Erlent

Viss um að stríðinu muni ljúka fyrr en ella vegna kjörs Trump

Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar
Vóldódímír Selenskí, forseti Úkraínu.
Vóldódímír Selenskí, forseti Úkraínu. AP/Forsetaembætti Úkraínu

Vólódímír Selenskí, úkraínuforseti segist viss um að stríði Rússa og Úkraínu muni ljúka fyrr en ella í ljósi þess að Donald Trump sigraði bandarísku forsetakosningarnar.

Selenskí segist hafa átt í uppbyggilegum samskiptum við Trump eftir kosningasigur hans en tekur ekki fram hvort forsetinn tilvonandi hafi sett fram einhverjar kröfur varðandi hugsanlegar viðræður við Rússa. BBC greinir frá.

Selenskí segir samskipti sín við Trump góð og að enn hafi ekkert komið fram þeirra í millum sem sé andstætt hagsmunum Úkraínu. Trump hefur ítrekað sagt það forgangsverkefni að binda endi á stríðið sem hann segir þungt fyrir efnahag Bandaríkjanna vegna hernaðaraðstoðar sem þjóðin hefur veitt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×