Þjálfari Vals ekki með atvinnuleyfi og þarf að fara úr landi Valur Páll Eiríksson skrifar 15. nóvember 2024 15:30 Jamil Abiad var ekki á hliðarlínunni í gær og missir af leik kvennaliðsins á sunnudag. vísir/Diego Atvinnuleyfi Jamils Abiad, þjálfara kvennaliðs Vals í körfubolta og tímabundins þjálfara karlaliðs félagsins, er útrunnið. Hann var fjarverandi í sigri karlaliðsins á KR í gær og verður einnig frá þegar kvennalið Vals mætir Aþenu á sunnudag.
Valur er án Finns Freys Stefánssonar, þjálfara karlaliðsins, sem hefur verið í veikindaleyfi og Jamil þjálfað liðið í hans stað í fyrstu sex leikjum liðsins í Bónus deild karla. Hann er samhliða því þjálfari kvennaliðs félagsins sem hann hefur stýrt í vetur. Jamil var fjarverandi þegar Valur mætti KR í gær og sagður veikur. Landsliðsmaðurinn Kristófer Acox, sem er leikmaður Vals, stýrði liðinu til sigurs á uppeldisfélagi hans KR ásamt Finni Atla Magnússyni. Heimildir Vísis herma að ástæða fjarveru Jamils séu ekki veikindi. Öllu heldur er hún sú að atvinnuleyfi kanadíska þjálfarans er útrunnið. Misfarist hafi að endurnýja leyfið í sumar. Jamil sér því fram á að þurfa að fara úr landi áður en hægt sé að endurnýja atvinnuleyfið. Gera má ráð fyrir að hann verði ekki á hliðarlínunni þegar kvennalið Vals mætir Aþenu í sjöttu umferð Bónus deildar kvenna á sunnudagskvöld.
Bónus-deild karla Valur Körfubolti Tengdar fréttir Finnur Freyr í veikindaleyfi Þjálfari Íslandsmeistara Vals, Finnur Freyr Stefánsson, stýrir liðinu ekki í leiknum gegn Þór Þ. í Bónus deild karla í kvöld vegna veikinda. 10. október 2024 13:50 Kristófer: Þetta virkaði allavega í kvöld Kristófer Acox var í hlutverki þjálfara í kvöld þegar Valur tók á móti KR í fjarveru Jamil Abiad sem var veikur í dag. Valur vann sigur á KR og má telja að hann hafi verið mjög mikilvægur upp á sálarlíf Íslandsmeistaranna. 14. nóvember 2024 21:29 Mest lesið „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Enski boltinn „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Enski boltinn Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Fótbolti Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Fótbolti Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Sport Stjarnan hefur fundið nýjan Bandaríkjamann Sport Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Körfubolti „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ Sport „Þurfum að halda áfram á þessari braut“ Sport Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Körfubolti Fleiri fréttir Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Rekinn frá Stjörnunni „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ „Eins og staðan er núna er Álftanes langt á undan okkur“ Heill eða hálfur völlur: „Ekki bara upp og niður“ „Munar alveg að þurfa ekki að spila 38 mínútur í leik“ Sjá meira
Finnur Freyr í veikindaleyfi Þjálfari Íslandsmeistara Vals, Finnur Freyr Stefánsson, stýrir liðinu ekki í leiknum gegn Þór Þ. í Bónus deild karla í kvöld vegna veikinda. 10. október 2024 13:50
Kristófer: Þetta virkaði allavega í kvöld Kristófer Acox var í hlutverki þjálfara í kvöld þegar Valur tók á móti KR í fjarveru Jamil Abiad sem var veikur í dag. Valur vann sigur á KR og má telja að hann hafi verið mjög mikilvægur upp á sálarlíf Íslandsmeistaranna. 14. nóvember 2024 21:29