Innlent

Fundu villtan mann í skítaveðri á Fagradalsfjalli

Jón Ísak Ragnarsson skrifar
Maðurinn var blautur og kaldur þegar hann fannst en var fljótur að koma til í heitum björgunarsveitarbílnum.
Maðurinn var blautur og kaldur þegar hann fannst en var fljótur að koma til í heitum björgunarsveitarbílnum. Þorbjörn

Björgunarsveitin Þorbjörn var kölluð út ásamt öðrum björgunarsveitum á Suðurnesjum rétt fyrir klukkan 19 í kvöld vegna manns sem var villtur í nágrenni Grindavíkur.

Maðurinn fannst heill á húfi við Stórhól á Fagradalsfjalli eftir rúmlega klukkustunda leit „í sannkölluðu skítaveðri, suðaustan hávaða roki og rigningu,“ að því er kemur fram í tilkynningu Þorbjarnar.

Maðurinn hafi verið orðinn mjög blautur og kaldur þegar hann fannst en fram kemur að hann hafi verið nokkuð fljótur að koma til eftir að hann komst inn í heitan björgunarsveitarbílinn.

Þorbjörn greindi frá þessu á Facebook.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×