig þeirrar skoðunar að ganga ætti til kosninga í vor en ekki næsta haust eins og áætlanir gera ráð fyrir.

Einnig fjöllum við um þá staðreynd að hægst hafi á íbúðauppbyggingu á milli ára samkvæmt nýrri talningu HMS. Forseti ASÍ segir að um svekkjandi þróun sé að ræða, sem komi þó ekki á óvart.

Einnig fjöllum við um nýfallinn dóm sem varðar NPA þjónustuna en Garðabæ var óheimilt að skerða þjónustu við stúlku þar í bæ á þeim forsendum að foreldrar hennar bæru ummönunar- og forsjárskyldu.

Í íþróttapakka dagsins verður svo rýnt í Bestu deildina sem er á síðustu metrunum en Blikar hafa ekki tapað leik síðan í lok júní.

Klippa: Hádegisfréttir Bylgjunnar 24. september 2024



Fleiri fréttir

Sjá meira


×