Sprenging í Íran varð 25 að bana Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 27. apríl 2025 08:42 Gríðarlega mikinn reyk lagði frá vöruhúsinu. AP Minnst 25 eru látnir og allt að 800 særðir eftir sprengingu á höfn í borginni Bandar Abbas í suðurhluta Íran í gær.
Mikill eldur kviknaði í kjölfar sprengingarinnar, sem varð á höfninni Shahid Rajaee, stærstu verslunarhöfn landsins. Eldurinn dreifði sér milli gáma og er slökkvilið enn að ráða niðurlögum eldsins. Gluggar í allt að sjö kílómetra fjarlægð frá höfninnni brotnuðu í sprengingunni. Tildrög sprengingarinnar liggja enn ekki fyrir en Reuters hefur eftir fulltrúa almannavarna í Íran að líklega hafi eldfim efni komist í snertingu hvort við annað og valdið sprengingunni. Sá kennir lélegum skilyrðum til geymslu eiturefna á höfninni um. Yfirmaður almannavarna hafi nýlega gert úttekt á höfninni og varað við mögulegri hættu. Íranir eiga sem stendur í samningaviðræðum við Bandaríkjamenn um þróun kjarnorkuvopna í landinu í Óman. Vakin er athygli á þessu í frétt Reuters en ekkert bendir til þess að sprengingin tengist viðræðunum á nokkurn hátt. Íbúar í borginni segjast hafa fundið fyrir áhrifum sprengingarinnar allt að fimmtíu kílómetrum frá höfninni. Skólum og öðrum stofnunum á svæðinu hefur verið lokað út daginn.
Íran Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Innlent Skafið og saltað Veður „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Innlent Fleiri fréttir Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Sjá meira