Örfáar raddir nýti sér Kveik sem vopn gegn skátum Tómas Arnar Þorláksson skrifar 11. október 2024 23:17 Harpa Ósk Valgeirsdóttir skátahöfðingi. aðsend „Þetta eru einhverjar örfáar raddir sem virðast nýta sér Kveik sem einhvers konar vopn gagnvart okkur í einhverri óánægju. Þetta er högg sem kom okkur á óvart og við fundum okkur knúin til að svara fyrir það áður en það færi eitthvað lengra. Mér finnst sorglegt ef Kveikur ætlar að gera sér einhver eldsmat úr þessu. Við höfum heyrt að þau séu að leita sérstaklega af einhverjum sem hafi liðið nægilega illa þarna í ferðinni til að tala við. Mér finnst það mjög ósmekklegt að ráðast þannig að ungmennum.“
Þetta segir Harpa Ósk Valgeirsdóttir skátahöfðingi í samtali við Vísi um yfirvofandi umfjöllun RÚV í fréttaskýringarþættinum Kveikur sem hún segir ekki eiga við rök að styðjast. Að mati Hörpu voru ýmis atriði dregin upp í viðtali hennar við Kveik sem voru gerð sem tortryggilegust þó að ekkert tortryggilegt hafi verið á seyði að hennar sögn. Gildishlaðnar spurningar án sannmælis Stjórn Bandalags íslenskra skáta (BÍS) samþykkti ályktun um málið í gær sem var birt í dag. Þar segir að á mánudaginn hafi Harpa verið boðuð í viðtal við Kveik og að þar hafi verið bornar upp gildishlaðnar spurningar sem bentu til þess að BÍS myndu ekki njóta sannmælis í umfjölluninni. Ákvað stjórnin því að bregðast við til að segja frá hlið BÍS í viðtalsefninu. „Skátahöfðingi var boðaður til viðtals Kveiks á þeim forsendum að ræða ætti upplifun þátttakenda á alheimsmóti skáta í Suður-Kóreu sumarið 2023 auk þess að fara yfir athugasemdir frá foreldrum,“ segir í ályktuninni en síðan er rakin saga mótsins þar sem aðstæður voru óásættanlegar en að auki gekk hitabylgja yfir sem fylgdi fellibylur sem varð til þess að mótið var rýmt. Í ályktuninni segir að það hafi verið ljóst af eðli spurninga að kasta ætti rýrð á heilindi skátahöfðingja. Harpa var á þeim tíma sem mótið fór fram í launaðri stöðu framkvæmdastjóra tímabundið en hún var þann mánuð að sinna aðlögun nýráðins framkvæmdastjóra. Í viðtali Kveiks á hún að hafa verið þráspurð um laun sín og um nákvæma verkefnastöðu þeirra sjö starfsmanna skátamiðstöðvarinnar sem komu að umsjón ferðarinnar. Undirbúningur ferðarinnar stóð yfir í tvö ár. Í ályktuninni er áréttað að skátahöfðingi og framkvæmdastjóri hafi stýrt umfangsmiklu viðbragði hér á landi til að tryggja öryggi þeirra 140 barna og ungmenna sem voru í ferðinni. „Það var ljóst af stefnu viðtalsins að fréttafólk Kveiks hafði að engu eða takmörkuðu leyti kynnt sér þau gögn sem þeim var afhent fyrir viðtalið og komu þau aldrei til tals. Í viðtalinu var ítrekað vitnað í þá skoðun fararstjórnar ferðarinnar að umsýslukostnaður skrifstofu vegna ferðarinnar hafi verið óeðlilegur.“ Hafna alfarið ásökunum og harma umfjöllun Stjórn BÍS og félagsforingjar hafna alfarið þeim staðhæfingum fararstjórnar og áréttar að í reglugerð um utanferðir skáta sé kveðið skýrt á um að umsýslukostnað skrifstofu skuli skrá á ferðir á vegum BÍS. Samþykkt fjárhagsáætlun ferðarinnar hafi jafnframt tekið mið af umræddum kostnaði. Jafnframt er ítrekað að það hafi verið boðað til sérstaks félagsforingjafundar svo að félögin gætu skoðað öll gögn vegna málsins. Ályktun þess fundar hafi verið skýr, engar heimildir hafi verið til endurgreiðslu vegna ferðarinnar og kostnaðurinn rétt skráður á ferðina. „Ljóst er að ekki var allt eins og best verður á kosið á mótsstað í Suður Kóreu sumarið 2023. Aðstæður á mótssvæðinu voru óboðlegar og reyndu mjög á. Af hálfu BÍS var allt kapp lagt á að veita þeim börnum og ungmennum sem í ferðinni voru stuðning að heiman á meðan á ferðinni stóð. Var talin þörf á að stíga inn í þessar erfiðu aðstæður m.a. með því að fulltrúi BÍS var sendur á staðinn. Jafnframt hefur verið reynt að styðja þau sem þurftu stuðning eftir að heim var komið.