Sport

Hefur eignast barn en þarf samt að sanna að hún sé kona

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Frjálsíþróttakonan Amalie Iuel með barnið sitt Stom.
Frjálsíþróttakonan Amalie Iuel með barnið sitt Stom. @amalieiuel

Frjálsíþróttakonur þurfa hér eftir að gangast undir kynjapróf, svokallað genapróf, til að fá keppnisrétt á alþjóðlegum frjálsíþróttamótum í framtíðinni.

Allar konur sem vilja keppa, á HM, á EM, á Ólympíuleikum eða öðrum mótum sem gefa alþjóðleg stig, þurfa að sanna það með genaprófi að þær séu konur.

Það skiptir ekki máli hvort að þær hafi keppt sem konur alla tíð, því aðeins það að standast umrætt genapróf, tryggir þeim þátttökurétt.

Norska frjálsíþróttakonan Amalie Iuel er i sömu stöðu og allar hinar frjálsíþróttakonurnar. Það skiptir engu máli að hún sé tiltölulega nýbúin að fæða barn. Norska ríkisútvarpið fjallar um hennar stöðu.

Sebastian Coe, forseti Alþjóða frjálsíþróttasambandsins, segir að þessi regla hafi það markmið að verja keppni kvenna í frjálsum íþróttum.

„Það sem við erum að segja með þessu er að til þess að fá að keppa í kvennaflokki þá þarftu að vera líffræðilega kvenkyns. Það hefur alltaf verið á hreinu í mínum augum og augum allra hjá sambandinu að skilgreiningin trompar ekki líffræðilega hlutann,“ sagði Sebastian Coe.

Það finnst varla meiri sönnun á því að þú sért kona ef þú hefur gengið með og fætt barn. Það dugar samt ekki til hjá Alþjóða frjálsíþróttasambandinu.

„Það er pirrandi að þurfa að fara í þetta próf en þeir vilja víst tryggja það að þú keppir í réttum flokki,“ sagði Amalie Iuel við norska ríkisútvarpið.

Iuel finnst það þversagnarkennt að konur sem hafa eignast barn séu skyldaðar í slíkt próf.

„Ég er nú nokkuð örugg með mig sjálfa og hver útkoman verður úr mínu prófi. Það kostar mig heldur ekki mikið að taka þetta próf. Ef reglurnar eru svona þá þarf ég bara að fara í það,“ sagði Iuel.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×