Ég trúi á orkuskiptin! Hverju trúir þú? Tinna Jóhannsdóttir skrifar 28. nóvember 2025 15:31 Við Íslendingar stöndum á tímamótum sem við þekkjum í raun mjög vel. Við sem þjóð höfum tvívegis gengið í gegnum orkuskipti og þau breyttu lífsgæðum okkar til frambúðar. Nú er komið að þriðju orkuskiptunum; þeirri umbreytingu að skipta út jarðefnaeldsneyti fyrir okkar eigin endurnýjanlegu orku í samgöngum, flugi, siglingum, stóriðju og daglegu lífi. Þetta eru orkuskiptin sem gera okkur kleift að hætta að flytja inn milljón tonn af olíu á ári og nýta í staðinn þá grænu, endurnýjanlegu orku sem við höfum yfir að ráða hér heima. Munurinn að þessu sinni er þó sá að þriðju orkuskiptin snúast ekki bara um þægindi eða framfarir heldur um framtíð landsins okkar, orkuöryggi og sjálfstæði okkar og komandi kynslóða þegar kemur að orkumálum almennt. Og nú þarf hver og einn að spyrja sig: Hverju trúi ég? Fyrstu orkuskiptin hófust fyrir rúmri öld þegar rafvæðing landsins byrjaði og fólk ferðaðist milli landshluta til að byggja upp rafstöðvar, stíflur og innviði. Þetta voru algjörir brautryðjendur síns tíma. Seinni orkuskiptin snerust um nýtingu jarðvarmans og hann varð grunnur hitaveitna með þeim verðlaunum að lífsgæði landsmanna tóku stökk fram á við. Þessi orkuskipti, sem við tökum sem sjálfsögðum í dag, náðu fram að ganga vegna elju, framsýni og þrautseigju þeirra kynslóða sem framkvæmdu þau. Og vegna þess að neyðin, loftgæðin og olíuverð þrýstu á breytingar. En hver er hvati okkar nú, er hann ekki eins mikilvægur og aðkallandi og miðar okkur nógu vel? Það er augljóst að umhverfislegur ávinningur þriðju orkuskiptanna er ótvíræður. Orkuskiptin munu draga verulega úr losun gróðurhúsalofttegunda. Verðmæti þeirra ytri áhrifa af losun sem má forðast með orkuskiptunum hleypur á hundruðum milljarða króna. Orkuskiptin stuðla líka að orkuöryggi okkar sem þjóðar. Við ætlum að vera aflvakar sjálfbærrar framtíðar og þá þurfum við að hraða orkuskiptunum. Við sem þjóð erum háð framleiðslu erlendra ríkja þegar kemur að olíuframleiðslu, framleiðslu sem oftar en ekki á sér stað í ríkjum þar sem stríð og pólitískur ágreiningur á sér stað og setur okkur í þá stöðu að hafa enga stjórn á ytri áhrifum á verðmyndun olíunnar. Fyrir utan það að á ári hverju flytjum við inn meira en milljón tonn af olíu og greiðum fyrir hana á annað hundrað milljarða króna, peningur sem fer úr landi. Það er sorgleg staðreynd þegar við höfum alla þessa endurnýjanlegu orku hérlendis sem við getum og kunnum þjóða best að nýta. Orkuskiptin munu líka skapa bein og afleidd störf. Aukin umsvif í framleiðslu endurnýjanlegrar orku og orkuöflun munu skapa störf. Störf sem skila í mörgum tilfellum miklum ávinningi til samfélagsins í gegnum eignarhald þeirra fyrirtækja sem slíka starfsemi reka og þeirra lífsgæða sem þau tryggja. Á hverju ári framleiðum við um 20 TWst (teravattstundir) af raforku á Íslandi. Full orkuskipti í flugi, skipum, þungaflutningum, verksmiðjum og almenningssamgöngum kalla vissulega á aukna raforkuframleiðslu á næstu áratugum. Á þessum áratugum þarf uppbygging að eiga sér stað í raforkukerfinu öllu og töluvert þarf að framkvæma. En það er ekki sokkinn kostnaður, því ávinningurinn er margþættur af þeim aðgerðum. Ávinningur fyrir loftslagið, orkuöryggi, fjárhag þjóðarinnar og samfélagið allt en einnig ímyndarlegur ávinningur. Við erum nefnilega í kjöraðstæðum til að byggja hér upp ímynd af landinu okkar sem er eftirsóknarverð og einstök. Hreina og græna landið Ísland Í hugum einhverra hljómar þetta kannski eins og útópía en við höfum tækifæri til að verða “Græna og hreina” landið, landið sem fólk elskar að ferðast til fyrir margar sakir. Til dæmis vegna þeirrar staðreyndar að við erum land sem þú getur heimsótt til að komast í kalt frí ( e. coolcation). Kalda, napurlega og að okkur finnst, ergilega loftslagið hér er ekki lengur veikleiki því slík frí eru orðin mjög vinsæl og munu bara verða vinsælli á næstu árum. Ástæðan er hlýnun jarðar. Hitastigið á meginlandinu hefur hækkað það mikið að fólk þyrstir í að komast í frí til