Viðskipti erlent

Kaup­hallir rétta úr kútnum

Gunnar Reynir Valþórsson skrifar
Eins og sjá má á þessari mynd frá Japan hafa markaðir í Asíu tekið hressilega við sér eftir öldurót síðustu daga. Ólíkt kauphöllum á vesturlöndum er rauði liturinn merki um hækkanir, en ekki lækkanir, í flestum löndum Asíu. 
Eins og sjá má á þessari mynd frá Japan hafa markaðir í Asíu tekið hressilega við sér eftir öldurót síðustu daga. Ólíkt kauphöllum á vesturlöndum er rauði liturinn merki um hækkanir, en ekki lækkanir, í flestum löndum Asíu.  Kyodo News via AP

Markaðir í Asíu og Evrópu hafa brugðust vel við þeirri óvæntu ákvörðun Donalds Trumps Bandaríkjaforseta að bíða með ofurtollahækkanir sínar á öll lönd nema Kína og voru hækkanir í flestum kauphöllum álfunnar eftir miklar lækkanir síðustu daga.

Í Japan fór Nikkei vísitalan upp um rúm níu prósent, sex prósenta hækkun sást í Suður Kóreu og þriggja prósenta í Hong Kong. Í Taívan fóru bréfin svo upp um rúm níu prósent en þar hafði lækkun síðustu daga verið einna mest. Sömu sögu var að segja af Wall Street í Bandaríkjunum í gærkvöldi þar sem hlutabréfaverð rauk upp við tilkynninguna sem kom flestum á óvart.

Á Norðurlöndum hækkaði vísitalan í Svíþjóð um rúm átta prósent við opnun markaða, 12,5 prósent í Danmörku og fimm prósent í Noregi. FTSE 100-vísitalan í London hækkaði um 6,1 prósent við opnun, Dax-vísitalan í Þýskalandi um átta prósent og CAC 40-vísitalan í Frakklandi um rúm tvö prósent.

Nú er staðan sú að öll lönd heims fá á sig tíu prósenta tollinn sem áður hafði verið boðaður, nema Kína en Trump hefur sett 125 prósenta toll á allar vörur þaðan. Kínvejar hafa sett tæplega níutíu prósenta tolla á vörur frá Bandaríkjunum á móti þannig að deilur þessara tveggja stærstu velda heims eru hvergi nærri yfirstaðnar.

Greinendum er þó greinilega létt og bankarisinn Goldman Sachs breytti spá sinni í nótt og telur nú um 45 prósenta líkur á kreppu í Bandaríkjunum en á dögunum stóð sú spá í 65 prósentum.


Tengdar fréttir

Enn ein eldrauð opnun

Gengi hlutabréfa í Kauphöllinni hélt áfram að lækka þegar markaðir opnuðu í morgun. Mest hafði gengi bréfa í Alvotech lækkað, um tæp átta prósent. Velta með bréf hefur þó verið mjög lítil.

Lækkanir halda áfram

Markaðir heims hafa ekki tekið tollaálögum Donald Trump Bandaríkjaforseta vel og héldu lækkanir síðustu daga áfram við opnun í nótt markaða í Asíu, um leið og enn meiri tollahækkanir tóku gildi.

Saka Bandaríkin um kúgun og svara fyrir sig

Yfirvöld í Kína ætla sér að „berjast til endaloka“ ætli Bandaríkin að halda áfram að stigmagna tollastríðið. Í yfirlýsingu frá viðskiptaráðuneyti Kína eru Bandaríkin sökuð um kúgun. Þar segir einnig að hótanir Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, um að hækka enn frekar tolla gegn Kína séu mistök. Hærri tollar taka gildi á morgun víða um heim. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×