Leik lokið: KA - Fram 2-0 | Sanngjarn sigur heimamanna Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar 24. ágúst 2025 16:16 Hallgrímur Mar Vísir/Ernir Eyjólfsson KA tók á móti Fram í 20. umferð Bestu deildar karla í fótbolta í kvöld en heimamenn fóru að lokum með sanngjarnan 2-0 sigur af hólmi. Fram náði lítið sem ekkert að ógna marki heimamanna. Sanngjarn sigur að mínu mati. KA lyftir sér hér upp úr 10. sæti í það sjötta en það gæti þó breyst eitthvað eftir umferðina. Mikilvæg stig fyrir KA sem hafa verið duglegir að safna sér stig í neðri hluta deildarinnar. Nánari umfjöllun á Vísi síðar í kvöld. Besta deild karla KA Fram Íslenski boltinn Fótbolti