Innlent

Segir Græn­lendinga yndis­lega, harðduglega og útsjónarsama

Kristján Már Unnarsson skrifar
Eldur Ólafsson, stofnandi og forstjóri Amaroq Minerals, í viðtali við Stöð 2 í bænum Qaqortoq.
Eldur Ólafsson, stofnandi og forstjóri Amaroq Minerals, í viðtali við Stöð 2 í bænum Qaqortoq. Baldur Kristjánsson

Eldur Ólafsson, sem stýrir gullleit á Grænlandi, segir fyrirtækið vilja fá Grænlendinga í sem flest störf. Þeir séu harðduglegir og útsjónarsamir, með gott hjarta og yndislegt sé að starfa með þeim.

Þetta kom fram í fréttum Stöðvar 2 og í þættinum Ísland í dag. Þar kynnumst við gullævintýri sveitapilts úr Tungunum, sem fyrir áratug keypti gjaldþrota gullnámu á Suður-Grænlandi ásamt samstarfsfélögum. Merkur áfangi náðist nýlega þegar gullvinnslan í Nalunaq tók til starfa og fyrstu gullstangirnar voru steyptar.

Þyrlur gegna lykilhlutverki í samgöngum innan Grænlands. Eldur stígur frá borði eftir lendingu í bænum Qaqortoq.KMU

Grænlendingar hafa sjaldan upplifað aðra eins athygli heimsfjölmiðla eftir að Donald Trump lýsti áhuga sínum á að komast yfir land þeirra. Það er hins vegar meira en áratugur frá því Eldur Ólafsson hóf samstarf við þessa næstu nágrannaþjóð Íslendinga um námavinnslu. Það var eftir að hann kynntist áhuga Kínverja á landinu.

Í viðtali í bænum Qaqortoq segist Eldur hafa notað íslenska hugmyndafræði til að nálgast grænlenska samfélagið.

„Það er alveg rétt sem þú segir; að ef það eru Bandaríkjamenn eða Kínverjar, eða hver sem það er sem kemur hingað inn, þá kemur jafnvel oft upp þessi tortryggni.

Og við vitum af þessari tortryggni á Íslandi. Við bönnuðum nú stórum aðilum að eiga land á Íslandi,“ segir Eldur, sem er stofnandi og forstjóri Amaroq-málmleitarfélagsins.

Eldur við gullnámuna með nýsteyptan gullklump.Amaroq

Mestu hafi skipt að ávinna sér traust og láta verkin tala.

„Bara segja sem minnst og gera sem mest og hægt og bítandi leyfa þér að kynnast samfélaginu. Og sýna fram á það að þú ert að gera hlutina á réttan hátt.“

Eldur og samstarfsmenn í Amaroq ákváðu að kaupa sem mesta þjónustu af heimaaðilum og styðja markvisst við samfélagsleg verkefni.

„Við ætlum að styðja við allt íþróttastarf. Við erum að styðja við alla aðila sem eru frumkvöðlar hérna, einkaaðilar, í til dæmis því að koma ungu fólki til vinnu.“

Húsið sem Amaroq er að láta gera upp í Qaqortoq.KMU

Þannig er félagið að gera upp gamalt virðulegt hús í Qaqortoq til að nýta það í verkefni sem gera ungmenni hæfari til þátttöku á vinnumarkaði.

Eldur viðurkennir að þetta sé af eigingjörnum hvötum, þeir vilji fá heimamenn í sem flest störf, en núna er um helmingur starfsmanna fyrirtækisins Grænlendingar.

Um helmingur starfsmanna gullvinnslunnar eru Grænlendingar.KMU

En hvernig upplifir hann sjálfur að vinna á Grænlandi og starfa með Grænlendingum?

„Yndislegt. Þetta er harðduglegt fólk. Það er útsjónarsamt. Það er með gott hjarta.

Hérna í Qaqortoq hef ég verið síðustu þrjú sumur með fjölskyldu minni og börnum. Hérna er manni vel tekið. Og það er bara í alla staði gott að vera hérna,“ segir Eldur.

Hér má sjá frétt Stöðvar 2:

Nánar er fjallað um gullvinnsluna á Grænlandi í þættinum Ísland í dag, sem sjá má hér:


Tengdar fréttir

„Algjört dauðafæri fyrir Íslendinga“ að horfa til Grænlands

Forstjóri Amaroq segir viðskiptatengsl Íslands og Grænlands sífellt mikilvægari Ísland sé í dauðafæri til að koma sér upp góðum tengslum við staðinn. Væri hann utanríkisráðherra myndi hann einblína á tengsl Íslands við eyjuna. 

Svona gullhnullungar finnast hvergi lengur nema í Grænlandi

Fyrsta gullið úr grænlenskri gullnámu, sem Íslendingar standa fyrir, er komið úr gullkvörninni. Eldur Ólafsson, stofnandi og forstjóri málmleitarfélagsins Amaroq, segir þetta ólýsanlega tilfinningu eftir tíu ára undirbúningsstarf.

Nýr flugvöllur opnar nýjar dyr fyrir Suður-Grænland

Nýr flugvöllur sem verið er að gera við Qaqortoq, stærsta bæ Suður-Grænlands, mun hafa gríðarleg áhrif á atvinnulíf og samgöngur í landshlutanum. Hann mun einnig gagnast Íslendingum sem eru með starfsemi á svæðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×