Körfubolti

Grinda­vík fær 35 þúsund króna sekt vegna hátt­semi Kane

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
DeAndre Kane á það til að koma sér í klandur en hann sleppur við bann vegna þessa máls.
DeAndre Kane á það til að koma sér í klandur en hann sleppur við bann vegna þessa máls. vísir / anton brink

Aga- og úrskurðarnefnd Körfuknattleiksambands Íslands hefur tekið fyrir mál Grindvíkingsins DeAndre Kane og leikmaðurinn sleppur við leikbann.

DeAndre Kane truflaði upphitun Hattar í hálfleik á leik liðanna í Smáranum í síðasta mánuði en Kane fór þar upp að Courvoisier McCauley, leikmani Hattar.

Leikmenn liðanna voru mættir aftur út á völl til að hita upp fyrir seinni hálfleik og í framhaldinu urðu mikil læti eins og sjá má hér fyrir neðan. Ljóst er að Kane og McCauley höfðu skipst á orðum í aðdragandanum.

Dómarar leiksins urðu ekki vitni að atvikinu og bæði Kane og McCauley fengu að klára leikinn. Það tók síðan aganefnd KKÍ allan þennan tíma að komast að niðurstöðu í málinu en hún kemur nú 23 dögum síðar.

Körfuknattleiksdeild Grindavíkur er dæmd til að greiða 35 þúsund króna sekt vegna háttsemi leikmanns Grindavíkur, DeAndre Kane, í leik Grindavíkur og Hattar í Bónusdeild karla þann 17. október 2024.

Í málavaxtalýsingu greinir frá því að hinn tiltekni leikmaður félagsins hafi gert sér far um að trufla upphitun andstæðinga í þeim eina tilgangi að ögra þeim. Því til stuðnings er vísað til myndbandsupptöku hvers slóð er hlekkjuð við kæruna. Að mati framkvæmdastjóra kæranda er hegðun leikmannsins körfuknattleiksíþróttinni ekki til framdráttar heldur þvert á móti skaði hún ímynd hennar á Íslandi.

„Mat nefndarinnar er að háttsemi kærða í þessu máli sé ekki jafn líklega til þess fallin að valda skaða á ímynd körfuknattleiks á Íslandi eins og mál þar sem einstaklingar vega af ásetningi eða gáleysi að heiðri hreyfingarinnar með ummælum,“segir í niðurstöðu dómsins og áfram stendur þar:

„Að því sögðu þá var háttsemi kærða, sem sést greinilega á upptöku, augljós vanvirðing við andstæðinginn sem leikmaðurinn viðhafði að óþörfu. Á þeim grundvelli er sekt kærða hæfilega ákvörðuð 35.000 kr. með vísan til fyrri framkvæmdar.“

Lesa má allan dóminn hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×