Samþykkti framkvæmdaleyfi fyrir Hvammsvirkjun í Þjórsá Kristján Már Unnarsson skrifar 24. október 2024 13:56 Frá fyrirhugðu stíflustæði Hvammsvirkjunar í Þjórsá. Gert er ráð fyrir að afl hennar verði 95 megavött. Landsvirkjun Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkti í dag umsókn Landsvirkjunar um framkvæmdaleyfi Hvammsvirkjunar í Þjórsá með fjórum atkvæðum gegn einu. Þar með hafa bæði hlutaðeigandi sveitarfélög samþykkt framkvæmdaleyfi en sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti leyfið fyrir sitt leyti í síðustu viku, þann 16. október.
Þetta er í annað sinn sem Skeiða- og Gnúpverjahreppur samþykkir framkvæmdaleyfi vegna Hvammsvirkjunar. Fyrra leyfið var samþykkt fyrir sextán mánuðum, þann 14. júní 2023. Daginn eftir, þann 15. júní, felldi Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hins vegar virkjunarleyfi fyrir Hvammsvirkjun úr gildi, sem Orkustofnun hafði gefið út í desember 2022. Þar með var forsenda framkvæmdaleyfisins brostin. Þann 13. september síðastliðinn gaf Orkustofnun svo út nýtt virkjunarleyfi fyrir Hvammsvirkjun. Stöðvarhúsið verður neðanjarðar. Frárennslisskurðurinn sést hægra megin. Ofar sést Búrfell.Landsvirkjun Með samþykkt Skeiða- og Gnúpverjahrepps í dag er Landsvirkjun komin með öll tilskilin leyfi til að hefja virkjunarframkvæmdir. Fastlega er hins vegar búist við að andstæðingar virkjunarinnar láti enn reyna á kærumöguleika og kæri leyfisveitingar til Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Meirihluta sveitarstjórnar í málinu í dag mynduðu þau Haraldur Þór Jónsson oddviti, Bjarni Hlynur Ásbjörnsson og Vilborg Ástráðsdóttir frá L-ista og Gunnar Örn Marteinsson frá E-lista. Fulltrúi U-listans, Axel Á. Njarðvík, greiddi einn atkvæði gegn framkvæmdaleyfinu. Í bókun segist meirihlutinn telja framkvæmdina vera í samræmi við skipulagsáætlanir, matsskýrslu, úrskurði og ákvarðanir vegna umhverfismats framkvæmdanna og önnur fyrirliggjandi gögn, þar með talda greinargerð umsækjanda. Ýmis skilyrði eru þó sett varðandi mótvægisaðgerðir, vöktun og frágang vegna framkvæmdarinnar. Ennfremur að skipuð verði sameiginleg eftirlitsnefnd sem hafi eftirlit með því að öllum skilyrðum sé framfylgt. Frá fyrirhuguðu lónstæði Hvammsvirkjunar neðan við bæinn Haga.KMU Fulltrúi U-listans, Axel Á. Njarðvík, segir meðal annars í bókun: „Fyrirhuguð Hvammsvirkjun mun hafa veruleg og óafturkræf áhrif á náttúru, lífríki og landslag. Öllum ætti að vera löngu ljóst, að tjónið og skaðinn sem Hvammsvirkjun mun valda á náttúru og samfélagi verður aldrei bætt.“ Jafnframt kveðst hann hafna heimild Umhverfisstofnunnar til breytingar á vatnshloti Þjórsár og telur hana ekki vera í samræmi við lög og reglur. Inntakslón myndast ofan við stíflu Hvammsvirkjunar.Landsvirkjun Í greinagerð meirihlutans er virkjuninni lýst svo: „Inntakslón hennar, Hagalón, verður í farvegi Þjórsár norður af Skarðsfjalli. Lónið verður í um 116 metra hæð yfir sjávarmáli og um fjórir ferkílómetrar að stærð. Rúmmál lónsins verður um 13,2 milljónir rúmmetra. Stöðvarhús verður að mestu leyti neðanjarðar við norðurenda Skarðsfjalls, í landi Hvamms 1 í Landsveit. Fyrirhuguð Hvammsvirkjun er vatnsaflsvirkjun staðsett á vatnasviði Þjórsár og Tungnaár þar sem í dag eru sjö vatnsaflsstöðvar og verður virkjunin áttunda og neðsta stöðin. Hvammsvirkjun mun nýta allt að 352 m3/s rennsli og 32 m fall Þjórsár á um 9 km kafla frá svokölluðu Yrjaskeri, rétt ofan við bæinn Haga, og niður fyrir Ölmóðsey, austan við Þjórsárholt. Virkjunin nýtir miðlað rennsli Þjórsár frá lónunum ofar á vatnasviðinu. Hvammsvirkjun er staðsett í sveitarfélögunum Rangárþingi ytra og Skeiða- og Gnúpverjahreppi, og verða flest mannvirki innan sveitarfélagsmarka Rangárþings ytra. Gert er ráð fyrir að afl virkjunar verði 95 MW og árleg orkuvinnsla um 740 GWh.“