“ BÍS harmar það að mál sem hafði áður fengið eðlilegan farveg innan skátahreyfingarinnar sé nú komið í umfjöllun fjölmiðla. Sökuð um misferli um leið og kveikt var á myndavélum Harpa segir í samtali við Vísi að þau hjá skátunum hafi unnið mikið með foreldrum síðasta vetur enda var fólk svekkt og mótið erfitt. Hún hafði samþykkt viðtalið á þeim forsendum að ræða óánægju foreldra og ferðina til Suður Kóreu almennt. „Um leið og það var kveikt á myndavélunum var farið strax í það að reyna saka mig um eitthvað misferli um fjármunina sem kom mér á óvart. Við höfum verið mjög opin með okkar uppgjör og allir foreldrar hafa fengið það í hendur. Síðan kom mjög sterklega í ljós að hún vitnaði ekkert í foreldrana. Það var ljóst að þetta kom frá einhverjum einstakling innan fararstjórnarinnar sem var ekki mjög ánægður með, ég veit ekki hvað.“ Kveikur.RÚV Látið líta út eins og þau væru að búa til tíma Hún segir fréttamann Kveik hafa vitnað beint í umræddan einstakling úr fararstjórninni sem hafi brugðist trausti BÍS. „Þetta snerist í fyrsta lagi um það að þeim fannst ekki réttlætanlegt að þjónustugjald væri innheimt fyrir ferðina sem er gert í öllum ferðum. Við erum með skrifstofu sem sinnir bæði mótum og ferðum og það eru forsendur þess að við getum haldið úti skrifstofu að fólk fái laun og þar af leiðandi er þjónustugjald. Það átti að líta mjög illa út. Það var mikið spurt um nákvæmlega hvað þessi manneskja var að vinna og hvað hin væri að vinna. Það var verið að láta það líta út eins og við værum að búa til þessa tíma sem er algjör frásinna.“ Höfnuðu fundarboði Harpa furðar sig á því að það hafi jafnframt verið reynt að gera það tortryggilegt að hún hafi verið á launum á þessum tíma. „Ég er náttúrulega skátahöfðingi sem er formannsstaða en var að brúa bilið á milli framkvæmdastjóra. Ég var á launum þetta sumar í aðlögun því þetta er flókinn rekstur og það er ekki hægt að skilja skrifstofuna eftir án stefnu.“ Hún segir BÍS standa þétt saman og að þau ætli ekki að láta þetta á sig fá. Hún tekur fram að þau hafi boðist til að taka samtal við þá fáu sem voru óánægðir áður en þeir töluðu við Kveik. Þeir hafi þó ekki þegið fundarboð.
Skátar Ríkisútvarpið Mest lesið Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Innlent Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Innlent Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Innlent Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Erlent Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Innlent Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Innlent „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Innlent Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Innlent Fleiri fréttir Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Dómsmálaráðherra boðar herta löggjöf í vændismálum Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Svör Kristrúnar minni meira á Keir Starmer en Mette Fredriksen Flugvallarstæði Hvassahrauns á mesta áhættusvæði hraunflæðis Svæðisskrifstofur Guðmundar Inga líklega slegnar út af borðinu Helmingur gæti ekki mætt 100 þúsund króna útgjöldum Bein útsending: Svarar fyrir skipulagsbreytingar á framhaldsskólum Bein útsending: Ræða markmiðadrifði hagkerfi í þaula Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Sjá meira