Chris Gober, umræddur lögmaður, sagði að fólkið hafa verið valið vegna baksögu þeirra og þau skrifi undir samning við aðgerðasjóðinn.
Hann sagði að næstu tveir „sigurvegarar“ yrðu valdir í Arizona og Michigan og því hefði „happdrættið“ ekki áhrif á kosningarnar í Pennsylvaníu en keppnin var eingöngu haldin þar fyrstu dagana, áður en hinum sveifluríkjunum svokölluðu var bætt við.
„Við vitum nákvæmlega hver verður tilkynntur sem sigurvegari og fær milljónina í dag og á morgun,“ sagði Gober. Keppninni lýkur eftir morgundaginn.
Musk hefur varið fúlgum fjár til stuðnings Donalds Trump í forsetakosningunum í Bandaríkjunum.
Segja keppnina brjóta lög
Saksóknarar í Pennsylvaníu hafa höfðað mál gegn aðgerðasjóðnum og segja umrædda keppni ekki löglega. Sigurvegarar séu ekki valdir af handahófi og að reglur keppninnar hafi hvergi verið opinberaðar, eins og lög ríkisins segja til um.
Ummælin eru þvert á loforð Musks þegar hann tilkynnti þetta happdrætti upprunalega á kosningafundi með Donald Trump í Harrisburg í Pennsylvaníu. Þá sagði hann að sigurvegarar yrðu valdir af handahófi úr hópi fólks sem skrifaði hefði undir undirskriftalista America PAC en sá listi sneri að því að lýsa yfir stuðningi við ákvæði stjórnarskrár Bandaríkjanna um málfrelsi og skotvopnaeign.
Sérfræðingar efuðust strax um lögmæti þessa happdrættis og hófu yfirvöld í Pennsylvaníu rannsókn á því.
AP fréttaveitan segir frá því að í dósmal í dag hafi Larry Krasner, héraðssaksóknari í Philadelphia, sem höfðaði mál gegn aðgerðasjóðnum, spurt sérstaklega um það hvernig Musk lýsti keppninni á þann veg að fólk yrði valið af handahófi. Einn forsvarsmanna aðgerðasjóðsins sagði lýsingar auðjöfursins hafa komið sér á óvart og að hann hefði sjálfur ekki lýst keppninni þannig.
Ljóst er að hvergi kemur fram á vef America PAC að sigurvegarar séu valdir af handahófi, þó Musk hafi sagt það. Musk hafði einni sagt að til að vinna þyrftu sigurvegara að verða „talsmenn undirskriftalistans“.
Í lögsókn Krasner gegn sjóðnum segir að ekki sé um happdrætti að ræða, heldur hafi sigurvegararnir verið valdir. Vísaði hann til þess að fyrstu tveir sigurvegararnir voru með Musk á sviði þegar nöfn þeirra voru opinberuð.

Í nýlegri frétt NBC segir að allir nema einn þeirra sigurvegara sem hafa verið opinberað hafi neitað að tjá sig um milljónina. Sá sem svaraði sagðist ekki hafa hugmynd um hvernig hann var valinn.
Þá var hann spurður um viðbrögð við því að enginn stuðningsmaður Demókrataflokksins hefðu fengið milljón og sagði hann það ekki koma sér á óvart. Hæpið væri að stuðningsmenn Demókrata vildu skrifa undir áðurnefndan undirskriftalista, þeir væru ólíklegir til að „styðja stjórnarskrána“.
Í dómsal í dag sýndu saksóknarar mynd af færslu Musks á X frá 20. október, þar sem hann skrifaði að þeir sem skrifuðu undir undirskriftalistann fengju daglegt tækifæri til að vinna milljón dala.
Gober hélt því þó fram að orðin „af handahófi“ (e. randomly) þýddu ekki endilega að sigurvegararnir væru valdir með slembivali. Krasner sagði það fáránlega röksemdarfærslu.
„Þetta var pólitísk markaðssetning dulbúin sem happdrætti,“ sagði Krasner. „Það er það sem þetta er. Þetta eru prettir.“
Dómari málsins komst þó að þeirri niðurstöðu að Musk mætti halda keppninni áfram í Pennsylvaníu.