Maguire hetja United í bikarnum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. febrúar 2025 21:57 Harry Maguire fagnar sigurmarki sínu fyrir Manchester United í kvöld. Getty/Gareth Copley Miðvörðurinn Harry Maguire var hetja Manchester United í kvöld þegar hann skoraði sigurmarkið í 2-1 endurkomusigri á Leicester City. United er þar með fyrsta liðið til að komast áfram í sextán liða úrslit enska bikarsins á þessu tímabili. Leicester komst í 1-0 en United mönnum tókst að snúa við leiknum í síðari hálfleiknum ekki síst þökk sé góðri innkomu Alejandro Garnacho. Sigurmark Maguire kom á þriðju mínútu í uppbótatíma þegar hann skallaði aukaspyrnu frá Bruno Fernandes. Leikmenn Leicester vildu fá rangstöðu en aðstoðardómarinn veifaði ekki. Það er engin myndbandsdómgæsla á þessu stigi í enska bikarnum og því stóð markið þótt að það hafi verið mikil rangstöðulykt af því. Varamaðurinn Joshua Zirkzee hafði jafnað metin þegar hann fylgdi á eftir skoti Rasmus Hojlund í varnarmann. Garnacho gerði mjög vel í aðdraganda þess marks. Ruud van Nistelrooy tapaði þarna í fyrsta sinn sem stjóri á Old Trafford en hann stýrði United liðinu um tíma fyrr í vetur með góðum árangri. Bobby De Cordova-Reid kom Leicester í 1-0 í bragðdaufum fyrri hálfleik en liðinu tókst ekki að halda þetta út. Nú getur liðið farið að einbeita sér að því að reyna að halda sér í ensku úrvalsdeildinni. Enski boltinn Fótbolti