Uppgjörið: Tindastóll-Valur 2-2 | Bið Valskvenna lengist enn Arnar Skúli Atlason skrifar 6. júní 2025 19:50 Fanndís Friðriksdóttir og félagar í Val hafa ekki unnið leik síðan í lok apríl. vísir/Jón Gautur Tindastóll og Valur gerðu 2-2 jafntefli á Sauðárkróki í kvöld í fyrsta leik áttundu umferðar Bestu deildar kvenna í fótbolta. Bæði lið komust yfir í leiknum en Stólarnir voru 2-1 yfir í hálfleik. Þetta var fimmti leikur Valsliðsins í röð án sigurs en stigið skilar liðinu upp í fimmta sætið. Valskonur hafa náð í tvö stig í síðustu fimm leikjum en fögnuðu síðast sigri í apríl. Stólarnir eru í áttunda sæti en þær hefðu komust upp í efri hlutann með sigri. Nadía Atladóttir kom Valskonum yfir í upphafi leiks en Stólarnir sneru við leiknum með tveimur mörkum á tíu mínútum. Makala Woods skoraði það fyrra eftir varnarmistök en Elísa Bríet Björnsdóttir það síðara með frábæru háloftaskoti úr teignum. Bryndís Eiríksdóttir gerði stór mistök í fyrsta marki Stólanna en bætti fyrir það með því að jafna metin á 62. mínútu. Það reyndist vera marki sem tryggði Valsliðinu stig. Gestirnir hjá Val byrjuðu betur í kvöld og héldu boltanum meira. Tindastóls stelpurnar lágu til baka og freistuðu þess að beita skyndisóknum og nýta sér mistök Valskvenna. Valur skoraði fyrsta mark kvöldsins á 14 mínútu þegar langur bolti úr öftustu línu Vals frá Lillý Rut Hlynsdóttir yfir vörn Tindastóls þar sem Nadía Atladóttir kom á fleygi ferð og var á ein á móti markmanni TIndastóls og kláraði vel og staðan orðinn 0-1 fyrir Val. Eftir þetta héldu Valskonur áfram að halda í boltann og stjórna leiknum. Tindastóll vörðust vel og Geneive Crenshaw var að grípa inn í fyrirgjafir og hornspyrnur Valskvenna. Það dró til tíðinda á 32 mínútu. Eftir baráttu á miðjunni átti Bryndís Eiríksdóttir varnarmaður Vals slaka sendingu til baka sem Makala Woods framherji Tindastóls komst inn í og lék á Tinnu Brá í markinu hjá Val og skoraði í opið mark af löngu færi og staðan því orðinn jöfn. Fjörið hélt áfram og á 42 mínútu skoruðu Tindastóls konur aftur. Þar var að verki Elísa Bríet Björnsdóttir. Aukaspyrnu Tindastóls var lyft inn á teig Vals þar sem Bryndís Haraldsdóttir flikkaði boltanum áfram og Elísa kom á ferðinni og þrumaði boltanum á lofti í netið. Algjörlega óverjandi fyrir Tinnu Brá í markinu og staðan því orðinn 2-1 fyrir Tindastóls og þannig var staðan í hálfleik. Valur tók öll völd á á vellinum strax í upphafi seinni hálfleiks. Stjórnuðu boltanum og voru að skapa sér mikið af hálffærum og fá hornspyrnur upp úr fyrirgjöfum og skotum í varnarmenn Tindastóls. Á 63 mínútu jafnaði Valur úr einni hornspyrnunni. Boltanum var lyft inn á teiginn og eftir barning í teignum barst boltinn á Fanndísi Friðriksdóttir sem skallaði boltann fyrir Bryndísi Eiríksdóttir sem stýrði boltanum í netið og staðan 2-2. Valur hélt áfram að pressa Tindastól eftir markið og reyndu að skapa sér færi. Varnarmúr Tindastóls var sterkur og voru fáar glufur á þeirra leik. Leikurinn rann sitt skeið án þess að hvorugt liðinu tókst að skapa sér almennilegt færi og endaði því leikurinn 2-2. Tindastóll fara upp í 7 stig eftir leikinn í dag og eru enn í 8 sæti deildarinnar. Valur færist upp í 9 stig og situr í 5-7 sæti ásamt Fram og Stjörnunni. Atvikið Slök Sending Bryndísar Eiríksdóttir sem skóp fyrsta mark Tindastóls sem Makala Woods nýtti sér. Því Bryndís hafði átt aðra slaka sendingu til baka rétt áður þar sem Elísa Bríet var nálægt því að skora. Stjörnur Makala Woods var öflug í liði Tindastóls hún skoraði fyrsta markið og vann aukaspyrnuna sem bjó til mark