Jón Pétursson, sem lengi var aðstoðarmaður Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar formanns Miðflokksins, átti leið um Leifsstöð í gær. Hann tjáði blaðamanni Vísis að þeir væru þegar farnir að taka til hendinni. Þannig væri til að mynda ekki lengur til neftóbak í fríhöfninni. Og menn þyrftu að hafa vaðið fyrir neðan sig því vöruverð væri talsvert ódýrara á leið úr landi en inn í það aftur.
Isavia ohf. samdi við þýska fyrirtækisins Heinemann í rekstur fríhafnarverslana á Keflavíkurflugvelli til næstu átta ára. Fjórir aðilar buðu í reksturinn. Heinemann rekur fjölda verslana um allan heim, meðal annars fríhafnarverslanirnar á Gardermoen-flugvelli í Osló og Kastrup-flugvelli í Kaupmannahöfn.
Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda, hefur gagnrýnt þennan samning harðlega og segir meðal annars að Heinemann hafi sett sig í samband við íslenska birgja og krafið þá um að lækka verð verulega, vilji þeir halda áfram að selja vörur sínar á flugvellinum.
Jón, sem flaug út í gær, segir Heinemann hafa látið hendur standa fram úr ermum en hann ritaði grein þar sem hann gerir að útgangspunkti það að neftóbak fáist ekki lengur á flugvellinum.
Grein Jóns er á léttum nótum en þó má greina grafalvarlegan undirtón.
„Svo virðist sem nýir rekstraaðila flughafnarinnar hafi lítinn skilning á því sem stendur landanum næst og velti ég því fyrir mér hvort það hafi verið óráð að breyta rekstrarfyrirkomulagi þessarar annars ágætu verslunar,“ segir Jón meðal annars í grein sem hefur vakið mikla athygli.
Jón segir neftóbak því miður ekki einu vöruna sem hefur horfið úr hillunum, aðrar minna áríðandi vörur vanti. Þetta hafði Jón eftir starfsmanni verslunarinnar en of langan texta tæki að telja það allt upp.
Uppfært kl 13:00
Tilfallandi neftóbaksskortur
„Það fylgja því ýmsar áskoranir því að hefja nýjan rekstur. Við hjá Ísland Duty Free höfum á síðustu dögum tekist á við nokkur vandamál sem snúa að flutnings- og aðfangamálum. Þessi mál hafa nú verið leyst og við erum komin á beinu brautina hvað varðar vöruframboð í verslunum okkar,“ segir Frank Hansen, framkvæmdastjóri Ísland Duty Free í skriflegu svari við fyrirspurn Vísis.
Frank segir leitt að hafa valdið viðskiptavinum óþægindum.
„Við munum gera allt sem í okkar valdi stendur til að að tryggja að slíkt komi ekki fyrir aftur. Það er okkar markmið að bjóða breitt vöruframboð og þá sérstaklega af íslenskum vörum vörum. Við höfum fundið fyrir miklum áhuga og jákvæðni hjá íslenskum framleiðendum í okkar garð.“
Og hvað varðar nefbóbakið sérstaklega, sem var útgangspunktur í máli Jóns, þá er þar um að ræða tilfallandi skort á þeirri vöru sem leystist fljótt og er sú vara nú komin aftur í hillurnar.
Í ljósi nýrra upplýsinga hefur fyrirsögn fréttarinnar verið breytt.