Bauð Selenskí til Moskvu Samúel Karl Ólason skrifar 19. ágúst 2025 15:45 Vladimír Pútin, forseti Rússlands. AP/Vyacheslav Prokofyev Vladimír Pútín, forseti Rússlands, bauðst til þess að taka á móti Vólódímír Selenskí, forseta Úkraínu, í Moskvu. Þetta mun rúsneski forsetinn hafa sagt við Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, þegar þeir töluðu saman í síma í gær.
Selenskí er sagður hafa hafnað því boði um leið og hann heyrði af því, samkvæmt AFP fréttaveitunni. Rússar hafa nokkrum sinnum reynt að ráða Selenskí af dögum. Í upphafi innrásarinnar í febrúar 2022 sendu Rússsar sérsveitarmenn til Kænugarðs með það verkefni að handsama Selenskí eða ráða hann af dögum. Til skotbardaga kom í forsetahöllinni. Sjá einnig: Lífverðir Selenskís sakaðir um að skipuleggja banatilræði Trump ræddi við stjórnendur þáttarins Fox and Friends í beinni útsendingu í dag, þar sem hann fór um víðan völl en ræddi þó mest málefni Úkraínu. Þá sagði hann meðal annars að mögulegt væri að Pútín hefði ekki áhuga á friði. „Ég held að Pútín sé þreyttur á þessu. Ég held þeir séu allir þreyttir á þessu, en maður veit aldrei,“ sagði Trump. „Við munum komast að því á næstu vikum ... það er mögulegt að hann vilji ekki semja um frið.“ Þá sagði Trump ef Pútín neitaði að semja frið myndi forsetin rússneski standa frammi fyrir erfiðum aðstæðum. Þar er hann líklegast að vísa til hertra refsiaðgerða en Trump hefur ítrekað á undanförnum mánuðum hótað slíkum aðgerðum gegn Rússlandi án þess að standa við stóru orðin þegar á hólminn er komið. FOX: What was the reaction among European leaders when you decided to call Putin during your meeting? TRUMP: I didn't do it in front of them. I thought that would be disrespectful to President Putin. pic.twitter.com/Rt7jJoKX9R— Aaron Rupar (@atrupar) August 19, 2025 Í viðtalinu sagði Trump einnig að hann myndi ekki senda hermenn til Úkraínu. Meðal þess sem rætt var á fundunum í Hvíta húsinu í gær var hvernig hægt yrði að tryggja öryggi Úkraínu verði Úkraínumenn við kröfum Rússa og friði verði komið á. Ráðamenn í Evrópu hafa kallað eftir öflugum öryggistryggingum en efst á lista Úkraínumanna er aðild að Atlantshafsbandalaginu, sem Trump hefur þvertekið fyrir að sé í boði. Trump hefur áður sagt að ríki Evrópu yrðu að tryggja öryggi Úkraínu en hann hefur gefið í skyn á undanförnum dögum, eftir fundinn með Pútín í Alaska, að hann sé tilbúinn til að koma að því með einhverjum hætti. Hann nefndi til dæmis mögulegan stuðning við evrópskt herlið með bandarískum orrustuþotum. Sjá einnig: Herir Evrópu standa á brauðfótum eftir áratuga niðurskurð Þá gaf hann enn eina ferðina í skyn að Úkraínumenn bæru ábyrgð á innrás Rússa með því að leita skjóls hjá Atlantshafsbandalaginu og að hafi verið heimskulegt af þeim að hefja stríðið, vegna þess hve mikið öflugri Rússar væru. Trump sagði að viðleitni Úkraínumanna varðandi inngöngu í NATO heði verið „mjög móðgandi“ gagnvart Rússum. Trump blames Ukraine for getting invaded: "It's not a war that should've been started. You don't do that. You don't take on a nation that's 10 times your size ... they took probably a lot of money too." pic.twitter.com/5bbkMu934Z— Aaron Rupar (@atrupar) August 19, 2025 Ráðamenn í Rússlandi hafa á síðustu dögum þvertekið fyrir að samþykkja erlent herlið í Úkraínu, annað en þeirra eigin, og þá hafa þeir einnig gefið til kynna að þeir hafi ekki látið af kröfum sínum gegn Úkraínu með nokkrum hætti. Meðal krafa Rússa, sem eiga samkvæmt Bandaríkjamönnum að vera á borðinu, er að úkraínskir hermenn hörfi alfarið frá Donbassvæðinu svokallaða. Það er myndað Dónetsk- og Lúhanskhéruðum en Rússar stjórna Lúhans nánast öllu. Stór hluti Dónetsk er þó enn í höndum Úkraínumanna og þar eru nokkrar borgir og nokkrir bæir sem Úkraínumenn hafa víggirt mjög. Rússar hafa um mánaðaskeið lagt mesta áherslu á sókn þeirra í Dónetskhéraði sem hefur verið mjög hæg og er sögð hafa kostað þá verulega. Hér má sjá grófa mynd af stöðunni á víglínunni í Úkraínu. Rússar vilja að Úkraínumenn hörfi frá Dónetsk og þar á meðal frá bæjum eins og Pokrovks og Kramatorsk, sem eru mjög víggirtir. Rússar hafa um mánaðaskeið reynt að ná Pokrovsk úr höndum Úkraínumanna.Vísir/Hjalti