númer tvö. Genevieve Crenshaw var einnig mjög öflug, greip og sló í burtu flestar fyrirgjafir sem komu í átt að marki Tindastóls. Hjá Val var Ragnheiður Þórunn þeirra öflugasti maður, hún var að reyna að skapa og gera eitthvað óvænt. Aðrar hafa átt betri dag. Stemning og umgjörð Umgjörðin upp á tíu í dag. Fáir á vellinum samt sem áður. Það var kalt í dag. Dómarar [8] Var ekkert hægt að setja út á þetta í dag. Engar glórulausar ákvarðanir og allt í toppmálum. Halldór Jón Sigurðsson er þjálfari Tindastóls.Vísir/Vilhelm Halldór Jón: Þetta var kúka mark Halldór Jón Sigurðsson, þjálfari Tindastólsliðsins, var ánægður með að ná í stig á móti Val í dag. „Við getum verið ánægð með stigið í dag. Skrýtin tilfinning að vera fúll af því að við vorum 2-1 yfir. Þetta var kúka mark. Það veit enginn hvort hann var inni eða ekki. Valur var með boltann við vissum það. Það var allt samkvæmt plani. Ætluðum að leyfa þeim að fá fyrirgjafir af og til. Við ætluðum bara að verjast vel og mér fannst við gera það. Ég er mjög ánægður með liðið,“ sagði Halldór Jón. Halldór lagði upp fyrir leik að liggja til baka og leyfa Val að koma og það virkaði vel. „Ekki nema að það kom einn boltinn inn fyrir í fyrri hálfleik sem skapaði þetta fyrsta mark sem var svínslegt og lélegt af okkar hálfu. Það kom ekki fyrir aftur og kemur ekki fyrir aftur. En heilt yfir ánægður með leikinn. Skoruðum tvö góð mörk. Sköpuðum okkur ekkert mikið af færum en nýtum þau færi sem við fengum. Sem er flott. Heilt yfir frábær frammistaða,“ sagði Halldór Jón. Nokkrir leikmenn voru fjarverandi í dag en það kom ekki að sök. „Það eru leikmenn sem hafa verið að spila mikið ekki með og aðrir sem stíga inn í þau hlutverk sem er bara frábært. Þær tóku þau hlutverk og gerðu það vel. Við fengum ekki á okkur fleiri mörk og það var gott. Við fengum stig sem við tökum og við erum ánægð með. Höldum áfram stiga söfnun í næsta leik í deildinni vonandi,“ sagði Halldór Jón. Kristján Guðmundsson er þjálfari Valsliðsins.Vísir/Pawel Cieslikiewicz Kristján: Svo verðum við held ég bara værukærar Kristján Guðmundsson, þjálfari Vals, var þungur á brún eftir jafntefli liðsins á móti Tindastól í kvöld. „Bara svekkjandi að ná ekki að setja eitt mark í viðbót. Því við bjuggum til ansi mörg hálffæri, bæði í fyrri og seinni hálfleik þar sem við hefðum getað tekið þetta,“ sagði Kristján. Valur stjórnaði leiknum í dag en gekk erfiðlega að brjóta niður og varnarmúr Tindastóls í dag og fengu enginn dauðafæri í dag. „Okkur fannst við komast í stöður í fyrri hálfleik. Við áttum nokkrar fyrirgjafir sem að þurfti bara að ákveðni að setja boltann í markið. Svo vorum við með yfirburði á boltann í seinni hálfleik. Við fáum nokkur hálffæri en okkur tekst ekki að skapa þetta opna færi en við eigum hálffæri sem átti að klára þennan leik,“ sagði Kristján. Valur hefur verið að ströggla í sumar og ekki náð að vinna marga leiki. „Leikmenn eru að upplifa stöðu inn á vellinum sem þeir hafa ekki verið að upplifa áður. Að vera í jöfnum leikjum og ná ekki að vinna. Ná að setja þetta hálffæri inn sem við erum að fá til að komast yfir og vera yfir. Byrjunin á leiknum núna var góð. En svo verðum við held ég bara værukærar og þá kom kafli sem við fáum á okkur tvö mörk. En seinni hálfleikurinn var fín viðbrögð við því,“ sagði Kristján. Besta deild kvenna Tindastóll Valur
Uppgjörið: Skotland - Ísland 1-3 | Fyrsti sigur Arnars Bergmanns við stjörnvölinn hjá íslenska liðinu Fótbolti
Uppgjörið: Skotland - Ísland 1-3 | Fyrsti sigur Arnars Bergmanns við stjörnvölinn hjá íslenska liðinu Fótbolti