Neytendur

Nóa-nammið hækkar í stórum skrefum

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Í júní hækkaði verðlag í Bónus um 0,36 prósent, í Krónunni um 0,21 prósent og í Nettó um 0,15 prósent.
Í júní hækkaði verðlag í Bónus um 0,36 prósent, í Krónunni um 0,21 prósent og í Nettó um 0,15 prósent. Vísir/Viktor Freyr

Verðlag á dagvöru hækkaði 0,58 prósent í maí samkvæmt dagvöruvísitölu ASÍ og nemur árshækkun um 4,5 prósentum. Um er að ræða fjórða mánuðinn í röð þar sem vísitalan hækkar um meira en hálft prósent milli mánaða en sá hækkunartaktur jafngildir um 6 prósent árshækkun á matvörum.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá verðlagseftirliti ASÍ. Þar segir að megindrifkraftar verðhækkana í maí hafi verið hækkanir á mjólkurvörum í öllum verslunum og almennar hækkanir í verslunum Samkaupa. Líkt og nefnt var í síðustu greiningu verðlagseftirlitsins hafi verðlag í verslunum Samkaupa, eða Kjörbúðarinnar og Nettó, farið hækkandi að undanförnu og verðlækkanir sem hófust síðsumars í fyrra því gengið til baka.

Dagvöruvísitalan hafi hækkað um 0,29 prósent miðað við nýjustu tölur júnímánaðar, en þar af hafi verðlag í Bónus hækkað um 0,36 prósent, í Krónunni um 0,21 prósent og í Nettó um 0,15 prósent.

Hlutfall vara sem hækkuðu í verði í Bónus og Krónunni fór lækkandi í apríl, en hækkaði svo aftur í maí þegar mánuðurinn var allur. Miðað við fyrstu tölur júnímánaðar sé ekki að sjá að umfang hækkana dragist saman þó verðhækkanir séu minni. Fyrstu mælingar mánaðaris sýni að um 17 prósent vara í Bónus hafi hækkað milli mánaða og 12 prósent vara í Krónunni.

Verð á súkkulaði hækkar enn

Þá segir að súkkulaðiverð hafi hækkað jafnt og þétt á Íslandi undanfarin ár. Verðhækkanir hafi komið fram í vörum frá flestum framleiðendum en frá janúar 2024 hafi verð á vörum frá Nóa Síríus hækkað um 37 prósent, frá Freyju um 30 prósent og frá Góu um 14 prósent miðað við verð í Bónus og Krónunni. Þrátt fyrir að heimsmarkaðsverð á kakói hafi lítið breyst síðasta hálfa árið mælist enn hækkanir á súkkulaðiverði hér á landi.

„Hækkanirnar vekja athygli fyrir þær sakir að þær haldast í hendur við betri afkomu sælgætisframleiðenda, en sem dæmi jókst rekstrarhagnaður Nóa Síríus um helming í fyrra og hagnaður fyrirtækisins meira en þrefaldast,“ segir í tilkynningu ASÍ. 

Það sé ekki aðeins súkkulaði frá sælgætisframleiðendunum sem hefur hækkað mikið. Nóa Trítlar hafi til dæmis hækkað um 26 prósent í Krónunni og 28 prósent í Bónus frá janúar í fyrra og Góu snuð í Bónus hafa hækkað um 23 prósent.

Vörur

Verslun

Hækkun frá janúar í fyrra

Nóa Trítlar, ýmsar sortir

Bónus

28%

Nóa Trítlar, mix

Krónan

26%

Grænt ópal, sykurlaust

Bónus

26%

Góu snuð

Bónus

23%

Rautt risa ópal, sykurlaust

Krónan & Bónus

19%

Góu bangsahlaup

Krónan

19%

Trölla Tópas

Bónus

19%

Ópal, tvískiptur

Krónan

18%

Kaffi hefur samkvæmt tilkynningunni einnig hækkað í verði síðustu misseri samhliða hækkunum á heimsmarkaðsverði. Í maí höfðu kaffibaunir hækkað í Bónus og Krónunni hækkað um 17 prósent að meðaltali milli ára. Frá maí hafi verðið aftur tekið stökk og malað kaffi og baunir nú hækkað um 10-11 prósent til viðbótar.

Eftir því sem kaffivaran sé meira unnin hafi hún hækkað minna, enda hefur hrávörukostnaðurinn hækkað mest undanfarið ár.

Prís áfram ódýrasta verslunin

Prís er áfram ódýrasta verslunin samkvæmt reglulegu eftirliti verðlagseftirlitsins, en eins og sést á grafinu hér að neðan hefur verð í Prís verið um 4 prósent undir verði Bónus að meðaltali frá opnun, og er enn. Verðþróun í verslunum Samkaupa undanfarna mánuði komi fram í breytingum á verðlagi milli verslana.

Þá lækkaði verðlag í Nettó nokkuð eftir að Prís kom inn á markaðinn síðasta haust en þá fór verðlag í Nettó úr því að vera um 11-14 prósent hærra en í Bónus í það að vera um 4-5 prósent hærra, samkvæmt tilkynningu. 

Síðustu mánuði hafi munurinn aukist og sé verðlag í maí um 8,7 prósent hærra að jafnaði en í Bónus. Til samanburðar er verðlag í Krónunni að jafnaði 0,6-1,1 prósent hærra en í Bónus á þeim vörum sem fást í báðum verslunum en í Prís er verðlagið að jafnaði 3,5-4 prósent ódýrara en í Bónus.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×