Rússland Úkraína Innrás Rússa í Úkraínu Vladimír Pútín Tengdar fréttir Fordæmisgefandi fyrir Ísland hvernig haldið verði á málum Úkraínu Forsætisráðherra segir jákvæðan tón í ráðamönnum eftir fund Evrópuþjóða við Bandaríkjaforseta og Úkraínuforseta. Skýrar meldingar hafi komið frá Bandaríkjunum að þau muni taka þátt í að tryggja frið komist hann á. Hún segist raunsæ með framhaldið. 19. ágúst 2025 12:43 „Því miður vantar ennþá ansi mikið“ Sérfræðingur í alþjóðamálum segir fund Donalds Trump Bandaríkjaforseta með forseta Úkraínu og öðrum leiðtogum Evrópuríkja hafa verið ágætan, en hann hafi skilað litlum árangri. Allt strandi á afstöðu Rússlands gagnvart vopnahléi og öryggistryggingum, sem hafi ekkert breyst, þrátt fyrir fundi. 19. ágúst 2025 12:03 Rýnt í sögulegan fund: Skref nær friði eða meiri vonbrigði? Blaðamaður Vísis sem fylgst hefur með stríðinu í Úkraínu frá upphafi fór yfir helstu vendingarnar og væntingarnar af yfirstandandi fundi Trump Bandaríkjaforseta með Selenskí Úkraínuforseta og einvalaliðs evrópskra leiðtoga. 18. ágúst 2025 20:43 Mest lesið Rúmlega helmingur starfsmanna Félagsbústaða hættur Innlent Hætta að skilgreina gróðurhúsalofttegundir sem skaðlegar Erlent „Myndi ekki koma mér á óvart ef það færi að gjósa þarna“ Innlent Rifust um Trump áður en faðir skaut dóttur sína til bana Erlent Einfalt að stýra glæpahring frá allt öðru landi Innlent Ákærður fyrir líkamsárás en lýsir yfir sakleysi Innlent „Sátt og samlyndi“ um skyndileg starfslok varaslökkviliðsstjóra Innlent Nafngreindi sex mögulega samverkamenn Epstein á þinginu Erlent Smíða tengibyggingu sem verður hjarta Leifsstöðvar Innlent Fiskúrgangi fargað á útivistarsvæði: „Þetta er náttúrulega bara viðbjóður“ Innlent Fleiri fréttir Opna aftur á flugumferð í El Paso en útskýra enn ekkert Opnar sig í nýrri bók: „Ég þekkti ekki þessa menn eða þessa konu“ Íri í haldi ICE óttast um líf sitt Rifust um Trump áður en faðir skaut dóttur sína til bana Loka flugvelli El Paso skyndilega og án útskýringa Jagland sviptur friðhelgi Furstadæmin þjálfa uppreisnarmenn í leynilegri herstöð Hætta að skilgreina gróðurhúsalofttegundir sem skaðlegar Einn í yfirheyrslu og ráðist í húsleit í tengslum við hvarf Nancy Guthrie Norðmenn geti ekki útilokað innrás Rússa Tíu látnir í skotárás á skóla í Kanada Nafngreindi sex mögulega samverkamenn Epstein á þinginu Trump hafi vitað meira en hann viðurkenndi: „Allir vita hvað hann hefur verið að gera“ FBI birtir myndir af grímuklæddum manni við heimili Guthrie Macron segir Evrópumönnum að hrista af sér slenið Undirbúa nýja innrás til að afvopna Hamas Nýtt samkomulag eða nýtt vopnakapphlaup? Sprengdu hurðina af brynvörðum bíl Fundu sex nöfn mögulegra samverkamanna Epstein á tveimur tímum Þrýsta á Ísraela varðandi Vesturbakkann Hótar að koma í veg fyrir opnun brúar milli Windsor og Detroit Neitaði að svara spurningum á grundvelli fimmta viðaukans Var með krabbamein og lést af völdum blóðtappa í lunga Hvetur Starmer til að segja af sér Bauluðu á Vance af „evrópsku stolti“ Áhrifamiklir norskir erindrekar rannsakaðir vegna Epsteins Vilja herða skilyrði fyrir sænskum ríkisborgararétti Vilhjálmur og Katrín hafi „djúpar áhyggjur“ vegna Epstein-afhjúpunar Christchurch-morðinginn vill draga játninguna til baka Jimmy Lai dæmdur í 20 ára fangelsi Sjá meira
Fordæmisgefandi fyrir Ísland hvernig haldið verði á málum Úkraínu Forsætisráðherra segir jákvæðan tón í ráðamönnum eftir fund Evrópuþjóða við Bandaríkjaforseta og Úkraínuforseta. Skýrar meldingar hafi komið frá Bandaríkjunum að þau muni taka þátt í að tryggja frið komist hann á. Hún segist raunsæ með framhaldið. 19. ágúst 2025 12:43
„Því miður vantar ennþá ansi mikið“ Sérfræðingur í alþjóðamálum segir fund Donalds Trump Bandaríkjaforseta með forseta Úkraínu og öðrum leiðtogum Evrópuríkja hafa verið ágætan, en hann hafi skilað litlum árangri. Allt strandi á afstöðu Rússlands gagnvart vopnahléi og öryggistryggingum, sem hafi ekkert breyst, þrátt fyrir fundi. 19. ágúst 2025 12:03
Rýnt í sögulegan fund: Skref nær friði eða meiri vonbrigði? Blaðamaður Vísis sem fylgst hefur með stríðinu í Úkraínu frá upphafi fór yfir helstu vendingarnar og væntingarnar af yfirstandandi fundi Trump Bandaríkjaforseta með Selenskí Úkraínuforseta og einvalaliðs evrópskra leiðtoga. 18. ágúst 2025 20:43