Ökumaðurinn er meðal hinna slösuðu en er ekki í alvarlegu ástandi, samkvæmt heimildum TV2. Lögreglan hafði upprunalega sagt að hann hefði keyrt á fimm manns.
Maðurinn var samkvæmt Ekstra bladet fluttur af vettvangi á börum.
Brú Lovísu drottningar (d. Dronning Louises Bro) er að finna í miðborg Kaupmannahafnar og tengir Friðriksborgargötu (d. Frederiksborggade) í miðbænum við Norðurbrúargötu (d. Nørrebrogade) á Norðurbrú.
Starfsmaður TV2 segir marga hafa verið á svæðinu við brúna að spóka sig í góða veðrinu. Hún segir eldri manninn hafa beygt skyndilega af veginum og á svæði útikaffihúss, þar fólkið sem hann hæfði sat. Fyrst mun maðurinn, samvkæmt lögreglu, hafa keyrt á mann á hjóli.
Árásir þar sem bílum hefur vísvitandi verið ekið inn í þvögur fólks hafa verið tiltölulega tíðar í Evrópu og Norður-Ameríku á undanförnum árum. Svo virðist sem að í þessu tilfelli sé ekki um árás að ræða heldur slys, miðað við fyrstu yfirlýsingu lögreglunnar.
Vi er massivt til stede i forbindelse med et færdselsuheld på Sortedam Dossering, hvor en ældre mand mistede herredømmet over sin bil. Der er meldinger om fem tilskadekomne. Deres tilstand kendes endnu ikke #politidk
— Københavns Politi (@KobenhavnPoliti) April 30, 2025
Beredskabet er massivt til stede på #dronninglouisesbro efter melding om påkørsel af flere personer. Opdateres...
— Hovedstadens Beredskab (@HBeredskab) April 30, 2025
Fréttin hefur verið uppfærð.