Eldri kona stórslösuð og vitni gefa sig fram Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 8. desember 2025 15:17 Fólksbíllinn var mikið skemmdur eftir áreksturinn og þá voru ummerki eftir blóð á götunni. vísir/Vilhelm Vitni hafa sett sig í samband við lögreglu vegna alvarlegs slyss á Suðurlandsbraut um tíuleytið í morgun þegar ekið var á gangandi vegfaranda. Um var að ræða fullorðna konu sem er alvarlega slösuð.
Fólksbíl var ekið á Suðurlandsbraut í vestur þegar slysið varð. Konan var á göngu yfir gönguljósin til móts við Hilton Nordica- hótelið. Ásmundur Rúnar Gylfason aðstoðaryfirlögregluþjónn á höfuðborgarsvæðinu segir að konan hafi verið flutt á sjúkrahús þar sem hún hafi gengist undir aðgerð. Búið er að bera kennsl á konuna sem samkvæmt heimildum fréttastofu var ekki með skilríki á sér þegar slysið varð. Ásmundur Rúnar segir fullorðinn einstakling hafa ekið bílnum. Ekki leikur grunur um að viðkomandi hafi verið undir áhrifum eða haft síma við höndina undir stýri. Þá var ekkert athugavert við aðstæður á vettvangi um tíuleytið, þ.e. hvað varðar birtuskilyrði, hálku eða annað slíkt. Ásmundur Rúnar segir myndina vera að skýrast. Vitni hafi gefið sig fram við lögreglu sem til standi að taka skýrslu af. Þá sé lögregla að afla sér myndefnis af ákeyrslunni en einhverjar myndavélar munu hafa fest það á filmu.
Lögreglumál Reykjavík Samgönguslys Tengdar fréttir Ekki búið að bera kennsl á þann sem ekið var á Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu vinnur að rannsókn alvarlegs umferðarslyss á Suðurlandsbraut í morgun þar sem ekið var á einstakling á göngu við gönguljós. Lögregla leitar að vitnum að atvikinu. 8. desember 2025 12:10 Alvarlegt slys á Suðurlandsbraut Alvarlegt slys varð við gönguljós á Suðurlandsbraut vestan við Reykjaveg um klukkan 10 í morgun þegar ekið var á gangandi vegfaranda. Tveir sjúkrabílar voru sendir á svæðið samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði og var einn fluttur á slysadeild. 8. desember 2025 10:44 Mest lesið Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Blóðbað á lestarpalli Erlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Sonur þingmannsins ákærður Innlent „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Innlent Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Fleiri fréttir Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Feginn að verðbólga stendur í stað og meirihluti mótfallinn þátttöku í Eurovision Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Biðin á Landspítalanum styttist til muna Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Rukka erlenda nemendur um milljónir Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Frumvarp kynnt um afnám æviráðningar Bein útsending: Kynnir aðgerðaáætlun gegn fátækt barna Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Kveiksþætti kippt út tímabundið Söfnuðust saman við sendiráðið og mótmæltu refsiaðgerðum „Séum tilbúin þegar og ef þessi veruleiki birtist okkur“ Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Sveik hundruð þúsunda af vistmanni á Grenilundi Sjá meira
Ekki búið að bera kennsl á þann sem ekið var á Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu vinnur að rannsókn alvarlegs umferðarslyss á Suðurlandsbraut í morgun þar sem ekið var á einstakling á göngu við gönguljós. Lögregla leitar að vitnum að atvikinu. 8. desember 2025 12:10
Alvarlegt slys á Suðurlandsbraut Alvarlegt slys varð við gönguljós á Suðurlandsbraut vestan við Reykjaveg um klukkan 10 í morgun þegar ekið var á gangandi vegfaranda. Tveir sjúkrabílar voru sendir á svæðið samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði og var einn fluttur á slysadeild. 8. desember 2025 10:44