kaldra landa. Við getum því slegið tvær flugur í einu höggi og markaðssett okkur sem land þar sem þú getur bæði upplifað kulda en líka ferðast um landið á endurnýjanlegri orku sem er framleidd hér á köldu, en samt svo heitu, eyjunni okkar þar sem jarðvarminn býr til verðmæti og betri lífsgæði fyrir okkur öll. En talandi um ferðaþjónustu, þá er mikilvægt að beina sjónum að bílaleigunum sem eru jafn mislangt komnar í orkuskiptunum og þær eru margar. Sumar standa sig vel og aðrar ekki, sumar hafa ríkan vilja til að gera betur en aðrar ekki, en sammerkt með þeim öllum er að þær hafa upplifað aðgerðir stjórnvalda sem eru ekki til þess fallnar að hvetja þær til góðra verka og dáða í því að endurnýja bílaflotann sinn yfir í bíla sem knúnir eru endurnýjanlegum orkugjöfum. Það er nefnilega lykilatriði þegar kemur að orkuskiptum í samgöngum að bílaleigurnar auki hlutfall rafbíla í sínum flota. En af hverju ? Bílaleigur flytja inn mjög stóran hluta af fólksbílum landsins. Eftirmarkaðurinn ( notaðir bílar) er að mjög stórum hluta drifinn áfram af þeirra bílum og því ljóst að ef þeirra framlag til orkuskiptanna verður ekki meira á næstu árum, þá mun hlutfall rafbíla í umferð ekki aukast mikið. Hlutfall rafbíla af innfluttum bílum bílaleiganna var komið nálægt 20% árið 2023 en svo kom bakslag sem á sér m.a. skýringar í aðgerðum stjórnvalda og hlutfallið féll niður í 7-8% í fyrra og það sem af er þessu ári. Ég trúi því svo innilega að okkur sem þjóð langi til að Ísland verði þessi hreini og græni áfangastaður þar sem ferðamenn keyra um þetta ótrúlega land og náttúru sem á sér enga hliðstæðu, á milli eldsumbrota og upplifa það mögulega í fyrsta sinn að keyra snöggan, hljóðlátan og þægilegan rafbíl. Hreint og grænt land þar sem ferðamenn hafa eiginlega ekki val um neitt annað en að leigja rafmagnsbíl, allt markaðsefni miðar að því að hvetja þá til þess að keyra um græna landið á umhverfisvænan hátt og hlaða á hleðsluneti landsins sem er fyrir löngu orðið vel þétt og gott fyrir þá langdrægu bíla sem framleiddir eru í dag. Ég trúi því líka að stjórnvöld sjái hag sinn í því að styðja við þessa vegferð bílaleiganna með aðgerðum sem hvetja en ekki letja. Ég trúi því líka að innan skamms muni bílaleigur rukka ferðamenn um miklu hærra verð fyrir leigu á þeim bílum sem ekki eru drifnir áfram af endurnýjanlegum og umhverfisvænum orkugjöfum, þ.e.a.s. ef þeir neyðast til að nota slíka bíla til að komast upp á hálendi eða einhverjar ótroðnar slóðir. Ég trúi því líka að við sem kynslóðir nútímans ætlum að eiga hlutdeild í sögum framtíðarinnar og geta sagt barnabörnum okkar, með stolti og bliki í auga að við höfum raunverulega gert gagn, tekið erfiðar ákvarðanir og barist með kjafti og klóm fyrir umbreytingum og bættum lífsskilyrðum, samfélaginu og Íslandi öllu til heilla. Ég er hætt að trúa á álfasögur. Núna trúi ég á orkuskiptin! Hverju trúir þú? Höfundur starfar sem forstöðumaður markaðsmála og sjálfbærni hjá Orku náttúrunnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Halldór 24.10.26 Halldór 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Skoðun Skoðun Protocol 35: Could Iceland be right after all? Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nei nú stækkar nefið þitt Gosi.. sönn frásögn Sonja Lind Eyglóardóttir skrifar Skoðun Við getum ekki mælt okkur út úr vandanum Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar Skoðun Loftbrúin er fjárfesting í landsbyggðunum Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir skrifar Skoðun Bruninn á Stuðlum og ábyrgð ríkisins Salvör Nordal skrifar Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki góðvild — þau eru góð stefna Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir skrifar Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar skrifar Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Sjá meira
Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar
Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar
Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar
Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar