Fresta reynsluflugi rafmagnsflugvélar Kristján Már Unnarsson skrifar 4. nóvember 2025 11:27 ES 30-rafmagns-tvinnflugvélin er talin geta rutt brautina fyrir sjálfbært og mengunarfrítt farþegaflug. Heart Aerospace Sænski flugvélaframleiðandinn Heart Aerospace hefur frestað fyrsta reynsluflugi HX-1 rafmagnsflugvélar sinnar fram á nýtt ár. Fyrirtækið hafði fyrir hálfu ári kynnt að fyrsta flugið yrði á síðasta fjórðungi þessa árs.
HX-1 er heiti á frumeintaki ES 30-rafmagnsflugvélarinnar, helstu vonarstjörnu fluggeirans um sjálfbært og mengunarfrítt atvinnuflug. Flugvélin gæti orðið sú fyrsta í kolefnisfríu áætlunarflugi hérlendis en Icelandair hefur með viljayfirlýsingu skráð sig fyrir fimm eintökum. Norræn flugfélög hafa sérstaklega horft til þessarar flugvélar fyrir flugleiðir innan Skandinavíu. ES-30 flugvélin í litum Icelandair, sem skrifað hefur sig fyrir fimm eintökum með viljayfirlýsingu.Heart Aerospace Það þótti álitshnekkir fyrir evrópska nýsköpun og þróunarstarf þegar Heart Aerospace, sem stofnað var í Gautaborg, ákvað síðastliðið vor að flytja höfuðstöðvar sínar til Kaliforníu. Skilaboðin voru túlkuð svo að Bandaríkin væru betri staður til nýsköpunar og tækniþróunar en Evrópa. Jafnframt ákvað fyrirtækið að taka frumeintakið í sundur og flytja það til Plattsburgh-flugvallar í norðanverðu New York-ríki þaðan sem áformað er að fyrstu reynsluflugin verði. Stærð og flugdrægi vélarinnar gæti hentað íslensku innanlandsflugi.Heart Aerospace Heart Aerospace hafði stefnt á fyrsta flugið á öðrum fjórðungi þessa árs. Flutningurinn til Bandaríkjanna varð til þess að fyrirtækið endurskoðaði þá tímaáætlun og sagði að flugvélin myndi ekki taka á loft fyrr en undir lok þessa árs. Einnig kom fram að endursmíða þyrfti vængina vegna vandamála tengdum koltrefjaefnum. Flugfréttasíðan FlightGlobal vekur athygli á því að Anders Forslund, stofnandi og forstjóri Heart Aerospace, greini frá því í nýju kynningarmyndbandi að fyrsta flugtakið verði „snemma á næsta ári“. Engin skýring er gefin á seinkuninni og hefur Heart ekki svarað fyrirspurnum vefmiðilsins. Heart hyggst smíða annað tilraunaeintak, HX-2, í nýrri verksmiðju sem reisa á í El Segundo í Kaliforníu þar sem ES 30-flugvélin verður þróuð áfram. Hún er hönnuð til að flytja 30 farþega á allt að 200 kílómetrum löngum flugleiðum eingöngu á rafmagni, eða 25 farþega á allt að 800 kílómetra flugleiðum með „hybrid“ eða tvinnorku. Stór hópur flugfélaga hefur gert skuldbindandi pantanir í 250 eintök og viljayfirlýsingar eru um nærri 200 eintök. Fyrirtækið stefnir að því að flugvélin verði búin að fá vottun og komin í farþegaflug árið 2029. Hér má sjá frétt Stöðvar 2 daginn sem fyrsta tilraunaeintakið var kynnt í Gautaborg í september í fyrra:
Fréttir af flugi Loftslagsmál Orkumál Orkuskipti Umhverfismál Nýsköpun Tækni Bandaríkin Svíþjóð Icelandair Tengdar fréttir Yfirgefa Svíþjóð til að hraða þróun rafmagnsflugvélar Sænski flugvélaframleiðandinn Heart Aerospace hefur ákveðið að flytja höfuðstöðvar sínar frá Gautaborg í Svíþjóð til Los Angeles í Kaliforníu. Fyrirtækið segir að með þessu sé ætlunin að efla þróun ES 30-rafmagnsflugvélarinnar og styðja betur við fyrirhugað tilraunaflug. 1. maí 2025 09:45 Þessi Airbus gæti flogið á íslenskri orku til Oslóar Ráðamenn Airbus hafa ítrekað þá stefnumörkun sína að koma eitthundrað sæta flugvél knúinni mengunarlausu eldsneyti í arðbært farþegaflug á næsta áratug. Þetta kom fram á árlegum fundi forystumanna Airbus á dögunum. 12. apríl 2025 08:50 Forsetinn fyrstur farþega í rafmagnsflugvél Blað var brotið í íslenskri flugsögu í gær með fyrsta farþegaflugi rafmagnsflugvélar hér á landi. Forseti Íslands og forsætisráðherra voru fyrstu farþegar vélarinnar og segja flugið marka vatnaskil í vegferð Íslands í átt að hreinni orku í loftsamgöngum. 24. ágúst 2022 06:30 Flugvél flýgur í fyrsta sinn í sögunni á íslenskri raforku Fyrsta rafmagnsflugvél Íslendinga hóf sig til flugs í fyrsta sinn á Íslandi nú síðdegis frá flugvellinum á Hellu á Rangárvöllum. Þetta var jafnframt í fyrsta sinn sem flugvél flaug á íslenskri orku en ekki innfluttu jarðefnaeldsneyti. 8. júlí 2022 22:33 Mest lesið Z-kynslóðin sem foreldrar byrjuð að breyta leikreglunum Atvinnulíf „Svo kemur pabbi í heimsókn þegar þarf að vinna einhver flókin verkefni“ Atvinnulíf „Óskiljanleg“ regla leiddi til þess að hann greiddi flugferðina tvisvar Neytendur „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Viðskipti innlent Miklar hækkanir í lágvöruverðsverslunum í byrjun árs Neytendur Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Viðskipti innlent Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Samstarf Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Viðskipti innlent Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Viðskipti innlent Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira
Yfirgefa Svíþjóð til að hraða þróun rafmagnsflugvélar Sænski flugvélaframleiðandinn Heart Aerospace hefur ákveðið að flytja höfuðstöðvar sínar frá Gautaborg í Svíþjóð til Los Angeles í Kaliforníu. Fyrirtækið segir að með þessu sé ætlunin að efla þróun ES 30-rafmagnsflugvélarinnar og styðja betur við fyrirhugað tilraunaflug. 1. maí 2025 09:45
Þessi Airbus gæti flogið á íslenskri orku til Oslóar Ráðamenn Airbus hafa ítrekað þá stefnumörkun sína að koma eitthundrað sæta flugvél knúinni mengunarlausu eldsneyti í arðbært farþegaflug á næsta áratug. Þetta kom fram á árlegum fundi forystumanna Airbus á dögunum. 12. apríl 2025 08:50
Forsetinn fyrstur farþega í rafmagnsflugvél Blað var brotið í íslenskri flugsögu í gær með fyrsta farþegaflugi rafmagnsflugvélar hér á landi. Forseti Íslands og forsætisráðherra voru fyrstu farþegar vélarinnar og segja flugið marka vatnaskil í vegferð Íslands í átt að hreinni orku í loftsamgöngum. 24. ágúst 2022 06:30
Flugvél flýgur í fyrsta sinn í sögunni á íslenskri raforku Fyrsta rafmagnsflugvél Íslendinga hóf sig til flugs í fyrsta sinn á Íslandi nú síðdegis frá flugvellinum á Hellu á Rangárvöllum. Þetta var jafnframt í fyrsta sinn sem flugvél flaug á íslenskri orku en ekki innfluttu jarðefnaeldsneyti. 8. júlí 2022 22:33