Deilur um Hvammsvirkjun Skeiða- og Gnúpverjahreppur Landsvirkjun Vatnsaflsvirkjanir Orkumál Skipulag Rangárþing ytra Tengdar fréttir Vinna málið saman og nýta greinargerð vegna fyrri umsóknar Oddvitar Rangárþings ytra og Skeiða- og Gnúpverjahrepps eiga von á því að geta unnið umsókn Landsvirkjunar um framkvæmdaleyfi fyrir Hvammsvirkjun í Þjórsá fljótt og örugglega. Stefnt er að því að sveitarfélögin afgreiði umsóknina á sama tíma. 20. september 2024 13:58 Hafa veitt virkjunarleyfi fyrir Hvammsvirkjun Orkustofnun gaf í dag út virkjunarleyfi fyrir Hvammsvirkjun í Þjórsá. Landsvirkjun mun í kjölfarið sækja um framkvæmdaleyfi til bæði Rangárþings ytra og Skeiða- og Gnúpverjahrepps, en mannvirki tengd virkjuninni verða í báðum sveitarfélögunum. Enn er stefnt að því að Hvammsvirkjun taki til starfa fyrir árslok 2028. 13. september 2024 13:39 Ný Þjórsárbrú við Árnes sett í salt eins og Hvammsvirkjun Ný brú yfir Þjórsá á móts við Árnes, sem til stóð að bjóða út í haust, frestast um óákveðinn tíma eftir að virkjunarleyfi Hvammsvirkjunar var fellt úr gildi. Oddvitar sveitarfélaganna beggja vegna Þjórsár vonast til að brúarsmíðin tefjist ekki of mikið og segja brúna hafa mikla þýðingu fyrir uppsveitir Suðurlands. 16. júlí 2023 22:20 Mest lesið Gekk út af fíknigeðdeild og fannst látinn sólarhring síðar Innlent „Íslendingar eru allt of þungir“ Innlent Alvarlegt umferðarslys á Suðurstrandarvegi Innlent Sagði hvern sem er hafa getað fyllt BMW-inn af kókaíni Innlent „Pavarotti á ís“ vekur reiði ekkju stórsöngvarans Erlent „Öll kosningaloforð eru svikin“ Innlent Var að horfa á þátt í farsímanum á meðan hann ók Innlent Parísar- og Rómarferð fjárlaganefndar sætir gagnrýni Innlent Ökumaður og farþegi á gjörgæslu Innlent Vita enn ekki hvernig maðurinn lést Innlent Fleiri fréttir Menningarráð vill lundabyggð í gömlu selalaugina Sjálfstæðisflokkurinn á uppleið í borginni Glæný könnun, oddvitar í beinni og óhollstuskattur Lögmaðurinn áfram í varðhaldi „Virðulegi forseti, ég segi bara Jesús Kristur“ Ekki fallist á að Haukur Ægir hafi reynt að myrða „skutlarann“ Ökumaður og farþegi á gjörgæslu Um vikutöf á tæmingu djúpgáma vegna bruna sorphirðubíls Mætti til Íslands með tvö kíló af kókaíni í bakpoka Þingmenn mæta í vinnuna á laugardögum í desember Bíða með að skipa lögreglustjóra á Suðurnesjum á meðan nýs ríkislögreglustjóra er leitað Hvetja Seðlabankann til að rýmka lánþegaskilyrði enn frekar Parísar- og Rómarferð fjárlaganefndar sætir gagnrýni Vita enn ekki hvernig maðurinn lést Gott sé að draga úr notkun einkabílsins í dag og næstu daga „Íslendingar eru allt of þungir“ „Öll kosningaloforð eru svikin“ Halldór frá ASÍ til ríkisstjórnarinnar Fjárlögin tekið miklum breytingum fyrir aðra umræðu Með kíló af kókaíni í bakpokanum Skipaður forstöðumaður Stafrænnar heilsu Ekkert prófkjör hjá Sjálfstæðismönnum í Garðabæ Alvarlegt umferðarslys á Suðurstrandarvegi Gekk út af fíknigeðdeild og fannst látinn sólarhring síðar Leggja til breytingar um hærri útgjöld og meiri skatttekjur Sagði hvern sem er hafa getað fyllt BMW-inn af kókaíni Var að horfa á þátt í farsímanum á meðan hann ók Tónhöfundar spyrja út í notkun gervigreindar Borgaði sig fyrir kirkjuna að breyta um merki Þota til Egilsstaða í kvöld til að flytja veðurteppta Sjá meira
Vinna málið saman og nýta greinargerð vegna fyrri umsóknar Oddvitar Rangárþings ytra og Skeiða- og Gnúpverjahrepps eiga von á því að geta unnið umsókn Landsvirkjunar um framkvæmdaleyfi fyrir Hvammsvirkjun í Þjórsá fljótt og örugglega. Stefnt er að því að sveitarfélögin afgreiði umsóknina á sama tíma. 20. september 2024 13:58
Hafa veitt virkjunarleyfi fyrir Hvammsvirkjun Orkustofnun gaf í dag út virkjunarleyfi fyrir Hvammsvirkjun í Þjórsá. Landsvirkjun mun í kjölfarið sækja um framkvæmdaleyfi til bæði Rangárþings ytra og Skeiða- og Gnúpverjahrepps, en mannvirki tengd virkjuninni verða í báðum sveitarfélögunum. Enn er stefnt að því að Hvammsvirkjun taki til starfa fyrir árslok 2028. 13. september 2024 13:39
Ný Þjórsárbrú við Árnes sett í salt eins og Hvammsvirkjun Ný brú yfir Þjórsá á móts við Árnes, sem til stóð að bjóða út í haust, frestast um óákveðinn tíma eftir að virkjunarleyfi Hvammsvirkjunar var fellt úr gildi. Oddvitar sveitarfélaganna beggja vegna Þjórsár vonast til að brúarsmíðin tefjist ekki of mikið og segja brúna hafa mikla þýðingu fyrir uppsveitir Suðurlands. 16. júlí 2023 22:20